19.12.1968
Neðri deild: 38. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í B-deild Alþingistíðinda. (332)
89. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu
Frsm. minni hl. (Björn Pálsson):
Herra forseti. Nál. okkar er ekki komið. Það skiptir ekki svo miklu máli, því menn nenna misjafnt að lesa þessi nál. Ég ætla ekki að halda langa ræðu og enga æsingaræðu. Satt að segja verð ég að viðurkenna það, að þetta frv. er að mörgu leyti betur samið og skynsamlegar en mörg frv., sem ríkisstj. hefur lagt fram, og á það sennilega mestan þátt í því, að sá hagfræðingurinn, sem hefur einna mest kynnzt fólkinu og lífsbaráttu þess úti á landsbyggðinni, hefur átt mestan þátt í að semja þetta. Þar fyrir erum við engan veginn að öllu leyti ánægðir með frv., enda ekki við því að búast að sé hægt að semja svona yfirgripsmikið frv. þannig, að ekkert megi að því finna. Hitt er svo annað mál, að við vorum yfirleitt í stjórnarandstöðunni á móti gengislækkuninni, en þessar ráðstafanir þarf eðlilega að gera, eða eitthvað svipað, einhverjar ráðstafanir þarf að gera, úr því að gengið var lækkað. En það eru nokkur atriði, sem við erum ekki ánægðir með, þess vegna sjáum við ekki ástæðu til að greiða atkv. með frv. og leggjum til, að því verði vísað frá í bili. Við gerum ekki ráð fyrir, að það verði samþykkt.
Fyrsti kafli frv. fjallar um þær ráðstafanir að taka 10% af fiskverðinu og 20% af síldarverðinu til þess að greiða vexti og afborganir af lánum bátanna. Satt að segja er ég persónulega fylgjandi þessari aðferð; ég álít, að það sé ekki um aðra leið að velja en að taka þetta þannig. Hitt er mér ljóst, að þessi 10% nægja engan veginn til þess að borga vexti og afborganir af fiskiskipum. Nú var það þannig, þegar þessi ríkisstj. hóf sína göngu, að hún hækkaði vextina um þriðjung eða að minnsta kosti um þriðjung af útgerðarlánum og fiskibátum, og þetta hefur átt sinn þátt í að auka kostnaðinn. Ég veit ekki hvað ríkisstj. ætlar sér, hvort hún ætlar sér að halda hinum háu vöxtum áfram. Við höfum alltaf verið á móti þessum háu vöxtum í stjórnarandstöðunni, ég hef oft talað á móti því persónulega og margir aðrir. Ég hef haldið því fram, að við ættum að leggja áherzlu á að halda verðgildi krónunnar stöðugu og hafa vextina hóflega, en það var farin sú leið að hækka vextina og svo hefur krónan alltaf verið að lækka.
Nú ætla ég ekki að gera ríkisstj. rangt til eða hennar fjármálastefnu. Raunverulega stóð krónan, þegar ríkisstj. tekur við, í ca. 30 kr. dollarinn. Nú er hún komin í 88 kr. eða um það bil þrisvar sinnum lægri. Ætli það hefði ekki verið betra að hafa vextina dálítið lægri og reyna að halda genginu stöðugu. En einmitt vaxtahækkunin hefur átt sinn þátt í því að auka reksturskostnað atvinnuveganna og þar með að láta þá ekki bera sig og þess vegna þurfti að fella gengið. Nú er það mín skoðun og hefur alltaf verið, að vitlausasta lausn á efnahagsvandamálum sé að lækka gengið. Þetta held ég yfirleitt, að reyndir fjármálamenn í veröldinni álíti og ég held, að þeir álíti okkur eins og hverja aðra kjána. Nú skeði það hjá okkur í vetur, að við lækkuðum gengið. Mér var sagt úti í bæ, að það hefðu bara verið mistök hjá de Gaulle, það hefði verið bilaður síminn einhvers staðar nálægt Færeyjum, þess vegna hefði hann ekki náð sambandi við Jóhannes Nordal og gert því þessa vitleysu að ákveða að fella ekki gengið maður veit aldrei, hvað er satt í því, sem maður heyrir, — a.m.k. er það staðreynd, að hann fór ekki eftir því, sem hagfræðingarnir sögðu og allir þessir gengisbraskarar, hann bara sagði: Við fellum ekki gengið. Mér er ákaflega vel við þessa ríkisstj., af því að þetta eru drenglyndir menn og velviljaðir, og þess vegna hef ég alltaf orðið hryggur, þegar þeir hafa verið að gera einhver afglöp, m.a. átti ég von á því, að þeir ætluðu að gera eina vitleysuna í vetur og fella gengið. Ég sendi þeim því eiginlega persónulegt bréf í þeirra eigin blaði, Vísi, um það, að þetta væri það vitlausasta, sem hægt væri að gera, og þar greindi ég í 10 liðum frá því, hvað þyrfti að gera til þess að þurfa ekki að gera þessa endaleysu. En vitanlega fóru þeir ekkert eftir því. En ég gerði það, sem ég gat með því að benda á þær leiðir, sem ég áleit að ætti að fara. Og leiðin, sem átti að fara, það var ekki að fella gengið, heldur að ná greiðslujöfnuði, við áttum að setja einn punkt fastan og það var það sama og de Gaulle gerir nú, að fella ekki gengið. Til þess þurftum við að byrja á að ná greiðslujöfnuði. Og til þess að ná greiðslujöfnuði þurftum við í fyrsta lagi að framleiða eins mikið og við gátum og af eins mikilli hagsýni og við gátum. Í öðru lagi að eyða eins litlu og við gátum, — nákvæmlega sama og þegar bóndinn er að gera áætlun um sitt bú, það verða að standast a tekjur og gjöld. Og ef við hefðum getað náð þessum greiðslujöfnuði, þá hefði ekki þurft að fella gengið. Við gátum jafnað hlutina innanlands. Þetta var það, sem við þurftum að gera og þetta getum við ekkert frekar þó að við fellum gengið, enda hefur gengið ekki verið fellt fyrir útgerðina.
Ég ætlaði ekki að fara inn á gengismál nú, en hv. frsm. meiri hl. fór að tala um gengið, að það hefði þurft að fella það um 98–100% til að gera allt enn vitlausara heldur en það er nú, og er það þó full illt. Gengið var ekki fellt í fyrra fyrir útgerðina og ekki nú heldur, það er fellt fyrir ríkissjóðinn. Uppbæturnar sem sjávarútvegurinn fær eru teknar af sjávarútveginum sjálfum, 400 millj. í fyrra og nærri 800 millj. nú. Það eru notaðir peningar frá sjávarútveginum sjálfum til þess að fleyta honum áfram frá ári til árs, þetta er tekið af birgðunum og ef frystihúsin hefðu fengið þennan gengishagnað í fyrra, væru þau ekki eins illa stödd og þau eru nú. Það hefur aldrei verið eins hroðaleg útkoma á þeim. Og ef fiskútflytjendur fengju nú gengismuninn — ég kalla þetta ekki gengishagnað, heldur gengismun — þá gætu þeir rétt sig af að miklu leyti. Þeir fá hann ekki, hann er tekinn af þeim og þeir skildir eftir gjaldþrota í algjörum rekstrarfjárvandræðum. Það þarf 50% fleiri kr. nú til að reka verzlun og alla atvinnu. Hvar eigum við að taka þetta? Við vorum skildir eftir í fyrra þannig, fólkið eyddi sparipeningunum sínum, ómögulegt að fá lán eftir gengislækkunina og bátarnir og útvegurinn aldrei verr staddur heldur en eftir gengislækkunina þá, sama sagan mun endurtaka sig nú. Það er ekkert ráð til annað en að reyna einhvern veginn að bjarga þeim með því að koma lausaskuldunum í föst lán.
Þetta er ekki fyrir útveginn gert, sjávarútvegurinn er styrktur með gengishagnaðinum, og það er flutt inn fyrir fleiri kr. Það á að bjarga ríkissjóði. Meinið liggur í því, að rekstrarútgjöld ríkissjóðs sjálfs eru orðin allt of mikil. Það er ekki hægt að greiða þau nema á veltiárum. Þar er meinið, og það ættum við að laga og taka miklu stærri skref og viturlegri, heldur en bent var á hjá minni hl. fjvn. nú. Það er meinið, sem við þurfum að laga og verðum að laga, ef hægt á að vera að reka ríkisbúið.
Viðvíkjandi þessum liðum hér þá vil ég benda á það, að það er ætlazt til, að það séu tekin aðeins 10% af fiskibátunum til þess að greiða vexti og afborganir, en það er allt of lítið af bátum, sem eru nýlega keyptir. Nú er mér ekki ljóst, af því að ég er ekki trúnaðarmaður hjá ríkisstj., hvort ríkisstj. ætlar að leggja fram á móti fé úr ríkissjóði, til þess að þetta jafnist, eins og gert var t.d. í fyrra. Þá voru tekin 4%, lögð á móti eitthvað ca. 4%, þannig að það voru borguð 8%. En það er alveg ljóst, að þessi 10% nægja ekki til þess. En hvað stefnuna snertir, er ég ekki á móti því, að þessi leið sé farin. Ég held hún sé óhjákvæmileg. En ég álít, að það sé líka óhjákvæmilegt að lækka vextina hjá Fiskveiðasjóði, en það er náttúrlega hægt að gera það með öðru frv.
Viðvíkjandi ákvæðunum í 3. gr., um að taka 17% af óskiptum afla, sem á að ganga til útgerðarinnar til að standa undir auknum kostnaði vegna gengisbreytingarinnar, er ég ekki að segja, að það sé of mikið. Hitt er svo annað mál, að ég álit þetta sé alveg þýðingarlaust ákvæði. Þegar ég heyrði þetta, varð ég svolítið myrkfælinn við það, að þetta yrði okkur ekki til mikilla hagsbóta, vegna þess að ég vissi strax, að það mundi skapa óánægju hjá sjómönnum. Ef ætti að fara inn á að taka af óskiptu, þá var þetta fullmikið, til þess að það stingi ekki allt of mikið í augun gagnvart sjómönnunum. Nú hefur frv. verið breytt þannig, að samningar eiga allir að vera lausir. Þegar allir samningar eru lausir þá hefur þetta ekki neina úrslitaþýðingu, vegna þess að sjómenn geta heimtað hærri prósentu til skipta og þeir geta heimtað hærri kauptryggingu. Þannig að við, sem rekum bátana, stöndum alveg jafnilla að vígi, hvorki betur eða verr, þó að þessi ákvæði séu í lögunum.
Ég efast ekkert um, að þeir, sem hafa samið frv., hafa litið svo á, að þetta væri réttlátt, þetta væri til að bera uppi kostnaðaraukann vegna gengislækkunarinnar og ég efast ekki um, að þeim hafi gengið gott eitt til. En ég hef bara ekki trú á, að þetta hafi nokkra þýðingu, þegar að samningaborðinu er komið. Það gæti orðið til að totvelda samninga, ef til vill er það þegar búið að hleypa illu blóði í sjómenn. Reynsla mín af sjómönnunum er sú, að mér hefur alltaf gengið bezt að semja við hásetana og sjómannshjartað er gott, ég hef oft reynt það, því að þegar eitthvað hefur þrengt að hjá mér — ég býzt við, að fleiri útgerðarmenn geti sagt það sama þá hef ég alltaf fundið það, að þeir hlífast við að biðja um peninga meir en alveg fyrir brýnustu þörfum. Þannig að þeir fylgjast vel með ástæðum útgerðarmanna. Hitt er svo annað mál, að þeir vilja fá sitt kaup fyrr eða síðar og þurfa þess líka með, og ég lýsti því yfir hér í umræðum í vetur, að ég álít þá leið ekki færa að rýra kjör sjómanna. Ef vörur hækka, sem þær hljóta að gera, þá álít ég óhjákvæmilegt, að þeir verði að fá fleiri krónur til þess að geta lifað. Hitt er annað mál, að yfirmennirnir á skipunum geta í mörgum tilfellum komizt af með minna en þeir fá. Mín skoðun er sú, að annaðhvort eigum við að ákveða laun hinna ýmsu stétta í þjóðfélaginu með lögum eða hafa samningana frjálsa. En það heimskulegasta, sem gert er, er að ákveða einhvern vissan hluta af laununum lagalega og hafa svo einhvern hluta af þeim í frjálsum samningum, því að þá næst síður samræmi í hlutina en ef það er allt saman frjálst og samið um allt. Þess vegna hef ég alltaf álitið það rangt að vera að hringla með þetta orlof og gera það að pólitísku bitbeini. Ég lýsti því yfir hér í umræðunum, að þetta væri hrein heimska að fara að borga orlof á hlut, hvað hár sem hann yrði, eins og t.d. ef skipstjórnarmaður fengi borgað orlof á 1 millj. kr. tekjur, eins og þeir höfðu stundum á síldarskipunum; þetta er bara vitleysa. Það eðlilegasta er, ef um orlof er að ræða, að borga það af venjulegum launum. Og ef menn hafa margföld laun, þá þurfa þeir ekki nema á ein laun orlof. Við vinnum ekkert við þessi 17%, það yrði frekar til að gera okkur samningana erfiðari.
Viðvíkjandi 11. kafla laganna — þar er talað um hina ýmsu liði, sem á að verja útflutningsgjöldum sjávarafurða til. Þetta eru þeir liðir, sem sízt má afnema, megnið af þessu fer í að borga tryggingargjöld af fiskiskipum. Það má deila um, hvort við eigum að vera að leggja í Fiskveiðasjóð. Það má líka deila um það, hvort við eigum að leggja til byggingar á hafrannsóknaskipi, því lagt hefur ríkið til einhverra hluta ónytsamlegri en þess, en aðalupphæðin af þessu fer í vátryggingargjöldin, og það álít ég vera beint til hagsbóta fyrir útveginn. Það má deila um, hversu réttlátt þetta er, þetta útflutningsgjald, en sennilega getur enginn samið frv. þannig, að það megi ekkert að því finna viðvíkjandi því atriði. T.d. stingur það dálítið í stúf með lýsið, þannig að það er mjög lágt verð á því, en aftur er hátt útflutningsgjald á því. Enn fremur má benda á það, að það virðist vera talsvert hátt útflutningsgjald á freðfisknum, það er í raun og veru tvöfalt, því að svo er það líka á fiskimjeli og karfamjeli og þá er búið að leggja á fiskflökin. En þetta er atriði, sem er ekki stórvægilegt.
Í III. kafla laganna er komið inn á þá leið, hvernig ráðstafa á gengishagnaðinum. Og það er eins og ég sagði áðan, hann gengur að allmiklu leyti til þess að létta beinum framlögum af ríkissjóði eða framlögum, sem ríkisstj. var búin að lofa — það getið þið séð í frv. með því að lesa það — bæði til síldarútvegsins og aðallega síldarverksmiðjanna, hluti af því, sem á að taka af óskiptu.
Í fyrsta lagi vekur það athygli, að samkv. 17. gr. á nær allur þessi gengismismunur að ganga til síldarútvegsins. Fiskibátarnir fá sama og ekkert af honum, sáralítið. Þeir fá þann hlut auðvitað af þessu, sem á að ganga til að greiða tryggingagjöldin og þó er það mikill minni hl. vegna fiskibátanna, því að stóru skipin eru síldarskip. Í öðru lagi er talað um það, að þetta eigi að ganga til þess að byggja ný fiskiskip. Nú er það svo, að menn koma hér með frv. í þinginu um að byggja fleiri tugi af fiskiskipum. Við þurfum að hafa fiskiskip. En í dag eigum við marga báta og það allgóða fiskibáta, sem engar líkur eru til, að verði gerðir út í vetur og ég álít, að við verðum fyrst að nota þá báta, sem við eigum. Við verðum að nota þá til fulls, áður en við förum að eyða fé í að byggja nýja báta.
Það er talað hér um að leggja allmikla fúlgu til þess að greiða niður gengismun á skuldum báta erlendis. Ég er ekki að segja, að þetta sé óeðlilegt, en hinu skulum við ekki loka augunum fyrir, að menn, sem fara að láta byggja báta nú erlendis, verða að greiða þetta að öllu leyti, en hinir eru búnir að koma einhverjum hluta í íslenzkar krónur. En vera má, að þetta sé nauðsynlegt, en þegar til nýbygginganna kemur, verðum við að gera okkur það ljóst, að byggingarkostnaðurinn hlýtur að stórhækka. Við eigum fyrst að taka þau skip, sem eru vel nothæf og nota þau hér innanlands og svo að auka við flotann eftir þörfum. Það er ekki nein búmennska í því að henda góðum fiskiskipum eða láta þau liggja í höfnunum og verða ónýt, bæði vélar og annað og vera svo að byggja ný skip og eyða fjármagni í það. Við verðum að nýta hlutina.
Það er talað um, að sjávarútvegurinn beri sig ekki, og það er alveg rétt. En gerum við ekki undarlega lítið til þess að láta hann bera sig? Ég held einmitt, að við hér í Alþ. og ríkisstj. og hennar flokkar, sem hafa ráðið hlutunum, höfum gert furðulítið til þess og ýmsar ráðstafanir, sem gerðar hafa verið, hafa verkað í öfuga átt. Það er náttúrlega sjálfsagt að reyna að reka sjávarútveginn með eins mikilli hagsýni og hægt er, en ég held, að það hafi alls ekki verið gert. Það hefur verið fjölgað mikið sköttum á útveginn. Ég taldi hér einu sinni upp 25 útgjaldaliði, sem var hlaðið á bátana, og ég ætla ekki að fara að rekja þá skatta nú. Í fyrsta lagi hefur fjárfestingin í útveginum alts ekki verið nægilega vel athuguð. Menn héldu áfram að kaupa dýra og stóra síldarbáta löngu eftir að okkar sérfræðingar fóru að spá því, að síldaraflinn mundi fara minnkandi. Það var haldið áfram að byggja síldarverksmiðjur. Ég veit ekki betur en nú sé verið að selja vélarnar úr einni stórri verksmiðju, sem var verið að byggja á Seyðisfirði, selja þær aftur til útlanda eða reyna að láta verksmiðjuna taka þær aftur, en eftir standa veggirnir og skilrúmin. Hvaða vit er í þessu? Eins er með að hafa ekki betra skipulag á uppbyggingu flotans, láta leggja allt fjármagnið í það að byggja síldarskip, en vanrækja fiskibátana á meðan. Þetta var ekki hyggilegt.
Svo hefur ýmsum útgjöldum verið hlaðið á útveginn. Það má t.d. taka launaskattinn. Við höfum tvisvar, við Jón Skaftason, komið með till. um að afnema hann. Það eru lagðir tugir millj. á útveginn til þess að byggja hús. Ég er ekki að segja, að það þurfi ekki að byggja hús, en það er ákaflega heimskulegt að leggja beinan skatt á rekstur, í mörgum tilfellum á taprekstur frystihúsa og báta, til íbúðarhúsabygginga. Það fé átti að koma eftir öðrum leiðum og hefði átt að koma í gegnum sparifé almennings. En menn vilja ekki eiga peninga. Þeir eiga alltaf von á því, að þeir verði felldir í verði. Í öðru lagi eru aðstöðugjöldin, sem eru lögð á útveginn. Yfirleitt voru bátarnir útsvarsfríir, ef þeir voru reknir með tapi. Nú var ákveðið af þessari ríkisstj. að leggja aðstöðugjöld á og það á taprekstur. Orlof hefur verið hækkað. Lagaákvæði hefur verið sett um það, að útgerðin sé skyldug að greiða hlut, ef einhver yfirmanna verður veikur á skipi. Þetta getur í mörgum tilfellum numið geysifjárhæðum hjá stýrimönnum, skipstjórum og vélamönnum. Það þarf að taka mann í þeirra stað, ef þeir verða veikir, og greiða þeim manni fullt kaup og hlut í 3 mánuði. Það er eðlilegt og sanngjarnt, að þeim séu greidd föst laun, en það er heimskulegt að hafa hlutaákvæðin, og það hefur oft verið talað um að lækka þau, en ekki fengizt. Þá hefur ekkert verið gert til að auðvelda útgerðarmönnum og frystihúsum lánveitingar. Þeir verða að borga há stimpilgjöld og þinglestrargjöld af hverju einasta smáláni, sem þeir fá. Með skynsamlegri löggjöf væri hægt að ákveða þetta lagalega og sleppa þessum sköttum. Vextir hafa verið hækkaðir, og þegar þessi stjórn tók við, virtist hún hafa ótrú á þessu gamla kerfi, sem hefur verið búið við, lágum vöxtum og að reynt sé að hamla á móti gengislækkunum nema í ýtrustu neyð. Þetta var rifið niður. Þessu var gerbreytt. Það átti að byggja upp nýtt kerfi, sem var kallað viðreisn, þetta viðreisnarkerfi virðist liggja í háum vöxtum og endurteknum gengislækkunum. En þetta gamla kerfi var hreint ekki eins vitlaust eins og núverandi stjórn hélt, að það væri. Við bösluðum þetta áfram. Ég byrjaði að gera út árið 1957 og það var auðveldara heldur en nú. Það var ekki vitlaust að hafa vextina lága a atvinnuvegunum og á stofnlánunum. Það var rétt leið, og það var skynsamlegri leið heldur en hafa háa vexti og endurteknar gengislækkanir. Það var byrjað að rífa niður og gerbreyta öllu. Það er ekki víst, að það gamla sé eins rangt og menn halda, menn geta gert ýmsa hluti í fljótræði.
Þá má t.d. athuga, hvort það væri ekki hægt að lækka verð á olíu. Ég hef satt að segja ekki tekið afstöðu til þess máls og hef ofurlítið verið að reyna að kynna mér það og þær upplýsingar, sem ég hef fengið, benda til þess, að það muni vera hægt og fyrst og fremst liggi það í minni fjárfestingu. Það er árlega fest stórfé í olíudreifingunni og það mundi vera hægt að hafa það minna. Hitt er svo annað mál, að við höfum dálitla ótrú á ríkisreknum fyrirtækjum, þar vill oft gæta vanrækslu. En ef þetta væri rekið af dugnaði og hagsýni, hef ég trú á því, að það væri hægt að lækka eitthvað olíuverðið með því að reka félögin í einu lagi. Og yfirstjórn þessara olíufélaga er dýrari í þrennu lagi heldur en einu. Ég held, að það væri hægt að komast af með minni fjárfestingu og minni kostnað við yfirstjórn með því að sameina þau, þannig að á þann hátt væri hægt að lækka olíuverðið eitthvað. Það má vera að það yrði ekki stórkostlega.
Hafnargjöld eru víða mjög há, mjög tilfinnanlega há, t.d. eins og í Grindavík og fleiri stöðum, og þau eru misjafnlega há. Vafalaust væri eitthvað hægt að gera til þess að draga úr kostnaði á því sviði.
Rafmagnskostnaðurinn í frystihúsunum er óhóflega hár. Hann er svo þung byrði á frystihúsum, sem hafa lítið magn, að það er lamandi. Vitanlega þurfa þessar rafstöðvar að fá greitt fyrir rafmagnið, við vitum það.
En ég held, að það væri hægt að lækka verðið á því til frystihúsanna, því að það er svo lítill munur á því og rafmagninu, sem við notum til heimilanna, að rafmagnsverðið, sem frystihúsin verða að borga, er óhóflega hátt. Ég hef séð þessa reikninga og þeir eru algerlega lamandi, skipta hundruðum þúsunda á mánuði. Þegar um lítið fiskimagn er að ræða, getur verið útilokað að reka frystihúsin.
Það verður að taka til yfirvegunar, hvað hægt er að spara. Það er takmarkað gagn að því að fleygja 40 millj. t.d. í frystihúsin. Þetta kemur seint og síðar meir, og þau eru í vandræðum. Það þarf að taka kerfið allt, strika út eitthvað af skuldunum eða þá að hætta að starfrækja þau fyrirtæki, sem eru í greiðsluþroti, og koma rekstrinum á heilbrigðan grundvöll; reka eitt frystihús, þar sem það hentar, en ekki tvö. Þetta þarf allt saman að endurskoða og reka af meiri hagsýni.
En þið sannið það, að þó að það sé farið inn á þessa leið, að fella gengið nú, til að bjarga ríkissjóðnum og losa ríkisstj. við að standa við fyrirheit um ýmsa styrki, sem var lofað á þessu ári, að þetta verður samt engin varanleg lausn fyrir útgerðina. Við getum litið á hag bátanna. Það er gert ráð fyrir, að fiskverðið hækki um þessi 17%, sem á að taka af óskiptu og 8% í viðbót eða alls 25%. Svo koma sjómennirnir og heimta sinn hluta af þessu. Við skulum segja, að þeir vilji fá 12%. Nú er gert ráð fyrir, að útgerðarkostnaðurinn hækki um 17% af óskiptum afla eða sem nemur því. Þá eru bátarnir farnir að bera sig verr heldur en þeir gerðu áður, þannig að það verður ekki lausnin. Það má vera, að það greiði eitthvað úr hag frystihúsanna, en það verður ekki lengi, því að aukinn rekstrarfjárskortur mun þjarma enn meira að þeim.
En það er ekki til neins að tala um þetta nú. Það er gert, sem gert er. Vonandi verður reynt að hindra það, að þessi leið verði farin aftur. Það þarf að verja þessum gengismismun einhvern veginn og ég hef bent á nokkra punkta, sem við erum óánægðir með. Í heild erum við óánægðir með þessa fjármálastefnu og þetta fjármálakerfi, eins og það er rekið og álítum, að breytinga sé þörf, og eftir atvikum sjáum við ekki ástæðu til þess að greiða atkv. með frv., eins og það liggur fyrir, og leggjum til, að frv. verði vísað frá með dagskrá, og þeirri dagskrá verður útbýtt hér með grg. og sennilega mjög fljótlega.