23.04.1969
Sameinað þing: 43. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í D-deild Alþingistíðinda. (3373)
168. mál, sumaratvinna framhaldsskólanema
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Hv. 6. þm. Reykv. er svo oft búinn að skrifa þessi ósannindi sín í Þjóðviljann, að mig furðar ekkert á því, þó hann japli á því hér enn þá, en það sem hann las, sannaði nákvæmlega það, sem ég var að halda fram. Það voru ekki gefin nein fyrirheit um sérstakar ráðstafanir af hálfu ríkisstj., heldur var lofað að hafa samráð við fulltrúa verkalýðsins og vinnuveitenda, eins og hv. þm. las upp, um ráðstafanir, sem stuðluðu að aukinni atvinnu fyrir skólafólk. Þetta var gert. Það var sett upp atvinnumálan. í samráði við fulltrúa launþeganna, verkalýðsins, og vinnuveitenda. Og ég sagði áðan, að það kom engin einasta tillaga frá fulltrúum launþega um neinar sérstakar ráðstafanir af hálfu þessarar n. til þess að tryggja skólafólki atvinnu. Þess vegna er það vonlaust verk fyrir þennan hv. þm. að koma hér og tala um, að það þýði ekkert fyrir verkalýðinn að hafa samvinnu við ríkisstj., sem þannig efnir loforð sín. Ef þessi hv. þm. getur bent mér á einhverja einustu till. í þessari n., sem átti að stuðla að þessu eða fram yfir það, sem n. gerði og ég gerði grein fyrir áðan, að hafa samráð við sveitarstjórnirnar hér í kring, þá er rétt að hann geri það. (Gripið fram í.) Í samráði við fulltrúa launafólksins og vinnuveitenda, eins og hv. þm. las. Í samráði við fulltrúa launafólksins. (Gripið fram í.) Það eru ósannindi, það er ekki einhliða loforð, því að það var lofað því að hafa samráð við fulltrúa verkalýðsins um þetta. Verkalýðurinn átti 2 fulltrúa í þessari n. og þegar samið var nál. í lok ágústmánaðar um störf þessarar n., var forseta Alþýðusambandsins afhent þetta nál., og þar er grg. um störf n., ýtarleg grg. um störf n. Og þarna gerði ég ráð fyrir því, að stjórn Alþýðusambands Íslands hefði fulla aðstöðu til þess að gera sér grein fyrir störfum n. Ég get hins vegar ósköp vel skilið, að hún hafi ekki talið þennan hv. þm. svo merkilegan, að hún þyrfti að vera að sýna honum það.