19.12.1968
Neðri deild: 38. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (339)

89. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu

Frsm. minni hl. (Björn Pálsson):

Herra forseti. Mér var sagt, að hv. 10. þm. Reykv. hefði eitthvað verið að deila á mig fyrir það, að ég vildi eignast skip á kostnað sjómannanna. Það er fjarri því. En ég vildi spyrja hv. þm. að því, hvernig í ósköpunum við ættum að eignast skip, ef það væri ekki einhvern veginn greitt með andvirði afla. Hvort tekin eru 10% af óskiptu, skiptir ekki máli, því að ef tekinn er einhver hluti af óskiptu, þá geta sjómennirnir fengið fleiri prósentur af því, sem eftir er, og við það er miðað og satt að segja, eftir því sem skipin hafa stækkað, tækjum fjölgað og veiðiútbúnaður orðið dýrari, hefur engan veginn verið tekið fullt tillit til þess. Það er alls ekki verið að tala um það. Þeir vilja hafa sínar prósentur, þó að það séu keypt dýrari tæki og dýpri nætur og fullkomnari skip. Við vitum það, að á þessi ódýru skip, þessa eldri og minni báta, hafa menn ekki fengizt, neina þeir hafi átt þá sjálfir og þeir hafa ef til vill borið sig hvað bezt. En það var útilokað að reka þá nema menn ættu þá sjálfir. Annars fengust menn ekki til þess að vera á þeim.

Tilefnið til þess, að ég bað um orðið aftur, var yfirlit, sem hæstv. sjútvmrh. kom hér með. Ég er ekki í nokkrum vafa um, að það hafa verið hagfræðingarnir, sem hafa unnið þetta verk og lagt hér fram þessar tölur, sem hæstv. ráðh. las hér upp. Það er út af fyrir sig ekkert um það að segja. En við skulum athuga það, að þar eru þeir að krítisera sín eigin verk, þannig að við verðum að taka þessum upplýsingum mjög varlega. Ef þeir fara að kveða upp einhvern dauðadóm yfir því, sem þeir hafa gert, þá er það ákaflega erfitt fyrir þá. Þeir verða að deila á sjálfa sig. Þeir segja, að tapið hjá sjávarútveginum hafi verið 1640 millj. Ég vil ekki viðurkenna, að þetta sé rétt. Í fyrsta lagi eru þarna í allar afskriftir og við vitum það vel, sem gerum út báta og eigum vélar, að ef við getum afskrifað fullt, teljum við það gróða og það verulegan gróða. Við megum afskrifa skipin um 15%, ef meðaltal er tekið af heildarverðinu, og það er gróði. Um 700 millj. eru í afskriftum. Í öðru lagi á þarna eftir að draga frá styrki. Ég veit ekki, hvort á að kalla það styrki, en það er þetta, sem sjávarútvegurinn er að afhenda sjálfum sér gegnum endurteknar gengislækkanir og eitthvað kemur ef til vill frá ríkinu. Ef þetta eru þar að auki að nokkru áætlaðar tölur, gæti ég trúað, að þegar tekið yrði tillit til þessara liða, yrði ekki eftir nema 600–700 millj. kr. sem tap, enda væri það allnóg.

Þá er annað um vextina. Vextirnir, sem útgerðin borgaði, voru 375 millj. og ekki kæmi til greina að lækka þá nema um 20%. En það er bara það, að vextirnir hafa nú raunverulega hækkað um 50% frá því að þessi viðreisnarstjórn tók við völdum. Og væri nokkur glæpur að lækka þá jafnmikið og þeir hafa hækkað?

Einhvern veginn bösluðumst við við það áður. Nú eru útlánin í heild eitthvað 11–12 milljarðar, þannig að heildarvextirnir af þeirri upphæð mundu verða nálægt milljarði. Hver borgar þessa vexti? Það var alveg réttilega fram tekið hjá hv. 1. þm. Austf. áðan. Það kemur allt niður á framleiðslunni. Ef launamennirnir, sem ríkið borgar kaup, þurfa að borga hærri vexti af skuldum sínum, þurfa þeir að fá hærri laun. Ef bændur þurfa að borga hærri vexti, þurfa þeir meira fyrir mjólk og ket. Ef neytandinn þarf að borga meira fyrir mjólk og ket, þarf hann að hafa hærra kaup. Þar að auki eru þessar 375 millj. engan veginn endanleg tala, eins og hv. 4. þm. Austf., Lúðvík Jósefsson, benti réttilega á, því að þarna er ekki bara um einhver stofnlán og föst lán að tala. Það er af ótal mörgu í gegnum alla mögulega liði, olíu, veiðarfæri og allt mögulegt, sem vextir koma inn í. Það er einfaldlega þannig, að atvinnuvegirnir verða að borga þennan eina milljarð, beint eða óbeint. Við skulum ekkert vera að blekkja okkur á því. Og 50% af þessum eina milljarði eru 400-500 millj. kr. og þetta vefur upp á sig eins og snjókúla: Þetta er borgað eitt ár; það þarf að borga meira næsta ár o.s.frv. Þetta er miklu hættulegri liður en þessir gáfuðu hagfræðingar hafa nokkurn tíma reiknað með.

Annars eru þessir ráðh. okkar ágætis menn og vilja vel og ég hef aldrei verið að hnýta neitt í þá, en ég vildi nú ráða þeim eitt heilræði og það væri að losa sig við alla hagfræðinga, setja það ákvæði í stjórnarskrána, að hagfræðingar mættu ekki koma nálægt fjármálum. Ef þessir menn hefðu eitthvert vit á fjármálum, þá væru þeir ekkert að hökta í þessari hagfræði. Þeir væru fæddir hagfræðingar og þá þyrftu þeir ekkert að vera að læra neinar bókstafsteoríur í Frakklandi eða einhvers staðar annars staðar, þeir gætu bjargað sér sjálfir og þyrftu ekki að vera í þjónustu hjá ríkisstj. Þó þeir hefðu ekki nema fjármálavitið mitt, þyrftu þeir ekki að vera að vinna fyrir 200–300 þús. á ári. Ekki datt de Gaulle í hug að fara neitt eftir hagfræðingum, þegar hann ákvað að fella ekki frankann. Nú getið þið séð, hversu gáfuleg þessi hagfræði er. Þessir herrar byrjuðu á að hækka vextina um þriðjung og meira um tíma. Krónan stóð raunverulega þannig, að 30 kr. voru í dollarnum, þegar stjórnin tók við. Nú er búið að minnka verðgildi krónunnar þrefalt. Ef sparifjáreigendur hefðu enga vexti fengið af þessum peningum frá því ríkisstj. tók við og 100 kr. væru í sama verðgildi, um 30 kr. dollarinn, væru þessar 100 kr., sem þeir áttu fyrir 10 árum, orðnar nú í krónutölu eitthvað um tvö hundruð kr., en hver kr. er þrefalt minna virði, þannig að mannaumingjarnir, sem áttu spariféð, hafa tapað 1/3 auk vaxta. Það hefði verið betra fyrir þá að fá ekki einn einasta eyri í vexti og óbreytt gengi. Þetta átti að vera til að auka spariféð, en það er búið að ganga þannig frá því, að það vill enginn eiga sparifé. Er þetta viðreisnarstefnan? Er þetta kenning hagfræðinganna? Þetta er endirinn. Þetta er ekki af því að þessir menn, sem stjórna, vilji illa. Nei, það er fjarri því. En þetta er svo heimskuleg aðferð. Það á fyrst og fremst að tryggja verðgildi krónunnar, bæði gagnvart neytendunum og sparifjáreigendum. Það er frumskilyrði, en ekki hvort þeir fá háa vexti eða ekki. Kaþólska kirkjan taldi a sínum tíma vexti þjófnað. Það var ekki að öllu leyti rangt hjá kaþólsku kirkjunni á þeim tíma. Hún viðurkenndi ekki vexti. Þess vegna gátu Júðarnir orðið ríkir, af því þeir tilheyrðu ekki þeim söfnuði. Það er þannig, þegar maður gengur hér um bæinn og spjallar við ýmsa eins og ég geri, þá segja þeir: Litlu þjófarnir eru uppi á Skólavörðustígnum, en stóru þjófarnir eru þarna í húsinu og benda á þinghúsið. Fólkið veit þetta. Það er rænt. Og þessir vesalings menn, sem hafa verið að strita alla ævina og áttu 1–2 millj. í peningum, vöknuðu einn morgun við það að búið var að taka þriðjung af eignum þeirra allt í einu og helming á einu ári. Milljón orðin í raun og veru ekki nema sem svaraði 1/2 millj. fyrir ári síðan. Þetta er nú stjórnin hjá okkur. Það er ekki von, að við séum vel látnir hjá aumingja fólkinu, sem var að reyna að spara.

Nei, þetta er vitlaus hagfræði; það er bezt að hafa enga bókstafshagfræðinga til þess að stjórna þjóðinni, sem hafa lært einhverja hugmyndafræði úti í löndum, heldur hyggna menn og eðlisvitra, sem þurfa þá eigi að láta telja sér trú um, að vaxtagreiðslur séu mun lægri en þær raunverulega eru.

Svo er launaskatturinn, sem útgerðin verður að borga. Ætli hann hafi ekki verið lengst af um 40 millj. undanfarin ár? Svo er aðstöðugjaldið eitthvað svipað. Svo er stimpilgjald og þinglestur af lánum. Það var á síðasta ári eitthvað 97 millj. Ætli útgerðin borgi ekki allt að helming af því, það væri hægt með einföldum lögum að sleppa útgerðinni við það. Náttúrlega minnka tekjur ríkissjóðs, en skoðun mín er sú, að við eigum að búa eins vel að atvinnurekstrinum, eins og hægt er, en við eigum líka að segja við atvinnurekendurna: Þið verðið að láta hlutina bera sig. Ef þið getið það ekki, verða aðrir að taka við.

Viðvíkjandi innflutningsgjöldum og öðrum sköttum, sem lagðir eru á útgerðarvörur, eru þeir miklu meiri en þessir ágætu hagfræðingar gefa upp. Það er 71/2 % söluskattur á allri olíu og svo eru innflutningsgjöld á veiðarfærum. Hitt er svo annað mál, ef þetta er afnumið, þá minnka tekjur ríkissjóðs. En ég álít betra að leggja minni álögur á atvinnureksturinn og segja við atvinnurekendur: Þið verðið að láta atvinnureksturinn bera sig.

Þá er það rafmagnskostnaðurinn. Hann er ekkert lítill liður. Ég held, að 10. þm. Reykv. hafi verið að gera lítið úr því. Hann er bara ekki lítill liður, líklega svona 100–200 þús. á mánuði fyrir meðalfrystihús. Ef það væri hægt að lækka hann, þótt ekki væri nema um helming, væri það stór liður. Ætli það séu ekki 1–2 millj., sem stærri frystihúsin verða að borga fyrir rafmagn? Það gæti verið, að rekstrarhallinn hjá þeim sé ekki meiri.

Þá var hv. 10. þm. Reykv. að tala um félagsstjórn fyrirtækja — það er allt í lagi með það. En haldið þið, að það yrði betra að skjóta á fundi um hvert atriði? Ég held, að skipstjóri kunni því illa að fara að skjóta á fundi með hásetum, um hvar hann ætti að leggja net og línu o.s.frv. Það gætu orðið skrýtilegar deilur út úr því og ég held, að hv. 10. þm. Reykv. kynni því illa, ef hann ætti að stjórna skipi með félagsstjórn og ætti svo að beygja sig fyrir öllum samþykktunum. Ef ég þekki hans skaplyndi rétt, færi hann að brýna raustina. En í vissum tilfellum getur það vel komið til greina og ekkert nema gott um það að segja, að menn fylgist með stjórn fyrirtækja og það gera sjómennirnir raunar. Þeir fylgjast nákvæmlega með, hvernig útgerð gengur í hvert skipti og taka meiri þátt í erfiðleikum okkar heldur en nokkrir aðrir.

Það er verið að tala um 18–20% kjaraskerðingu nú, sé reiknað með sama kaupi í krónutölu. Satt að segja hefur mér aldrei dottið í hug, að ríkisstj. hafi búizt við því að hafa óbreytt kaup, hvað sem um það er sagt. Það eru þessi 17%, sem verið er að tala um í frv. Þau eru orðin vitaþýðingarlaus, þegar búið er að gefa alla samninga lausa. Ef ríkisstj. vildi skipta sér eitthvað af launakjörum sjómanna, væri það eina, sem réttlætanlegt væri, að ákveða eitthvert visst hlutfall milli háseta og yfirmanna, ekki prósentuna, heldur eitthvert ákveðið hlutfall. Skipstjórinn ætti t.d. að hafa 11/2 hlut o.s.frv. Hann hefur tvo nú og raunar miklu meira á síldarskipunum. Hann hefur 8% og svo hafa þeir fast kaup og alls konar fríðindi. En ég get endurtekið það, að ég álít, að hlutur hásetanna megi ekki vera lakari en hann hefur verið. Það sé alveg lágmark, sem hann hefur verið undanfarin 2 ár, og ef lífsnauðsynjar eiga að hækka, þurfa þeir að fá hærra kaup.

Það er verið að tala um það, að kaupið sé lágt og vitanlega væri æskilegt að geta borgað fólkinu hærra kaup og 1. þm. Austf. var að minnast á, hve húsaleiga væri há og mikill hluti launanna færi í hana. Það er vafalaust rétt að reikna þannig. En það er ekki hægt að búast við því, að menn geti keypt allt í skuld. Það var a.m.k. ekki svo, þegar ég var að alast upp og vinna mig áfram í lífinu, að ég gæti byggt yfir mig fullkomið hús, teppalagt o.s.frv. í byrjun. Áður en menn mynda heimili, verða þeir vitanlega að eignast eitthvað. Það er ekkert vit í því fyrir ungt fólk að fara að reisa heimili án þess að eiga fyrir hálfri íbúð og helzt allri. Við verðum aldrei svo ríkir, að við getum veitt unga fólkinu þetta, að það geti keypt alla skapaða hluti fyrsta árið, sem það er að mynda heimili, án þess að eiga neitt til áður. Hvernig er hægt að gera þær kröfur? Við verðum aldrei svo auðug þjóð. Enda er fólkið ekkert of gott til þess að vera búið að afla einhvers, áður en það myndar heimili. Við getum nú ekki beint reiknað þannig að draga vexti af heilli íbúð eða heilu húsi frá kaupi. Fólk verður að vera ráðdeildarsamt og sparsamt. En ég held, að ef við gerum allt, sem við getum, til að lækka rekstrarkostnað útvegsins, þá er ég sannfærður um, að við komumst töluvert í áttina að láta hann bera sig.

Svo er önnur hlið málsins og það er að reka útveginn af meiri hagkvæmni en við gerum. Þetta hefur verið algerlega skipulagslaust, bæði hvað veiðarfæri snertir og annað. Það er ekkert vit í því, ef útlit er fyrir litla síldveiði, að láta mikið fleiri báta stunda síldveiðar en skynsamlegt er, kaupa sér nætur fyrir 2–3 millj. o.s.frv. Það verður að vera einhver stjórn á þessu. Við þurfum að reyna að kosta minna til, leggja minni skatta á útgerðina, lækka vextina, gera reksturinn á allan hátt sem hagkvæmastan, þá komumst við langt. Ef það dugir ekki til, verða að koma einhverjir beinir styrkir. En það er lakasta leiðin, sem farin hefur verið, sem eru endurteknar gengislækkanir. Enginn trúir ríkinu fyrir sparifé sinu. Það skapar öngþveiti í efnahagsmálum okkar og svo mikinn lánsfjárskort, að ógerlegt er að reka fyrirtækin og það er þannig nú. Þeir sem reka fyrirtækin, eru að gefast upp. Það er eðlilegt. Og þessi síðasta ráðstöfun var eins og að hella olíu í eld. Hafi gengislækkun einhvern tíma verið hættuleg, var hún það nú. Það var geysilegur rekstrarfjárskortur fyrir og svo kemur gengislækkun, sem svarar til þess, að við þurfum 50% meira rekstrarfé. Það er alveg sama, hvort það er verzlunarfyrirtæki eða útgerðarfyrirtæki. Rekstrarfjárskorturinn hlýtur að verða drepandi fyrir fyrirtækin. Þess vegna varaði ég ríkisstj. við að gera þetta. Þeir áttu að haga sér eins og de Gaulle. Því miður eru þeir ekki nógu líkir de Gaulle. Þeir áttu að segja: Gengið verður ekki fellt og þá átti að miða allar ráðstafanir við það. Þá var fyrsta skrefið að ná greiðslujöfnuði með því að framleiða sem mest að við gátum með sem minnstum tilkostnaði. Eyða sem allra minnstu. Þá stóð fólkið með ríkisstj. langt út fyrir hennar flokka. Þá hefðu menn reynt að hjálpa henni.