08.05.1969
Sameinað þing: 48. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í D-deild Alþingistíðinda. (3401)
171. mál, fæðingardeild Landsspítalans
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég skal ekki koma í veg fyrir, að málið fái lausn á þessum drottins degi, nóg hefur það dregizt fyrir það. Það er kortér eftir, og ég mun áreiðanlega ekki nota það í þetta sinn.
Hæstv. heilbrmrh. brá á leik til þess að reyna að koma á mig höggi, af því að ég hafði um sinn gegnt störfum heilbrmrh., 1956. Það var einmitt þá, sem menn komu auga á það, að Fæðingardeildin, sem hafði tekið til starfa 1949, fyrir 7 árum þá, var orðin of litil. Og þá var gerð ráðstöfun til þess, að húsameistari ríkisins gerði þegar frumteikningar að viðbótarbyggingu til þess að bæta úr þessu. (Gripið fram í.) Það er svo fjarri því, að ég muni dagsetningarnar frá þeim tíma, en hæstv. ráðh. hefur kannske litið á dagana þar til þess að glöggva sig á, hvaða dag það hefur gerzt, að frumteikningarnar voru gerðar. En það má vel vera, að ég eigi ámæli skilið fyrir að hafa ekki knúið á um byggingarframkvæmdir þá, meðan ég var ráðh., en það voru 21/2 ár. En hve miklu hneykslaðri mætti þá ekki núverandi hæstv. heilbrmrh. vera, sem hefur verið hvað mörg ár, nú man ég ekki árin heldur. Það eru ekki aðeins dagsetningar sem detta úr mér, heldur hvað eru það mörg ár, sem hæstv. heilbrmrh. núverandi hefur haft til þess að bæta við frumteikningarnar og hefja byggingu. En það hefur bara ekki orðið af því. Við höfum látið ýmislegt annað sitja fyrir, m.a. þessa dularfullu kringlu þarna inn við Landsspítalann. Nú það er áreiðanlegt, að svo brýn sem þörfin var fyrir stækkun 1956, er hún augljóslega miklu brýnni nú. Læknarnir, sem hér hefur verið vitnað til, segja að sjúkrarýmisþörfin hafi aukizt og margfaldazt og við hvað? Við starfsemi krabbameinsfélaganna, við leit þeirra að sjúkdómnum á byrjunarstigi og það hefur gerzt núna á hinum seinni árum. Þá varð þörfin brýnni og margfaldaðist, en henni var ekki sinnt eftir sem áður. Ég skal vera sökudólgur með hæstv. núverandi ráðh., en áreiðanlega veitir ekki af að létta svolitlu af honum, en aðalsökina ber hann á vanrækslu síðari ára í þessu efni. Hæstv. ráðh. sagði, að það væri ekkert vit að byrja á þessari byggingu, fyrr en búið væri ekki aðeins að afla fjár til þess að steypa það upp, það yrði að vera til fjármagn fyrir efni allrar byggingarinnar. Ég held nú, þó að gott væri að hafa fé í lófanum, áður en byrjað væri að byggja, þá væri það nú forsvaranlegt, þegar lífsnauðsyn rekur á eftir um byggingu að byrja á henni. Og fjárveitingavaldið er aðilinn. Þó það væri ekki til fé í hendi nema til þess að steypa bygginguna upp, þá held ég, að það væri forsvaranlegt að byrja og treysta því, að það yrði séð fyrir fjármagni til þess að ljúka henni. Ég beld líka, að það hljóti að vera hægt að hraða fullnaðarteikningum á viðbótarbyggingu við þessa sjúkrahúsdeild á skemmri tíma en til vorsins 1970. Ég held að það hlyti að vera hægt að gera það núna á þessu vori og fram eftir sumri og byrja á byggingunni, þannig að búið væri að koma henni á stað fyrir næsta vetur. Og byggingum er í venjulegu árferði haldið áfram að vetrinum í Reykjavík með þeirri aðstöðu sem hér er til. Hins vegar gleður það mig, að það hefur komizt skriður á þetta mál, eins og hv. 11. þm. Reykv. rifjaði upp áðan og það er fyrst og fremst áhuga kvennanna að þakka, sem hafa ýtt við Alþ., ýtt við byggingarnefnd spítalans, ýtt við hæstv. ráðh. og komið málinu af stað. Og ég er alveg viss, að þær láta ekki málið niður falla, fyrr en ráðizt hefur verið í byggingar, sem eru ekki neinar bráðabirgðabyggingar.
Málið hefur haft mikil áhrif við það, að því var hreyft hér á Alþ., og það er alveg bráðnauðsynlegt. Það væri skaðsamlegt fyrir málið, ef Alþ. afgr. það ekki fyrir þinglok. Hæstv. ríkisstj. segist vilja gera vel í þessu, ég skal ekki vefengja það. En hún þarf að hafa það svart á hvítu bak við sig, að hún hafi þingvilja fyrir málinu. Að vísu þarf hún ekkert um það að efast, en það þarf að liggja fyrir. Og það, sem þarf því að gera, er að samþykkja aðra hvora þá till. eða till., sem væri samin upp úr þeim till., efnislega eitthvað á þessa leið:
Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að hraða sem mest má verða stækkun Fæðingardeildar Landsspítalans. Tryggt verði með stækkuninni, að sérstök kvensjúkdómadeild með fyllstu aðstöðu til nútíma geislalækninga fái góða aðstöðu og nægilegt húsrými í hinni nýju byggingu.
Þetta og þetta eitt er viðunandi lausn á málinu og þolir enga bið. Alþ. hlýtur að láta þann vilja sinn í ljós , að þetta verði lagt fyrir hæstv. ráðh. að framkvæma.