14.05.1969
Sameinað þing: 50. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í D-deild Alþingistíðinda. (3415)

175. mál, heyrnleysingjaskóli

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Mér er ánægja að því að geta skýrt frá því, að ríkisstj. hefur fullan skilning á þeim mikla vanda, sem er á ferð í kennslumálum heyrnleysingja, og hefur undirbúið lausn á því máli, einmitt í þeim anda, sem hv. ræðumaður lýsti í niðurlagi ræðu sinnar.

Það er verið að undirbúa, að hægt sé í sumar að byggja kennsluhluta fyrirhugaðs Heyrnleysingjaskóla á þeirri lóð, sem Reykjavíkurborg á sínum tíma úthlutaði til byggingar fyrir heildarskólabyggingu og er þá ætlunin að nota það húsnæði, sem nú er í notkun fyrir skólann allan, sem heimavistarhúsnæði, þannig að það mundi aukast líka. Ríkisstj. er að vinna að fjáröflun í því skyni, að hægt verði að hefjast handa um byggingu þessa kennsluhluta þegar í vor, eins og hv. þm. gat um og er mér ánægja að geta staðfest, að það er stefna ríkisstj. að sinna þessum mjög brýnu vandamálum einmitt á þann hátt, sem hv. þm. gerði að umtalsefni í ræðu sinni. Ég get alveg tekið undir allt það, sem ég heyrði hann segja um þann vanda, sem hér er á ferðum og fullvissa hann og aðra hv. þm. um það, að ríkisstj. mun leggja sig alla fram um að greiða úr þessum vanda á þann hátt, sem hann og ég höfum nú lýst.