23.04.1969
Sameinað þing: 43. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í D-deild Alþingistíðinda. (3434)

178. mál, lánasjóður íslenskra námsmanna

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Ég er annar flm. að þessari till.; fyrri flm. Björgvin Salómonsson á nú ekki sæti á þingi. Mér þykir því rétt að fylgja henni eftir með fáeinum orðum.

Tilefni þess, að till. var flutt, var raunar dálitið sérkennilegt, og það hefði verið ákaflega skemmtilegt, ef hæstv. forsrh. hefði verið viðstaddur til þess að ræða þetta mál. Þegar hann kom heim af Norðurlandaráðsfundi, skýrði hann frá því, að þegar hann kom til Svíþjóðar til þess að sækja fundinn, hefðu íslenzkir stúdentar, sem eru við nám í Stokkhólmi, setið fyrir honum og gert honum grein fyrir mjög alvarlegum fjárhagsvandamálum sínum og þeir höfðu einnig greint hæstv. ráðh. frá því, að þeir hefðu leitað til sænskra yfirvalda um aðstoð. Hæstv. forsrh. Íslands tók þetta mál upp, að því er hann sagði sjálfur, á Norðurlandaráðsfundi og fór þess á leit við sænsk stjórnarvöld, að þau legðu fram úr sínum sjóðum, það sem á vantaði, að námslán og námsstyrkir til íslenzkra námsmanna væru hliðstæðir því, sem sænskir námsmenn hlytu.

Ég hef horft upp á mörg viðbrögð íslenzkra stjórnarvalda í þeim vanda, sem við hefur verið að etja nú um tveggja ára skeið, en ég hef aldrei séð smærri og lágkúrulegri viðbrögð en þessi. Þarna er norræn samvinna misnotuð til þess að fara í betliferð til stjórnar vinaríkis um, að hún veiti íslenzkum námsmönnum þá fyrirgreiðslu, sem við teljum okkur ekki vera menn til að veita sjálfir. Mér fannst þetta afar mikil niðurlæging, þegar þessi atburður gerðist, en þótt menn viðurkenni þetta sjónarmið hæstv. forsrh., er þá rétt að láta einvörðungu íslenzka stúdenta, sem eru við nám í Svíþjóð, njóta þessarar undarlegu fyrirgreiðslu? Er þá ekki rétt, að hæstv. forsrh. fari hliðstæða för á fund stjórnarvalda í Danmörku, Noregi, Finnlandi, Þýzkalandi og Englandi og í öllum þeim löndum, þar sem íslenzkir námsmenn eru? Eiga ekki íslenzkir námsmenn allir að búa við hliðstæð kjör? Ef íslenzk ríkisstj. telur það í sínum verkahring að fara fram á það við stjórnarvöld annarra landa, að þau aðstoði íslenzka námsmenn við námið, þá finnst mér, að námsmennirnir eigi þá a.m.k. heimtingu á því, að þetta komi fram við þá alla.

Hins vegar held ég ekki, að þetta sé sú leið, sem á að fara til þess að leysa þetta vandamál. Þetta mál var rætt oft í vetur í sambandi við afgreiðslu fjárl. og við Alþb.–menn fluttum margsinnis till. um auknar fjárveitingar til þess að mæta þessum vanda. Þær till. skullu á daufum eyrum ráðamanna, en vera má, að þessi ferð hæstv. forsrh. til Svíþjóðar og sá undarlegi erindrekstur, sem hann rak þar, hafi orðið til þess, að stjórnarvöldunum skiljist, að á þessu máli verður að taka af fullri alvöru.

Þessi till. er flutt í því skyni að fela hæstv. ríkisstj. að láta semja og leggja fyrir næsta reglulegt Alþ. till. um breyt. á l. um Lánasjóð íslenzkra námsmanna, er tryggi íslenzkum stúdentum við nám erlendis eigi lakari námskjör, en stúdentar viðkomandi lands njóta. Ef þessi till. verður samþ., þá er þess að vænta, að hæstv. ríkisstj. láti vinna að þessari endurskoðun í sumar og leggi síðan till. sínar fyrir þing, þegar það kemur saman í haust. Ef þær till. fá skjóta afgreiðslu, ætti þessi sjóður fljótlega að geta risið undir hliðstæðri þjónustu við íslenzka námsmenn erlendis og tíðkast meðal námsmanna nágrannalanda okkar.

Ég vil svo leggja til, að till. verði að lokinni umr. vísað til hv. allshn.