30.04.1969
Sameinað þing: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í D-deild Alþingistíðinda. (3481)

225. mál, rafmagnsmál sveitanna

Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Á þskj. 512 höfum við 6 alþm. flutt svo hljóðandi till. til þál.:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj.:

1) Að gera 3 ára áætlun um rafvæðingu þeirra byggða, sem hafa ekki fengið rafmagn frá samveitu í árslok 1969 og hafa að meðaltali eigi meira en 2 km á milli býla, fjarlægðir á milli hreppa umfram, 2 km frá býli til býlis, skal eigi reikna með, þegar meðaltal er fundið.

2) Að láta fara fram athugun á því, á hvern hátt hagkvæmast sé fyrir þá bændur að afla sér rafmagns, sem verða utan þeirra svæða, er falla undir 1. tölulið.

Áætlun samkv. 1. tölulið og niðurstöður athugana samkv. 2. tölul. verði lagðar fyrir næsta reglulegt Alþingi.“

Þegar framkvæmdir hófust við dreifingu rafmagns um sveitir eftir fyrstu áætluninni, sem um það var gerð, má segja, að snúizt hafi verið við því mikla máli af töluverðum stórhug. Vegna aðstæðna allra hér á landi, fjarlægða og margháttaðra staðbundinna erfiðleika var það vissulega í mikið ráðizt fyrir svo fámenna þjóð sem Íslendinga að ætla sér á tiltölulega stuttum tíma að dreifa rafmagni frá samveitum um mestan hluta hins stóra og strjálbýla lands. Á þeim árum, sem síðan eru liðin, hafa að meðaltali verið tengd sem næst 200 sveitabýli árlega. Það dró úr framkvæmdahraða á s.l. ári, þó ekki meira, en stundum hafði verið áður, því að þetta var nokkuð breytilegt frá ári til árs, en á s.l. ári voru um 130 sveitabýli tengd. Hið alvarlegasta í þessum málum, eins og þau horfa við í dag, er, að nú lítur út fyrir, að stórkostlega dragi úr hraða við þessar framkvæmdir. Nú eru þau býli, sem ekki hafa fengið rafmagn frá samveitum, eitthvað á milli 1.300—1.400. Það hefði auðvitað verið hin mesta nauðsyn, að í stað þess að draga úr framkvæmdahraða nú, hefði verið reynt að gera lokaátak að svo miklu leyti, sem við varð komið, til þess að tengja samveitunum það, sem eftir var af landsbyggðinni. En nú horfir þannig eftir þeim upplýsingum, sem gefnar eru í Orkustofnuninni, að með svipuðu fjármagni og ætlað er til nýrra héraðsveitna í ár, verði framvegis ekki tengd nema um 70 býli á ári. Við viljum ekki una þessari þróun, flm. þessarar þáltill.

Það er einnig vert að leggja áherzlu á, að auk þess, sem við teljum, að hraða þurfi framkvæmdum, þá teljum við einnig nauðsynlegt, að gerð sé heildaráætlun um það, sem eftir er að gera í þessum málum. Af mörgum ástæðum er það mjög nauðsynlegt fyrir þá, sem hér eiga hlut að máli, að þeir fái að vita, hvers er að vænta í þessu efni. Sannleikurinn er sá, að þeir eru sjálfsagt fáir, sem geta hugsað sér það, eins og nú er komið, að vera án rafmagns til langframa. Þess vegna er það, að þeir, sem úrskurðaðir yrðu utan samveitusvæða miðað við þá tækni, sem nú er yfir að ráða í dreifingu rafmagns, hlytu þá að gera sínar ráðstafanir, sínar áætlanir og annað hvort snúa sér að því með öðrum hætti að afla sér raforku ellegar þá e.t.v. að undirbúa búferlaflutning fyrr eða síðar.

Að undanförnu, þegar gerðar hafa verið áætlanir um dreifingu rafmagns um hinar ýmsu sveitir og sveitahluta, hefur verið fylgt þeirri reglu að telja með meðalfjarlægð á milli býla fjarlægðir á milli sveita, og sveitahluta, ef stórar eyður eru í byggð einstakra sveitarfélaga. Af þessu leiðir það að sjálfsögðu í ýmsum tilfellum, að byggðahverfi, sem eru nokkuð þéttsetin og eru þess vegna innbyrðis tiltölulega vel og kannske ágætlega til þess fallin að dreifa um þau raforku, lenda utan við alla ramma og alla áætlanagerð, vegna þess að einhvers staðar er eyða í byggðina, oftast á milli sveitarfélaganna.

Nú er það auðvitað matsatriði, hvað á að gera í svona tilfelli. En við lítum svo á, flm. þessarar till., að þetta mál þurfi vel að skoða og það megi alls ekki slá því föstu án nánari athugunar, að öll þau svæði, sem þannig er ástatt um, skuli verða án rafmagns frá samveitu. Við lítum svo á, að þar geti vel komið til greina í mörgum tilvikum og þá ekki sízt, þegar kannske þéttsetin og blómleg svæði eru að baki fjallsins eða heiðarinnar, þá geti komið til greina, að af almannafé sé veittur sérstakur stuðningur til þess að brúa þetta bil.

Það má vera, að einhverjir telji þetta ábyrgðarleysi. En ég vil leyfa mér að minna á, að lagning eins km í héraðsveitu er þó ekki meira fyrirtæki en svo, að km í héraðsveitu kostar þetta frá 117 þús. kr. og upp í 155 þús. kr. Þetta er að vísu meðaltal og getur eitthvað breytzt, eftir því hvernig línustæðið er, en varla stórkostlega. Mismunur þessara tveggja talna liggur í því, að undir sumum kringumstæðum er jörð notuð til leiðslu í staðinn fyrir einn vírinn, en aftur nokkru dýrara, ef hinn hátturinn er hafður á, að nota vír eingöngu til flutnings. En við teljum, að þetta atriði þurfi að skoða vel og það sé alls ekki rétt að útiloka að óathuguðu máli, heil og oft kannske blómleg byggðahverfi vegna þess eins, að svona hagar til.

Ég vil líka láta það koma fram, að ég er mjög óánægður með þann hátt, sem nú er hafður á, þegar ákvarðað er, hvaða sveitir og sveitahlutar geti komið til greina eða verði teknir í fremstu röð. Ég hef sérstaklega í huga eina þéttbyggða og ágæta sveit á Austurlandi, Vopnafjörðinn. Þar hefur svæðinu í uppsetningunni hjá Orkustofnuninni verið skipt í þrjá hluta. Stærsti hlutinn (25 býli), er undir 1.5 km, annar með 7 bæi og 2 km meðalfjarlægð, en sá þriðji með 8 bæi og 1.97 km. En ef þetta er tekið sem ein heild, kemur ekki út meðalfjarlægð nema rétt rúmlega 11/2 km eða 1.55. Ég vil láta koma alveg skýrt fram, að þetta tel ég óeðlileg vinnubrögð. Ég tel þetta rangt og mér finnst, að með þessu sé eins og verið að torvelda hinum strjálli svæðum að fá tengingu.

Ég skal ekki fjölyrða mikið meira um þessa till. Ég vil þó segja, varðandi þau tímamörk, sem eru sett í niðurlagsorðum, þar sem segir, að áætlun samkvæmt 1. tölulið og niðurstöður athugunar samkvæmt 2. tölulið verði lagðar fyrir næsta reglulegt Alþ., þá er það skoðun okkar flm., að Orkustofnunin hafi það mikil gögn í sínum fórum, að henni eigi að vera það mögulegt að gera slíka áætlun á þetta stuttum tíma. Eftir því, sem ég kemst næst, þá hefur hún í sínum vörzlum uppdrætti yfir sérhverja sveit í landinu og ætti þess vegna að geta unnið þetta mál á tiltölulega stuttum tíma. Ég vil vekja sérstaka athygli á því, að þessi till. er ekki, þó samþ. yrði, endanleg ákvörðun Alþ. um framkvæmdahraðann, heldur er till. um það, að athugun verði gerð og áætlun sett upp, sem Alþ. tæki síðan til meðferðar og ákvarðaði þá með hversu miklum hraða málið yrði unnið. En við leggjum mikla áherzlu á þá nauðsyn að fá þessa áætlun gerða og málið þannig sett upp, að aðgengilegt verði fyrir þm. að meta og gera það upp við sig, hvað þeir telja unnt að gera.

Það er staðreynd, að þrátt fyrir íslenzka staðhætti, fámennið og strjálbýlið og hinar miklu vegalengdir, þá hafa þó Íslendingar tekið sér fyrir hendur að koma síma, útvarpi og sjónvarpi um gjörvallt landið. Ég vil nú rétt aðeins skjóta því hér inn í, að það er vissulega nöturlegt, að þegar sjónvarpið dreifist um landið, þá kemur það upp æði víða, að það eru heil byggðahverfi sem ekki eiga þess kost að nota sjónvarp, vegna þess að þau hafa ófullnægjandi eða ekkert rafmagn. En sem sagt, Íslendingar hafa þrátt fyrir allt tekið sér þetta fyrir hendur og einnig hitt, að tengja sérhvert byggt ból á landinu akvegakerfinu. Og það var áreiðanlega ætlun löggjafans á sínum tíma, þegar áætlanir voru settar um dreifingu raforkunnar, að einnig hún skyldi ná til allra landsmanna. Þess vegna er það í fyllsta samræmi við þá stefnu, að þetta mál verði tekið til rækilegrar skoðunar og menn reyni svo að gera það upp við sig, hvað hægt er að gera.

Ég vil, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að þessari till. verði vísað til hv. allshn.