23.10.1968
Sameinað þing: 4. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í D-deild Alþingistíðinda. (3536)

17. mál, íbúðarhúsabyggingar í Breiðholtshverfi

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda, að ekki ætti að þurfa langa framsögu um þær fsp., sem hér liggja fyrir, svo ljósar, sem þær eru og mun ég leitast við að svara þeim í þeirri röð, sem þær eru fram bornar.

Íbúðarbyggingar ríkisins og Reykjavíkurborgar í Breiðholtshverfi taka í 1. áfanga til 6 fjölbýlishúsa. Öll eru þessi íbúðarhús eins, með 52 íbúðum hvert eða alls 312 íbúðir í fjölbýlishúsum, svo og 23 innflutt einbýlishús úr timbri. Samtals eru þannig 335 íbúðir í þessum áfanga. Bygging fjölbýlishúsanna hófst í aprílmánuði 1967, en henni lýkur í febrúarmánuði 1969. Nú þegar eru fjögur fjölbýlishúsanna að heita má fullgerð eða alls 204 íbúðir. Fimmta íbúðarhúsið verður íbúðarhæft í desembermánuði n.k., en sjötta og síðasta húsið í þessum áfanga í febrúarmánuði n.k. Flutt var inn í fyrsta fjölbýlishúsíð í maímánuði 1968. Í hverju fjölbýlishúsi eru, eins og áður segir, 52 íbúðir, þ.e. 19 fjögurra herbergja íbúðir, 19 þriggja herbergja íbúðir og 14 tveggja herbergja íbúðir. Fjögurra herbergja íbúðirnar eru af tveim stærðarflokkum, þriggja herbergja íbúðirnar af þrem stærðarflokkum og tveggja herbergja íbúðirnar af fjórum stærðarflokkum. Stærð íbúðanna og verð er sem hér segir:

Tveggja herbergja íbúðir: 3 íbúðir 68 fermetrar eða 274 rúmmetrar verð 767 þús. kr.. 4 íbúðir 70 fermetrar eða 290 rúmmetrar verð 812 þús. kr.. 4 íbúðir 71 fermetri eða 294 rúmmetrar verð 823 þús. kr.. Og 3 íbúðir 78 fermetrar eða 315 rúmmetrar og verðið er 883 þús. kr..

Þriggja herbergja íbúðir: 12 þeirra eru 83 fermetrar eða 334 rúmmetrar og verðið er 934 þús. kr.. 4 af þessum þriggja herbergja íbúðum eru 86 fermetrar hver eða 352 rúmmetrar og verð hverrar íbúðar 985 þús.. Þrjár þessara þriggja herbergja íbúða eru 92 fermetrar eða 363 rúmmetrar og verð hverrar þeirra er 1 millj. og 16 þús. kr..

Fjögurra herbergja íbúðir: 12 þeirra eru 97 fermetrar eða 394 rúmmetrar og verð hverrar íbúðar 1 millj. 97 þús. kr. 7 íbúðir af þessum fjögurra herbergja íbúðum eru 104 fermetrar eða 405 rúmmetrar og verð hverrar íbúðar 1 millj. 132 þús. kr.

Framangreindar stærðir íbúðanna í fermetrum miðast við brúttó fermetramál hverrar íbúðar fyrir sig að stigapalli meðtöldum, en í þessum fermetrafjölda er ekki reiknuð með sérgeymsla í kjallara og ekki heldur hlutdeild í sameign, þ.e. anddyri, barnavagnageymslu, þvottahúsi og kjallaragangi.

Þá er komið að einbýlishúsunum. Flutt voru inn frá Danmörku 23 einbýlishús úr timbri af tveimur stærðarflokkum. Það eru 17 hús, sem voru 104.3 fermetrar að stærð og 6 hús, sem voru 112.2 fermetrar að stærð. Kostnaðarverð þessara timburhúsa fullfrágenginna er 1 millj. 370 þús. af minni gerðinni, en stærri gerðin 1 millj. 490 þús. Byrjað var að grafa fyrir grunnum einbýlishúsanna í júlímánuði 1967, en smíði húsanna lauk í júní 1968.

Svar við 7. spurningu, þ.e.a.s. um fjármagn og öflun þess er á þessa leið:

Heildarkostnaður við framkvæmdir í Breiðholti 23. okt. s.l. nemur 331.004.864.23 kr. Þetta fjármagn er þannig fengið:

Frá Byggingarsjóði, keypt bankavaxtabréf vegna lántöku íbúðakaupenda 33 ára lán húsnæðismálastjórnar, 94 millj. 503 þús. kr. Keypt skuldabréf til tveggja ára 19.347.348 kr. Skuld við Byggingarsjóð 129.632.052 kr. Samtals 243.482.400 kr. Í öðru lagi: Frá Atvinnuleysistryggingasjóði, keypt bankavaxtabréf vegna lántöku íbúðakaupenda, 33 ára lán húsnæðismálastjórnar, 52 millj. 500 þús. kr. Frá borgarsjóði Reykjavíkur 13.302.058.23 kr. Og í fjórða lagi frá íbúðarkaupendum sjálfum 21.720.406 kr. Samtals 331.004.864.23 kr.