30.10.1968
Sameinað þing: 6. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í D-deild Alþingistíðinda. (3557)
254. mál, lánsfé vegna jarðakaupa
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Í tilefni af því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, vil ég upplýsa, að þessar 20 millj., sem lofað var að láta veðdeildina fá haustið 1966 eða réttara sagt var gefið fyrirheit um, að veðdeildin fengi, voru afgreiddar til deildarinnar árið 1967 og virtust allir vera ánægðir með það. Það voru gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að útvega veðdeildinni þetta, en ekki fyrr en árið eftir. Þá var það tekið á framkvæmdaáætlun ríkisstj. í sambandi við fjárfestingarsjóðina, en féð var ekki útvegað um haustið, eins og ég held, að hv. þm. hafi haldið, eða seinni hluta þess árs, sem beiðnin kom sérstaklega fram. Það er rétt, að þetta liggi alveg klárt fyrir og það má líka minna á, að 1966 var fjármálum allt öðruvísi háttað, en nú og meira af lausu fjármagni en nú, eins og ég ætla, að flestir hv. þm. geri sér grein fyrir.