30.10.1968
Sameinað þing: 6. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í D-deild Alþingistíðinda. (3562)
255. mál, starfsaðstaða Bifreiðaeftirlits ríkisins
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi talaði nokkuð almennt um bifreiðaeftirlitið og þótti mér vænt um það. Það, sem hann sagði hér, er líklegt til að vekja áhuga og kunnugleika hv. þm. á því, að hér er um mikið vandamál að ræða, hvernig að bifreiðaeftirlitinu er búið og hvaða horfur eru á því að geta gert það betur úr garði tæknilega og á annan hátt á næstu árum. Þar sem hér er um vandamál að ræða, sem fer sívaxandi og verður æ þýðingarmeira í okkar þjóðfélagi, eins og hv. fyrirspyrjandi vék að, vildi ég einnig svara þessari fsp. nokkuð með almennum orðum til að undirstrika þörf á úrbótum, áður en ég svara beint spurningunni, sem í fsp. felst.
Eins og kunnugt er, er Bifreiðaeftirlit ríkisins sérstök stofnun samkvæmt umferðarlögum, sem annast skoðun og eftirlit ökutækja. Skoðun ökutækjanna fer fram áður, en þau eru skráð fyrsta sinni, svo og um hverja umskráningu, enda ákveður eftirlitsmaður, hvort ökutækið fullnægi kröfum laga og reglugerða. Árlega fer svo fram endurskoðun allra bifreiða og bifhjóla. Þar fyrir utan getur lögreglustjóri eða bifreiðaeftirlitsmaður krafizt þess hvenær sem er, að skráð ökutæki séu færð til sérstakrar skoðunar á þeim stað sem hann ákveður, auk þess sem eftirlitsmönnum og öðrum lögreglumönnum er heimilt, hvenær sem er, að stöðva ökutæki, skoða það samstundis og athuga ökuskírteinið. Auk þess, sem bifreiðaeftirlitsmenn annast skoðun og eftirlit ökutækja, eru þeir prófdómendur við bifreiðarstjórapróf og á vegum Bifreiðaeftirlitsins eru haldin námskeið fyrir atvinnubifreiðastjóraefni, meiraprófsnámskeið. Einnig fara fram á vegum Bifreiðaeftirlitsins próf fyrir ökumenn fólksbifreiða, sem flytja mega fleiri, en 16 farþega, svo og próf fyrir ökukennara.
Hjá Bifreiðaeftirlitinu í Reykjavík er haldin allsherjar spjaldskrá yfir allar bifreiðar í landinu auk þess sem spjaldskrá er haldin í hverju umdæmi. Hefur spjaldskráin verið færð á gataspjöld hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar. Skráðar bifreiðar og bifhjól voru í byrjun þessa árs alls 42.394. Bifreiðaeftirlitið lýtur yfirstjórn dómsmrn. og hefur aðsetur í Reykjavík, en dagleg stjórn Bifreiðaeftirlitsins er í höndum forstöðumanns, en lögreglustjórinn í Reykjavík hefur umsjón með bifreiðaeftirliti í landinu samkvæmt sérstöku ráðuneytisbréfi og samningum, sem gerðir voru fyrir nokkuð mörgum árum milli ráðuneytisins og lögreglustjórans í Reykjavik.
Landinu er í heild skipt í 7 umdæmi, og fjöldi fastra eftirlitsmanna í hverju umdæmi er þessi:
Í Reykjavíkurumdæmi starfa samtals 11 bifreiðaeftirlitsmenn.
Í Reykjanesumdæmi eru þrír bifreiðaeftirlitsmenn og er einn þeirra umdæmisfulltrúi. Hefur einn eftirlitsmaðurinn fast aðsetur í Keflavík, en hinir hafa aðsetur í Reykjavík.
Vesturlandsumdæmi tekur til Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, Snæfellsness–, Dala– og Austur–Barðastrandarsýslu og Strandasýslu. Þar eru þrír eftirlitsmenn. Einn er á Akranesi og tveir í Borgarnesi, og er annar þeirra umdæmisfulltrúi.
Vestfjarðaumdæmi tekur hins vegar til Vestur–Barðastrandarsýslu og Ísafjarðar. Einn eftirlitsmaður er á Ísafirði og annar á Patreksfirði, sem er lausamaður.
Norðurlandsumdæmi nær frá Húnavatnssýslum til Þingeyjarsýslna. Á Akureyri eru 3 eftirlitsmenn og er einn umdæmisfulltrúi og auk þess eru eftirlitsmenn á Blönduósi og á Húsavík, einn á hvorum stað.
Austurlandsumdæmi eru Múlasýslur og Austur–Skaftafellssýsla. Þar situr eftirlitsmaður á Reyðarfirði og auk þess lausamaður á Höfn.
Í Suðurlandsumdæmi er einn eftirlitsmaður á Selfossi, en lausamaður er í Vestmannaeyjum.
Þetta hef ég aðeins rakið hér til að gefa yfirlit um, að hér er um umfangsmikla starfsemi að ræða, ekki aðeins hér í þéttbýlinu, heldur á öllu landinu.
En hvernig er svo starfsaðstaða Bifreiðaeftirlitsins. Bifreiðaeftirlitsmennirnir vinna sín störf í nánu samstarfi við lögreglustjórana í umdæmum sínum og hafa þá jafnframt umsjón með bifreiðaskráningunni, sem lýtur stjórn lögreglustjóra. Aðsetur hafa eftirlitsmennirnir víðast hvar í tengslum við viðkomandi lögreglustjóra og hefur húsnæðisaðstaða þeirra verið bætt á ýmsum stöðum á undanförnum árum, t.d. á Selfossi, í Keflavík og í Vestmannaeyjum. Á Akureyri hefur Bifreiðaeftirlitið nýverið flutt í nýtt eigið húsnæði í hinni nýju lögreglustöðvarbyggingu, og hefur þar með verið sköpuð mjög verulega bætt aðstaða fyrir Bifreiðaeftirlitið þar.
Að því er varðar starfsemi Bifreiðaeftirlitsins í Reykjavík, vil ég taka fram eftirfarandi:
Bifreiðaeftirlitið fluttist í núverandi húsnæði í Borgartúni 7 árið 1947 og húsnæðinu fylgdi þá auð lóð í næsta nágrenni, hinum megin götu þó, 1.750 m2 að stærð. Er húsnæði þetta og athafnasvæði ennþá notað fyrir Bifreiðaeftirlitið óbreytt að stærð og aðstöðu, en er nú orðið alls ófullnægjandi vegna hinna miklu breytinga, sem orðið hafa á bifreiðafjölda. Kemur greinilegast fram, hversu nauðsynlegt er að bæta starfsaðstöðu Bifreiðaeftirlitsins, þegar aðalskoðun bifreiða fer fram, en hún stendur nú yfir í nær 7 mánuði á ári hverju. Hinn mikli húsnæðisskortur og takmarkaða athafnasvæði stofnunarinnar útlokar að unnt sé að auka starfslið við bifreiðaskoðunina eða beita nauðsynlegum nútímatækjabúnaði við hana. Afgreiðslubið hefur því lengzt ár frá ári og er nú svo komið, að bið á annan klukkutíma er mjög algeng. Veldur þetta eðlilega mikilli óánægju hjá borgurunum og berast forráðamönnum Bifreiðaeftirlitsins stöðugar kvartanir í tilefni þessa. Af þeim ástæðum og eigi síður vegna hins almenna umferðaröryggis í landinu er greinilegt, að við svo búið má ekki standa öllu lengur og mjög brýn nauðsyn er því til þess, að nú þegar verði hafinn undirbúningur að byggingu skoðunar– og afgreiðsluhúss fyrir Bifreiðaeftirlit ríkisins í Reykjavík, þannig að unnt verði að gera róttækar breytingar á starfsháttum eftirlitsins. Skulu hér nefndar nokkrar upplýsingar um störf Bifreiðaeftirlitsins og starfsaðstöðu.
Á árinu 1947, þegar eftirlitið hóf starfsemi sína á tilgreindum stað voru skráðar bifreiðar í umdæminu alls 5.514, en í byrjun yfirstandandi árs voru þær 18.220. Á skoðunarárinu 1967 voru samtals 31.330 bifreiðar skoðaðar í Reykjavík, þar af 6.765 bifreiðar utan af landi. Á sama tíma var lokið hér í umdæminu samtals 2.334 fræðilegum prófum við almenn bifreiðarstjórapróf og 2.221 verklegu prófi. Þar að auki voru haldin þrjú 6 vikna námskeið fyrir atvinnubifreiðarstjóraefni. Ennfremur voru haldin próf fyrir þá, sem sækja um réttindi til að aka bifreið fyrir 16 farþega eða fleiri og loks próf fyrir ökukennaraefni. Þá voru afgreiddar á árinu nokkur þúsund nýskráningar ökutækja og umskráningar vegna færslu milli umdæma eða eigendaskipta.
Af samanburðartölum þessum má ljóst vera, að húsakynni og athafnasvæði, sem rétt voru við hæfi árið 1947 og eigi hafa breytzt síðan, eru alls ófullnægjandi nú. Kemur þar til, að staðsetning Bifreiðaeftirlitsins að Borgartúni 7 er einnig orðin mjög óheppileg vegna áberandi bifreiðastæðaskorts á lóð hússins og í grennd. Stafar það m.a. af því, að margar opinberar stofnanir eru nú til húsa í Borgartúni 5 og 7 og á því mjög margt fólk þangað erindi. Reynt hefur verið að fá aukið athafnasvæði fyrir starfsemi Bifreiðaeftirlitsins til bráðabirgða á lóð, sem er við hlíðina á núverandi athafnasvæði þess. Þeirri beiðni hefur verið synjað af stjórn húseignarinnar að Borgartúni 7, enda full not lóðarinnar fyrir aðra þá starfsemi, sem er í húsinu. Samhliða neituninni var sú skoðun látin í ljós, að æskilegt væri, að Bifreiðaeftirlitið flytti starfsemi sína úr Borgartúni 7 sem allra fyrst, þar sem hin mikla bifreiðaumferð, sem er samfara staðsetningu eftirlitsins þar, sé mjög til óhagræðis fyrir aðra þá, sem í húsinu leigja.
Á athafnasvæði Bifreiðaeftirlitsins er smáhýsi, þar sem skoðunarmenn geta leitað skjóts til þess að rita athugasemdir. Sjálf bifreiðaskoðunin er hins vegar enn í dag framkvæmd undir berum himni, hvernig sem viðrar. Í rigningartíð er framkvæmd skoðunarinnar því miklum erfiðleikum bundin, m.a. vegna þess, að skoðunarmenn verða sjálfir að setjast undir stýri bifreiðar og geta þá valdið skemmdum á ökumannssæti eða viðkvæmum innri búnaði bifreiðarinnar. Skrifstofa og afgreiðsla eftirlitsins er einnig mjög á eftir tímanum, bæði hvað snertir stærð og aðstöðu til þjónustu. Hafa að undanförnu myndazt langar biðraðir í afgreiðslustofu og raunar utanhúss, áður en afgreiðslutími hefst. Er þörf á bættum aðbúnaði fyrir starfsfólk eftirlitsins og þá bíleigendur, sem leita þurfa þjónustu í Bifreiðaeftirlitinu, mjög rík, hvort heldur er í sambandi við skoðun eða ökumannapróf. Bygging skoðunarskála og afgreiðslu fyrir Bifreiðaeftirlitið að erlendri fyrirmynd mundi gerbreyta möguleikum til raunhæfs ökutækjaeftirlits hér í borginni og í nágrannaumdæmunum, sem eru innan 15—20 km vegalengdar frá nýbyggingunni og sama máli gegnir um próf ökumanna. Við nýjar aðstæður mætti gera þeim allt önnur og betri skil, en nú er unnt.
Ef skoðun væri framkvæmd innanhúss, mætti dreifa henni yfir meginhluta ársins. Er þá unnt að kveðja bifreiðar til skoðunar eftir allt öðrum reglum og sjónarmiðum en nú er gert. Dreifing skoðunartímabilsins mundi einnig verða til þess, að vinna á bifreiðaverkstæðum dreifðist meira og minna jafnt á allt árið, en eins og nú standa sakir, er mjög erfitt að fá viðgerð á bifreiðum á vissum árstímum. Hún dreifðist meira og minna jafnt á árið, ef þessi aðstaða væri sköpuð.
Húsnæði það, sem Bifreiðaeftirlit ríkisins þarfnast, skiptist í skrifstofuhúsnæði og skoðunarskála. Áætlanir hafa verið um þetta gerðar. Skrifstofuhúsnæðið þarf að vera með venjulegum frágangi þess háttar húsnæðis og þarf a.m.k. nokkur hluti þess að vera staðsettur þannig í húsi, að þægilegt sé aðkomu fyrir almenning, helzt á jarðhæð eða á 1. hæð með góðum stigaþrepum. Skoðunarskálinn mætti vera stálgrindabygging eða annað ámóta húsnæði. Samkvæmt athugun, sem gerð hefur verið um húsnæðisþörf Bifreiðaeftirlitsins, mun láta nærri, að stærð bifreiðahúsnæðis þurfi að vera rúmlega 300 fermetrar. Eru þá meðtaldar kennslustofur, en ótalið rými fyrir snyrtiherbergi og ganga. Skoðunarskálinn þarf að vera a.m.k. 450–500 fermetrar, að því er álitið er, með þremur skoðunarrásum. Eðlileg afköst skoðunarstöðvar af framangreindri stærð með nýtízku búnaði munu talin um 150 bifreiðar á dag. Má naumast reikna með minni afkastaþörf á skoðunarsvæði Reykjavíkur. Með því að dreifa skoðuninni á allt árið mundu þau afköst hins vegar nægja fyrst um sinn. 6 skoðunarmenn þyrftu að staðaldri að gegna starfi í skoðunarhúsinu, ef ná ætti framangreindum afköstum. Áður en bifreið er flutt inn á skoðunarrás, þarf skrifstofuvinnu í sambandi við skoðunina þó að vera lokið, þannig að skoðunarmaðurinn geri ekki annað en stimpla afgreiðsluseðil.
Búnaður sá, sem notaður er í skoðunarstöðvum, er hemlamælir, stýrismælingavélar, ljósmælingavélar og lyftingatæki eða gryfjur í gólfi, sem gera skoðunarmanni kleift að athuga undirvagn ökutækis eftir þörfum. Öll þessi tæki stuðla að því að gera skoðunina fullkomnari frá öryggissjónarmiði, en auka jafnframt afkastagetu og leiða til sparnaðar í starfsmannahaldi.
Undirbúningur að bættum búnaði til handa Bifreiðaeftirliti ríkisins hefur staðið yfir undanfarin ár. Hefur m.a. verið unnið að því að afla hæfilegrar lóðar fyrir stofnunina, en nauðsynlegt er að vanda það val bæði frá sjónarmiði rekstrarhagkvæmni og þeirrar þjónustu, sem henni er ætlað að gegna. Hafa borgaryfirvöld gefið fyrirheit um lóð fyrir Bifreiðaeftirlitið, sem er bæði hæfilega stór og hagkvæm hvað staðsetningu snertir. Er lóð þessi á Ártúnshöfða, 1,4 hektarar að stærð. Staðsetning lóðarinnar er hagkvæm frá umferðarlegu sjónarmiði, einkum fyrir þá, sem koma með bifreiðar til skoðunar, en síður að vísu fyrir borgarbúa, sem leita þurfa til Bifreiðaeftirlitsins í öðrum erindagerðum, t.d. í sambandi við próftökur eða umskráningar, en þó held ég, að það skipti litlu máli, þar sem hvort eð er verður ætíð um töluverðan akstur að ræða.
Það hafa verið gerðir hjá teiknistofu Húsameistara ríkisins tillöguuppdrættir að skoðunarstöð fyrir Bifreiðaeftirlitið, sem samkvæmt kostnaðaráætlun í ágúst 1967 var talið, að mundi kosta um 13.6—14.6 millj. kr. að meðtöldu gatnagerðargjaldi og kostnaði við frágang lóðar. Svo sem af þessu má sjá, er um allmikla fjárfestingu að ræða í þessu sambandi og fé í þessu skyni þyrfti að liggja fyrir, eftir því sem til framkvæmda kæmi. Af þessum ástæðum fór á síðasta ári fram athugun á því, hvort unnt væri að festa kaup á fasteign ásamt lóðarréttindum til afnota fyrir Bifreiðaeftirlitið, án þess að um mjög verulegar, beinar fjárgreiðslur yrði að ræða og þá á ég við, að í kaupi þeirrar fasteignar hefði fylgt lánsfé, sem greiða hefði mátt á löngum tíma. Þessar athuganir voru mjög ýtarlegar og fóru fram skoðanir og mat á þeirri eign, sem til greina gat komið, en að athuguðu máli var þó fallið frá þessari hugmynd og ekki talið fært að ráðast í þessa aðgerð og þá kannske haft í huga, að þegar á allt væri litið, bæri að festa sig við framtíðarlausn á málinu, sem ég hef nokkuð vikið að.
Til þess að tryggja fjárhagslegan grundvöll fyrir byggingu skoðunarstöðvarinnar hefur verið um það rætt að hækka skoðunargjald bifreiða, en það er nú 140 kr. á bifreið. En ég vil taka það fram, að fyrir nokkrum árum voru skoðunargjöld bifreiða hækkuð. Það var áður en ég kom í rn. og það vakti fyrir með þeim hækkunum, að tekjurnar af því gengju til að byggja nýja stöð fyrir Bifreiðaeftirlitið. En hins vegar hefur í framkvæmdinni orðið sá háttur á, að þetta hefur, eins og aðrar tekjur, runnið í gegnum ríkissjóðinn, sem svo einnig ber kostnaðinn af bifreiðaeftirlitinu, en ekki komið til beins hagræðis sem fjárfestingarfé og mundi sennilega tæpast gera það, þó að horfið yrði að svona ráði, nema öðruvísi væri um hnútana búið og kannske þyrfti að setja um það sérstaka löggjöf. En tekjur af skoðunargjaldinu á árinu 1967 námu 5 millj. 376 þús. kr. og auk þess námu prófgjöld 960 þús. kr. og skráningargjöld 4 millj. 979 þús. kr., þannig að tekjur af þessum liðum, sem nátengdir eru starfsemi Bifreiðaeftirlitsins, námu alls 11 millj. 316 þús. kr., en rekstrargjöld Bifreiðaeftirlitsins námu á sama ári 9 millj. 803 þús. kr. Í fjárl. yfirstandandi árs eru þessar tekjur áætlaðar samtals 13.7 millj. kr., en kostnaður við Bifreiðaeftirlitið 9 millj. 183 þús. kr. Af þessu mætti í raun og veru segja, að með skoðunargjaldinu, eins og það er, ætti þessi starfsemi út af fyrir sig að geta fengið fé eins og raunverulega var til ætlazt, til sinnar uppbyggingarstarfsemi. Ég hef ekki gert sérstakar till. um það í sambandi við fjárlagafrv. það, sem nú hefur verið lagt fyrir þingið, en mér þótti rétt að víkja nokkuð almennt að þessu vandasama máli, sem fyrir liggur og svara að nokkru leyti og þó ekki nema óbeint, hvað fyrirhugað sé til að bæta starfsaðstöðu Bifreiðaeftirlits ríkisins.
Ég hef vikið að nokkrum tilteknum atvikum, lóðaútvegun, hugleiðingum og tilraunum til þess að kaupa lóð og fasteign o.s.frv. , en það þýðir ekki, að það verði hjá því komizt að leita til þess Alþ., sem nú situr, um það að gera Bifreiðaeftirlitinu fært að hefja nauðsynlegar fjárfestingar eða byggingar á sinni lóð á næsta ári. Þess vegna þykir mér vænt um, að hv. fyrirspyrjandi hefur vakið athygli á því, hversu mikið vandamál er hér um að ræða og mér þykir vænt um að hafa gefizt kostur á því að gera hispurslausa grein fyrir þessu mikla vandamáli. Ef að því kæmi, að það ætti að liggja fyrir mér að leita til þingsins um frekari fyrirgreiðslu í þessu máli, þá vildi ég mega vænta fulls skilnings hv. þm. á því, þegar það kemur til álita, en það er sem sagt ekki á dagskránni í dag og þarf frekari undirbúning, áður en ég mundi snúa mér til þingsins með það.