30.10.1968
Sameinað þing: 6. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í D-deild Alþingistíðinda. (3566)
256. mál, landhelgissektir
Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason):
Herra forseti. Þessi fsp. mín á þskj. 30 til hæstv. dómsmrh., — þ.e.a.s. hve margir sektardómar vegna landhelgisbrota féllu á s.l. ári og hve margar sektanna hafa verið innheimtar, —- þessi fsp. er fram borin vegna tilmæla ýmissa manna, sem við sjávarsíðuna búa í Vesturlandskjördæmi. Þessum mönnum og fólki yfirleitt þar um slóðir er farið að blöskra sleifarlagið á landhelgisgæzlunni. Hvar sem maður kemur, t.d. í sjávarplássin á Snæfellsnesi, eru manni sögð dæmi um hneyksli á hneyksli ofan í þessum efnum og ástandið versnar stöðugt. Smábátamenn, sem skaka í dauðum sjó, þar sem áður var á vísan að róa, horfa stundum á það dögum saman, hvernig togbátar fara öllu sínu fram innan landhelginnar og þá sjaldan að varðskip birtast, þá láta þau nægja að stjaka þessum bátaflotum rétt aðeins út fyrir línuna, eins og þegar sauðfé er stuggað úr túni, sigla að svo búnu sína leið og bátarnir að sjálfsögðu óðara komnir inn fyrir aftur. En það er eðlilegt, segir fólk að vísu, það er eðlilegt, að varðskipsmenn séu alveg að gefast upp á að taka þessa landhelgisbrjóta. Þetta er hvort eð er ekki nema tilgangslaust umstang fyrir þá. Starf þeirra á þessu sviði er gert að helberum skrípaleik, vegna þess að dómum vegna landhelgisbrota er aldrei framfylgt, sektir aldrei innheimtar. Á Akranesi hafa menn það t.d. fyrir satt, að einn tiltekinn skipstjóri hér í Faxaflóanum hafi verið sektaður 13 sinnum, hvorki meira né minna, en 13 sinnum á skömmum tíma, án þess að það væri innheimt ein einasta króna af öllu þessu sektarfé. En eftir 13. brot skilst manni, að manninum hafi verið stungið inn og haldið þar í 1–2 daga, síðan sleppt út aftur, svo að hann gat aftur farið út kvittur og klár til þess að hefja landhelgisbrot að nýju.
Nei, það er svo sannarlega engin furða, að Landhelgisgæzlumenn séu farnir að þreytast á þessu og skal þó viðurkennt, að stundum er tekið til hendinni og það svo um munar, eins og t.d. í gær, þegar teknir voru fyrir ólöglegar veiðar hvorki fleiri né færri, en 14 bátar í einu. En það er líka athyglisvert í því sambandi, að ástæðan til þessara aðgerða virðist ekki hafa verið sú fyrst og fremst, að þarna væri um ólöglegar veiðar að ræða, heldur virðist yfirmaður rafmagnsmála í Vestmannaeyjum hafa óttast, að bátar þessir bókstaflega toguðu í sundur rafstreng, sem þarna liggur milli lands og Eyja, — já og vatnsleiðslu líka. — Það virðist m.ö.o. hafa verið talin hætta á, að bátar þessir yllu svona svipuðum spjöllum og jarðýtur eru alltaf að valda uppi á þurru landi.
Ég geri mér að vísu ljóst, að dómsmrh. og þeir fulltrúar og gæzlumenn réttvísinnar, sem undir hann eru settir, telji sig geta talið fram sitt af hverju sér til málsbóta í þessum efnum. Þeir munu til að mynda geta vísað til þess, að hinar skefjalausu, ólöglegu veiðar innan landhelginnar séu afleiðing af því, að landhelgislöggjöfin taki ekki nógu mikið tillit til þarfa þeirra báta, sem hér eiga hlut að máli. Lögin neyði þá bókstaflega til lögbrota, auk þess sem með sanni megi segja, að hinn ólöglega veiddi fiskur hafi á ýmsum stöðum orðið til þess að bæta úr slæmu atvinnuástandi og draga úr efnahagsörðugleikum fólks. Allt kann þetta að vera satt. En hvernig er þá komið siðferði þjóðar, opinberu siðferði hennar og siðferði einstaklinganna, ef atvinnumál og efnahagur heilla byggðarlaga á að miklu leyti að byggjast á lögbrotum? Víst er, að hvað sem öðru líður, verður sú löggjöf, sem skapar slíkt siðferði, að breytast. Ástand þessara mála verður að komast í það horf, að það verði okkur Íslendingum ekki lengur til skammar. En á þetta vildi ég einmitt leggja sérstaka áherzlu í sambandi við þessa fsp., þ.e.a.s. siðferðishliðina. Ég veit það af viðtölum mínum við menn, að þeir, sem telja sig hafa neyðzt til umræddra lögbrota, una ástandinu siðferðilega séð engu betur, en aðrir og krefjast umbóta. Ég held, að segja megi, að ástand þetta sé farið að valda mjög svo útbreiddu samvizkubiti meðal sjómanna og annarra þeirra, sem hafa lífsafkomu sína af sjávarafla og tilgangur minn með þessari fsp. var einnig sá að spyrja, hvort hæstv. dómsmrh. og hans menn eigi ekki einnig við svipað samvizkubit að stríða og þá um leið, ef svo er, hvort hæstv. ráðh. telji ekki tíma til kominn að létta þessu samvizkubiti af sér og öðrum, sem hér eiga hlut að máli?
Svo má ekki heldur gleyma þeim sjómönnum, sem aldrei brjóta neitt af sér, þeim, sem fiska alltaf í fullu samræmi við lög og rétt, trillumönnum og öðrum sjómönnum á smábátum, sem eru að miklu leyti sviptir lífsafkomu sinni vegna þess, hversu landhelgisbrjótar spilla miðum þeirra. Það er einfaldlega verið að drepa okkur með þessu, sagði einn slíkur, sem ég ræddi við uppi á Akranesi ekki alls fyrir löngu. Við fáum ekki bein úr sjó, nema með því að róa út í Ballarhaf. Og það má vera mikið blítt og gott í tíðinni, ef við eigum að geta róið að staðaldri alla þá leið á þessum skeljum okkar. Og hann bað mig að skila því, þessi maður, fyrir sína hönd og félaga sinna, - skila því hingað í þingsalinn til hv. forráðamanna þjóðarinnar, hvort ekki væri meiningin að fara að framfylgja landhelgislöggjöfinni eða gera eitthvað, sem um munar í þessum efnum, ella ættu þeir, hann og hans félagar, ekki annarra kosta völ en hætta sjósókn með öllu.