30.10.1968
Sameinað þing: 6. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í D-deild Alþingistíðinda. (3572)
256. mál, landhelgissektir
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég stend nú aðeins upp til að upplýsa, að þessi umrædda n., sem var nýlega skipuð í landhelgismálinu og gera á till. um nýtingu hennar og jafnvel að athuga, að ekki yrði stunduð ofveiði, hefur ekki tekið til starfa, en undirbúningur er hafinn og munum við koma saman á morgun. Sú seinkun, sem hefur átt sér stað frá því að við fengum skipunarbréf, stafar einfaldlega af því, að þessir 5 þm. hafa ekki haft tíma til að mæta á fundi og jafnvel á morgun er einn þm. á nefndarfundi, en vegna góðvildar hans, af því að við hinir höfum tíma, mun hann sjá af nokkrum mínútum til að skipuleggja starfið.
Í erindisbréfi til okkar er svo mikið mál lagt fyrir okkur, að það er varla von á því, að lausn verði fundin mjög fljótlega. Hins vegar skeði það, að Sjómannasamband Íslands beitti sér fyrir ráðstefnu um landhelgismálið og nýtingu landhelginnar fyrir skömmu og þar var sett á stofn önnur n., sem ég vænti, að við getum átt samstarf við og verði til þess að flýta fyrir niðurstöðum.
Allir vita, að um sjónarmið í landhelgismálinu og um nýtingu landhelginnar eru mjög mismunandi skoðanir, en við, sem vorum í vetur fylgjandi, að breytt yrði til um hagnýtingu á veiðum innan landhelginnar, hefðum auðvitað viljað, að tekin yrði fyrr ákvörðun um stofnun þessarar n., sem okkur var falið að starfa í, en svo varð ekki. Hins vegar væntum við þess, að menn láti ekki smáfordóma standa í veginum fyrir því, að við náum skynsamlegri niðurstöðu sem fyrst. Og ég ætla mér ekki þá dul og hinir nm. ekki heldur, að við reiknum með því, að fyrsta skref geti gilt í mörg ár, en sjálfsagt er að reyna að lagfæra hlutina og ná fram heppilegri lausn, því að við ætlum okkur að nýta landhelgina sem bezt.