06.11.1968
Sameinað þing: 8. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í D-deild Alþingistíðinda. (3600)

259. mál, sjónvarp frá Skáneyjarbungu

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Endurvarpsstöð sjónvarps á Skáneyjarbungu í Borgarfirði endurvarpar frá Kárastaðastöð, sem er skammt frá Borgarnesi. Sú stöð tekur við sjónvarpsmyndinni frá Vatnsendastöðinni.

Bilanir á Skáneyjarbungustöðinni hafa síðan um áramót 1967-68 verið 9. En bilanir á Kárastaðastöð hafa á sama tíma verið 11. Þar sem þær komu einnig fram á Skáneyjarbungustöðinni, hefur hún á þessum tíma orðið 20 sinnum fyrir bilunum.

Skáneyjarbungustöð var tekin í notkun 20. des. 1967, en Kárastaðastöðin í ársbyrjun 1967. Nokkuð af þeim bilunum, sem hér hafa verið nefndar, munu stafa frá byrjunarerfiðleikum, en vitanlega verða menn óánægðir, þegar truflanir verða á sendingum sjónvarps vegna bilana. Hins vegar verður að gera sér ljóst, að bilanir geta alltaf orðið og þar sem um einfalt kerfi er að ræða, þ.e.a.s. engin varastöð, þá valda bilanirnar stundum nokkuð löngum truflunum á útsendingum dagskrár, en um varastöð verður naumast að ræða strax, þar sem megináherzla er lögð á að koma sjónvarpskerfinu sem fyrst um landið.

Hv. þm. spyr, hvenær útsendingar frá Skáneyjarstöðinni muni komast í viðunandi lag, eins og hann segir, en að sjálfsögðu er það matsatriði, hvað telja á viðunandi í þessum efnum. Ef það eitt er viðunandi, að bilanir verði bókstaflega aldrei, þá er erfitt að spá, hvenær því marki verður náð. En sumir telja það ástand, sem nú er, viðunandi, þótt bilanir komi fyrir. En þegar stöðin kemur á Arnarstapa, en það er áætlað að verði 1970, munu aukast verulega líkur fyrir minni eða færri bilunum.

Eins og ég sagði áðan, má alltaf búast við meiri og minni truflunum af völdum bilana, þar sem engar varastöðvar eru, sem hægt er að taka í notkun strax og bilana verður vart í aðalstöðinni. En ég hygg, að rétt sé og um það vona ég, að flestir séu sammála, að stefna að því að koma sjónvarpinu fyrst sem víðast um landið, þótt menn þurfi að búa við nokkra bilanahættu á einstaka svæðum, fremur en að koma upp varastöðvum fyrir miklu minna svæði til þess að tryggja bilanalausa útsendingu þar. Þetta er stefna rn. og Ríkisútvarpsins og ég vona, að menn skilji, að hún er gerð af áhuga á því að koma sjónvarpinu sem fyrst sem víðast um landið, þó að við verðum þess vegna enn um skeið að búa við nokkra bilanahættu á einstaka stöðum.