13.11.1968
Sameinað þing: 11. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 623 í D-deild Alþingistíðinda. (3620)

261. mál, Áburðarverksmiðjan

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að segja, að það er engin fyndni í þessu, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. var að segja hér áðan. Áburðurinn er alveg sérstök vara. Hann er fluttur inn í einu og notaður aðeins einu sinni á ári, að vorinu til. Þetta er vara, sem er seld álagningarlaus og við getum talað um að hafa frjálsa verzlun með áburð. Hverjir mundu fást til þess að verzla með áburð og hvaða trygging væri fyrir því, að nægilegur áburður væri til í landinu að vorinu til, ef ekki væri skipulag á þessu? Og hv. 1. þm. Norðurl. v. hefði getað sparað sér að fara upp í ræðustólinn til þess að snúa að nokkru leyti út úr því, sem ég sagði, a.m.k. að leggja alveg skakka meiningu í það, því að hv. þm. veit, að viðskipti með áburð eru allt annars eðlis, en með almennar vörur. Það getur þess vegna algerlega samrýmzt að tala máli frjálsrar verzlunar, þótt það sé viðurkennt, að verzlun með áburð fari bezt í því formi, sem hún er nú. Hitt er svo annað mál, að það getur vel verið, að á aðalfundi Stéttarsambands bænda sé ástæða til að tala að einhverju leyti um viðskiptamál. En þess gerist ekki þörf í sambandi við áburðarmálin, vegna þess að þeir vilja, að Áburðarverksmiðjan verði stækkuð og áburðar verzlunin fari fram á hennar vegum. Það vilja bændurnir, sem eiga að nota áburðinn, vegna þess að þeir telja hagsmunum sínum bezt borgið með þeim hætti.

Við erum að tala um það að stækka Áburðarverksmiðjuna til þess að verða sjálfum okkur nógir með áburð og ég held, að hv. 6. þm. Sunnl. hafi einhvern tíma sagt, að þetta væri eðlilegt. En er þá eðlilegt á sama tíma að tala um, að það sé frjálst að flytja inn áburð? Væri mögulegt að reka Áburðarverksmiðjuna, ef það ætti svo að fara að hafa innflutning á áburði, jafnvel þótt það væri á sama verði og Áburðarverksmiðjan getur selt hann fyrir? Nú er það svo, að Áburðarverksmiðjan í Gufunesi hefur starfað í 15–16 ár. Hún hefur alltaf selt áburðinn á samkeppnisfæru verði og ekki hærra verði, en sams konar áburður innfluttur hefði kostað. Eftir að Áburðarverksmiðjan hefur verið stækkuð og hún fer að framleiða algildan áburð, verður vitanlega einnig að hafa þetta sjónarmið. Hvernig er það t.d. með Sementsverksmiðjuna, sem að ýmsu leyti er hliðstæð ? Mér er sagt, að hún hafi selt sementið, síðan hún tók til starfa, á samkeppnisfæru verði við innflutt sement. Eigi að síður mundi vera hægt að selja útlent sement hér á markaðnum, ef það væri frjálst að flytja það inn. Og hvernig væri þá með rekstur Sementsverksmiðjunnar? Ég skil ekki, hvers vegna menn eru með slíkt tal eins og hér hefur komið fram í dag í sambandi við Áburðarverksmiðjuna. Ég skil ekki, að sömu menn tali um frjálsa verzlun með áburð og óska eftir því og telja það rétt að stækka Áburðarverksmiðjuna og byggja hana upp að nýju. Þetta fer ekki saman. Og þess vegna er grundvöllurinn undir þessu tali algerlega brostinn. Hann er brostinn alveg jafnt fyrir því, þótt það verði endurtekið og fullyrt, að bændurnir séu í einokunarfjötrum í áburðarmálunum og Kjarninn sé slæmur áburður. Það má vel vera, að einhverjir bændur óski frekar eftir að fá öðruvísi köfnunarefnisáburð en Kjarna. Ég hygg, að það sé þá aðallega vegna þess, að kornastærðin á Kjarnanum er minni en hún á að vera og stundum óþægilegt að bera hann á, ef ekki er logn. En köfnunarefnið í Kjarnanum er sams konar köfnunarefni og í öðrum köfnunarefnisáburði og nýtur sín þess vegna á túnunum, svo framarlega sem það er ekki misnotað.

Hv. 6. þm. Sunnl. talar um, að ég muni ekki hafa reynt að prútta um verðið á þessum hlutabréfum. Ég held, að það hafi nú verið alveg tilgangslaust, eins og fram kemur. Það eru ýmsir hluthafar, sem hafa sagt nei. Þeir hafa ekki viljað selja fyrir fimmfalt verð og enn hafa nokkrir stórir hluthafar ekki svarað og eru að hugsa sig um. Hluthafarnir vissu um heimildina samkvæmt lögum, sem samþ. voru í vor. Og í þessu tilfelli var alveg tilgangslaust að reyna að prútta við ríkið, vegna þess að bréfin fást ekki fyrir minna. Ég man ekki, hvort hv. 6. þm. Sunnl. samþ. þessa löggjöf. En það var áreiðanlega mikill meiri hl. Alþ., sem það gerði og þar með var verðið á bréfunum ákveðið. Margir hluthafar hafa sagt, að þeir væru til með að selja hlutabréfin, ef þau væru greidd út í hönd, en það var gefinn kostur á því, að þau væru greidd á fimm árum og þá er talið, að það sé a.m.k. 10–15% afsláttur. Þannig hefur raunverulega verið prúttað við hluthafana. Vona ég, að hv. þm. sé þá í hjarta sínu samþykkur því, að ég gæti hagsmuna ríkisins, þegar það á við.

Það má viðurkenna, að Þjóðviljinn er búinn að leiðrétta það, sem stóð í blaðinu á sunnudaginn, þegar hann var að gera tortryggilega söluna á gamla póst– og símahúsinu á Selfossi. Það var spurningarmerki við feita fyrirsögn þvert yfir blaðið: „Hefur Ingólfur komið þarna nálægt?“ Þetta er leiðrétt í blaðinu í dag, en með smáu letri og ekki á áberandi stað, þannig að það gæti verið, að einhverjir, sem hefðu lesið blaðið á sunnudaginn, sæju ekki leiðréttinguna,og væri það þá í samræmi við það, sem sumir iðka nú, að ala á tortryggni.

Ég held, að ég sjái ekki ástæðu til þess að segja meira í tilefni af því, sem fram hefur komið.