20.11.1968
Sameinað þing: 13. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í D-deild Alþingistíðinda. (3647)

264. mál, bifreiðar í eigu ríkisins

Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svarið og ég veit, að hann undirstrikar það nú, sem hann gerði í ræðunni í vor, að áfram verði unnið í þessu efni. Það var öllum ljóst, að hér er um mikið vandamál að ræða, vegna þess að það á djúpar rætur. Það var viðurkennt opinberlega fyrir löngu síðan, að þetta er mjög sterkur þáttur í launamálum hjá vissum mönnum. Hins vegar vil ég vekja athygli á því, að fram hjá því verður ekki gengið núna, að þegar rekstur sumra þessara bifreiða kostar um eða yfir 100 þús. kr. og fer hækkandi með vaxandi benzíngjaldi og vaxandi varahlutaþjónustu, þá er orðin brýn nauðsyn að taka ákvörðun. Við komumst ekki hjá því. Þegar á allan almenning í landinu eru lagðar hömlur, hlýtur almenningur að fylgjast með því, hvort hamlað er á þessum lið líka. Og ég vænti þess eindregið, að hæstv. ríkisstj. taki fast á þessum málum, þó að þau séu viðkvæm. Þau mega ekki halda áfram óbreytt, eins og verið hefur. Það er og ég vil sérstaklega undirstrika það, nauðsyn að merkja þessa bíla, sem ríkið á. Það er óviðurkvæmilegt að sjá börn vissra manna leika sér á þeim í sumarfríi eða um helgar. Það passar ekki eins og er. Og þegar benzínlítrinn er kominn upp í 11—12 kr., þá kostar svona helgarferð ríkið nokkurn bita. Þetta eru viðkvæm mál, en það þýðir ekki að horfa fram hjá þeim vanda, sem í þessu er fólginn. Ég veit, að það er vilji hæstv. fjmrh., — ég hafði kynnt mér það á öðrum stað, — að það sé unnið vel í þessu, og ég þakka honum fyrir það, vegna þess að eftir þessu mun verða tekið um allt land.