20.11.1968
Sameinað þing: 13. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í D-deild Alþingistíðinda. (3650)

264. mál, bifreiðar í eigu ríkisins

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Á s.l. vetri fluttum við minni hl. í hv. fjvn. fsp. í sambandi við bílaútgerð ríkisins og notkun embættismanna á bílum ríkisins. Um þessa fsp. urðu nokkrar umr., þegar hún var til meðferðar. Ég held, að það muni liggja nálægt því rétta að segja, að þessi fsp. hafi orðið til þess að nokkuð alvarlega var farið að vinna í þessu máli, því að þó að það hafi verið til meðferðar í 21/2 ár, eins og hæstv. fjmrh. vék að, held ég, að það hafi verið eitt af hinum 59 sparnaðarloforðum, sem voru gefin í upphafi núverandi valdasamsteypu, sem flest hafa gleymzt, þegar átti til framkvæmdanna að koma. En um þennan bílarekstur ríkisins eða bílastyrki voru á s.l. sumri gerðar till. um, hvernig fara skyldi með.

Þetta mál kom til meðferðar hjá undirnefnd fjvn. s.l. sumar. Hún fjallaði nokkuð um það í umr. án ályktunar. Þá kom m.a. fram sú hugmynd hjá einstökum nefndarmönnum og ég verð að segja, að sú hugmynd er a.m.k. ekki langt frá því, sem ég gæti hugsað mér í þeim efnum, — að ríkið kæmi upp bílastöð, sem embættismenn og opinberir starfsmenn hefðu aðgang að, þeir sem ættu að hafa aðgang að slíku. Sá háttur yrði frekar upp tekinn, en einkanot embættismanna af bílum, eins og nú er. En um þetta mál hefur samt ekki verið tekin nein ákvörðun.

Þetta var rætt í fjvn. fyrir nokkru og þá var gert ráð fyrir, að n. kynnti sér þessar till., en nm. munu ekki hafa fengið þær frá hæstv. ríkisstj., — að undanteknum okkur, þessum 4, sem fengum þær í sumar — fyrr en á fundinum í morgun, svo að ekki er ástæða til, að fjvn. hafi getað afgreitt þetta mál. Hinu skulum við gera okkur grein fyrir, eins og kom fram í ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v., að hér er um mikið alvörumál að ræða. Hér er mikil mismunun á embættismönnum og opinberum starfsmönnum, hvort þeir njóta þeirra hlunninda, sem bílastyrkur og bíll er, því að það eru geysilegir fjármunir að hafa ríkisbíl og allan rekstur hans umfram sín laun. Og eins og um fleiri atriði í rekstri ríkissjóðs verður að taka fasta ákvörðun um þetta mál nú, því að ég vil endurtaka það, sem ég hef áður sagt í umr. um fjárl. ríkisins, að allar efnahagsaðgerðir renna út í sandinn, ef ríkissjóður sjálfur og ríkisstj. sýnir ekki meiri sparnað í verki en verið hefur.