27.11.1968
Sameinað þing: 15. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í D-deild Alþingistíðinda. (3660)

41. mál, heildarendurskoðun húsnæðismálalöggjafar

Fyrirspyrjandi (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég vil út af fyrir sig þakka hæstv. félmrh. fyrir þessar upplýsingar. Það er náttúrlega góðra gjalda vert, að húsnæðismálastjórn skuli treysta sér til að skila í næsta mánuði einhverjum till. um það efni, sem hæstv. ráðh. tilgreindi sérstaklega, þ.e. að útvega fjármagn til byggingarsjóðs ríkisins og byggingarsjóðs verkamanna. En næsta lítið finnst mér fara fyrir þeirri heildarendurskoðun á lagasetningu um húsnæðismálastjórn, sem oft hefur verið vísað til og sérstaklega var lofað með margnefndri yfirlýsingu hæstv. ríkisstj. eftir vinnudeilurnar 1965. Og ég verð að segja, að það er næsta furðulegt að þurfa að bíða í 31/2 ár eftir athugun á því, hvernig afla beri fjármagns til þessara sjóða, sem ríkisstj. lofaði þó í sömu yfirlýsingu að útvega á árinu 1965.

Það er vitanlega rétt, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki tekizt þetta, og þess vegna má segja, að gott sé að fá þær till. En mér finnst þetta vera alveg furðuleg efnd á þessari yfirlýsingu og ég satt að segja trúi því ekki, að þar við verði látið sitja. Og ég vil mjög skora á hæstv. félmrh. að láta ekki þar með staðar numið. Auðvitað þarf aukið fjármagn í þessa sjóði, en það þarf enga þriggja ára yfirlegu yfir því og það er margt fleira, sem þarna þarf að athuga, svo sem heildarlagasetninguna um það, hvernig þessari aðstoð verði fyrir komið. Ég verð að segja, að ef það verður niðurstaða hæstv. ríkisstj., t.d. gagnvart því frv., sem ég minntist hér á áðan, þá er vitanlega engin önnur leið til en endurflytja frv. og láta þá reyna á það, hvort hæstv. stjórnarsinnar á Alþ. vilja raunverulega rétta hlut byggingarsamvinnufélaganna eða hvort þeir vilja það ekki. Og ef þetta er afgreiðslan, þá hefur þetta bara verið hreinn fyrirsláttur, sem ég satt að segja trúi ekki enn þá, þrátt fyrir þessar upplýsingar, að hafi verið meining þessara aðila.

Ég verð að lýsa mjög miklum vonbrigðum yfir þessum vinnubrögðum og skal ekki fara um þau fleiri orðum hér, en auðvitað bíða menn með athygli eftir því að sjá þær till. húsnæðismálastjórnar um útvegun aukins lánsfjármagns, sem boðaðar eru í næsta mánuði.