27.11.1968
Sameinað þing: 15. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í D-deild Alþingistíðinda. (3665)
265. mál, akstursmælar í dísilbifreiðum
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Á s.l. vori, þegar lög um þungaskatt voru sett, var ákveðið að hafa heimild til þess að innheimta þungaskattinn eftir ökumæli.
Það er alveg rétt, sem kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda, að það skapast óréttlæti, þegar innheimt er gjald eingöngu eftir stærð eða þunga bifreiðanna. Notkun bifreiða er ákaflega mismikil eftir því, hvar þær eru staðsettar. Hv. fyrirspyrjandi nefndi t.d. Vestmannaeyjar, en það eru ýmsir fleiri staðir á landinu, sem eru hliðstæðir. Það hafa ýmsir komið að máli við mig og bent á, að þeir ættu jú vörubíl, en þeir færu sjaldan út á þjóðveginn. Aðalkeyrslan væri frá bryggju og út í frystihús, og þetta mun vera sannleikur. Þannig er það vitanlega einnig með Strætisvagna Reykjavíkur, en það er óvíst, að þeir njóti góðs af, ef þeir færu að aka eftir mæli. En þeir fara ekki út á þjóðvegina. Þeir eru á götum Reykjavíkurborgar. Það er alveg tvímælalaust réttlátt að nota mæli við þessa gjaldtöku, það er mjög réttlátt. En það er dálítið miklum erfiðleikum bundið að framkvæma þetta. Þeir einu, sem það hafa gert, eru Norðmenn og gerðu það fyrir nokkrum árum, en fyrsta árið gekk þetta hálfilla hjá þeim. Og það kom í ljós, að menn reyndu að brjóta þetta og spara sér þannig gjaldið. En Norðmenn komust fljótt yfir þessa erfiðleika og nú eru þar engar till. uppi um að hætta gjaldheimtunni með þessum hætti. Svíar hafa nú í 3 ár verið með þetta í athugun hjá sér, hvort þeir ættu að taka upp þessa reglu sem Norðmenn nota og enn hafa þeir ekki ákveðið það, vegna þess að þeir mikla fyrir sér byrjunarerfiðleikana. Þetta hefur verið í athugun hjá vegagerðinni, ekki aðeins síðan s.l. vor, heldur nokkru lengur og vegamálastjóri hefur verið á ferð í Noregi og kynnt sér þetta rækilega. Mælarnir eru þýzkir og það eru þrjár tegundir til. Ein er þó algengust í Noregi og er sérstaklega mælt með henni. Bílstjórar verða að hafa sérstaka bók, sem þeir færa á hverjum degi og svo er gert ráð fyrir, að uppgjör fari fram ársfjórðungslega, — það séu 4 gjalddagar á ári.
Spurningin er, hvort við förum að dæmi Svía og miklum erfiðleikana þannig fyrir okkur, að við frestum framkvæmdunum eins og þeir og tökum ekki ákvörðun eða hvort við tökum ákvörðun um það að gera þetta. Og ég verð að segja, að því meira, sem ég hef hugsað um þetta og því meira, sem þetta er athugað hjá vegagerðinni, því líklegra er, að þetta verði niðurstaðan. Vegagerðin hefur flutt til landsins 10 mæla og sett í bifreiðar hjá sér og er að fá nokkra reynslu af notkun þeirra. Og það hefur ekkert komið fram, sem mælir gegn því, að þessir mælar geti komið að sömu notum hér og í Noregi. Mælarnir hafa ekki bilað í þessa mánuði, sem þeir hafa verið í notkun og þeir virðast mæla alveg rétt, þannig að það á með nokkru eftirliti að vera hægt að koma þessu í kring og nota þetta hér líkt og í Noregi.
Við höfum rætt þetta mikið í rn. og við vegamálastjóra og verkfræðinga hans og ég held, að þetta verði niðurstaðan. Spurningin er: Er mögulegt að láta þetta koma til framkvæmda á miðju ári 1969 eða þarf að binda það við áramót? Þessu höfum við verið að reyna að gera okkur grein fyrir og í bréfi, sem ég fékk nýlega frá vegamálastjóra, hallast hann helzt að því að binda þetta við áramót. En þá gæti þetta ekki komið til framkvæmda fyrr en í árslok 1969. Þó er verið að athuga, hvort hægt væri að láta það koma til framkvæmda á miðju ári 1969 og hallast ég frekar að því, ef það væri mögulegt. Ég held, að vegna hins mikla ósamræmis í því fyrirkomulagi, sem við notum, verðum við að taka upp þessa reglu með mælana.
Það mun einhver segja: Þetta átti að gerast fyrr. Þið þurfið ekki svo langan undirbúning. — En það er betra að flana ekki að neinu. Og ef horfið verður að því ráði að taka mælana í notkun, verður það að vera raunhæft. Það verður að fylgja því eftir og menn verða að vera við því búnir, að þetta kosti dálítið rex og það kosti dálítil leiðindi. Stofnkostnaðurinn er að vísu ekki mjög mikill, mælarnir kosta eitthvað um 3.000 kr., — en eftirlitið verður að auka og það verður að fylgja því fram, að þetta verði í alla staði rétt framkvæmt. Og áreiðanlega er þetta ekki einfalt, úr því að Svíar hafa ekki á þremur árum tekið ákvörðun, heldur hafa það alltaf í athugun. Það er þó tæplega eitt ár, sem við höfum haft þetta í athugun og erum eiginlega að því komnir að taka ákvörðun í málinu.