02.12.1968
Efri deild: 20. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í D-deild Alþingistíðinda. (3675)
43. mál, hraðbrautir
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég er alveg sammála hv. síðasta ræðumanni. Mér finnst, að það eigi yfirleitt að bjóða út verk, sem ríkið lætur framkvæma og það er áreiðanlegt, að hraðbrautaframkvæmdirnar verða boðnar út. En það er dálítið sérstakt með þennan vegarkafla. Bæði vegagerðin og við í rn. vorum sammála um, að það væri æskilegt að byrja á þessu. En eins og hv. þm. vita, er enginn peningur í vegáætlun til þessara framkvæmda, sem nú er verið að vinna að og Aðalverktakar buðu lán með hagstæðum kjörum, ef þeir mættu vinna þetta núna. Það var búið að gera nákvæma áætlun um þetta verk. Verkfræðingar vegamálastjórnarinnar voru alveg búnir að gera sér grein fyrir því, hvað þetta mundi kosta og töldu þá samninga mjög hagstæða, sem gerðir eru við Aðalverktaka og þeir höfðu peninga. Það var því um það að ræða að láta Aðalverktaka vinna þetta núna eða byrja ekki á því fyrr en á næsta vori, er fé væri fyrir hendi í vegáætlun eða fengið að láni annars staðar. Það þótti ekki ástæða til að fara að bjóða þetta verk út án þess að hafa nokkra peninga í höndum, m.a. vegna þess að það var talið ólíklegt, að aðrir verktakar gætu lánað þetta fé en Aðalverktakar.
Nú getur vel verið, að það hafi verið skakkt ályktað, það hefðu fleiri haft peninga, en Aðalverktakar og ég vil nú segja, að það væri betur, að svo væri. En það er langt frá því, að rn. eða vegagerðin vilji gera Aðalverktökum hærra undir höfði, en öðrum verktökum. Vinnuvélaeigendur komu til mín og ræddu þetta, áður en að fullu var gengið frá samningunum við Aðalverktaka, en að vísu eftir að búið var að ákveða að gera þá samninga. Og ég sagði þeim ástæðuna fyrir þessu. Ástæðan væri sú, að við hefðum viljað koma þessu af stað. Það mundi flýta fyrir og það hefði þótt gott að geta fengið peningana að láni. En þessir vinnuvélaeigendur, sem ég vona, að séu vel stæðir, gátu ekki um það, að þeir hefðu verið tilbúnir að lána. En það er rétt, að aðallega er verksvið Aðalverktaka að vinna fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. En þeir hafa áður unnið fyrir vegagerðina, þ.e. að lagningu Reykjanesbrautar. Það efast enginn um, að það hafi gefizt vel og þá lánuðu þeir einnig drjúga upphæð. En þegar Aðalverktakar fara út fyrir áhrifasvæði varnarliðsins og flytja vélar þaðan til vinnu fyrir vegagerðina eða aðra, þá eru þeir látnir borga tolla af þessum vélum. Það er reiknað með eðlilegri fyrningu og í sambandi við þennan vegarkafla fyrir ofan Elliðaár voru það nokkrar millj., sem þeim var gert að greiða í toll, til þess að þeir nytu ekki betri kjara en aðrir verktakar hefðu notið, ef þeir hefðu tekið þetta að sér.
Mér var alltaf ljóst, að það gæti verið, að menn litu þetta misjöfnum angum. En það, sem réði úrslitum, var, að ef Aðalverktakar hefðu ekki fengið þetta verk, væri ekki byrjað á því. Og þar sem vegagerðin átti kost á tiltölulega hagstæðu láni og ákveðið er að hefja þessa vegagerð að nokkru leyti fyrir lánsfé og þar sem vegamálastjóri og verkfræðingar hans fullyrtu, að hér væri um hagstæða samninga að ræða, þá var sú ákvörðun tekin að byrja á þessu verki. Og ég held, að hv. þm. geti eftir nánari athugun fallizt á, að það hafi verið rétt að gera þetta, með tilliti til þess, að eftirleiðis er ákveðið að bjóða út, og það tilkynnti ég vinnuvélaeigendum, — að framkvæmdir á næsta vori yrðu boðnar út. Það er því ekki nema um þennan eina kafla að ræða.