27.11.1968
Sameinað þing: 15. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í D-deild Alþingistíðinda. (3690)
263. mál, öryggisráðstafanir vegna hafíshættu
Fyrirspyrjandi (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Af því að ég mælti í öndverðu fyrir þessari fsp. á fundi fyrir nokkuð löngu hef ég óskað eftir því að fá að segja nokkur orð um þingsköp í sambandi við þessar umr. Í 31. gr. þingskapa segir svo:
„Ráðh. sá eða ráðh., er hlut eiga að máli, svara þá fsp. þeirri eða fsp., sem leyfðar hafa verið og er þm. þá rétt að taka þátt í umr. Þó mega þm., aðrir en ráðh., ekki tala oftar en tvisvar um hverja fsp., og eigi lengur en 5 mínútur í senn.“
Í samræmi við þetta þingskapaákvæði hefur hæstv. forseti réttilega vitnað til þeirra og mér virðist, að hann skilji þetta ákvæði þannig, að honum sé ekki heimilt að veita mönnum orðið oftar en tvisvar sinnum í máli, — honum sé það ekki heimilt, af því að þar stendur: „Þó mega þm., aðrir en ráðh., ekki tala oftar en tvisvar um hverja fsp.“
Nú er hér um að ræða mál sérstaks eðlis, — öryggismál fyrir mikinn hluta landsins, — mál, sem var rætt fyrir alllöngu og ekki hefur verið haldið fram umr. um, en þannig stendur á um að öðru leyti, að nýjar upplýsingar hafa komið fram. Og með tilliti til þess, hvernig umr. fara nú fram um fsp., sem þó eru ekki formlega fram bornar, þá vil ég leyfa mér að leggja til munnlega, að hæstv. forseti fái leyfi fundarins til þess að víkja frá þingsköpum um þetta atriði og það sé þá á valdi hæstv. forseta að leyfa mönnum að tala oftar, ef honum þykir ástæða til og er þá gert ráð fyrir, að hann mundi í þessu tilfelli leyfa það sem hann telur sanngjarnt.