04.12.1968
Sameinað þing: 17. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í D-deild Alþingistíðinda. (3706)

80. mál, Vestfjarðaáætlun

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Hv. 4. þm. Austf. ræddi nokkuð um vinnubrögð varðandi áætlanagerðir og þá fyrst og fremst varðandi Vestfjarðaáætlun. Hann fann að því, að ekki hefðu verið gefnar skýrslur eða þessi áætlun birt strax í upphafi.

Ég þekki ekki nákvæmlega upphaf málsins, en hygg þó að ástæðan hafi verið sú, að það hafi ekki í öllu verið fastmótað um einstök verk, sem átti að vinna að og í hvaða röð þau yrðu tekin. En að öðru leyti er ég hv. þm. sammála, að það er sjálfsagt að birta svona áætlanir. Ég skýrði frá því í fyrravetur, þegar rætt var um Norðurlandsáætlun, en þá bar þessa áætlun einnig nokkuð á góma, að ég mundi hlutast til um, að gefin yrði nákvæm skýrsla um framkvæmd á samgöngumálaáætlun Vestfjarða og það er þegar farið að vinna að því. Hins vegar var málið komið á það lokastig, að mér fannst eðlilegast, úr því sem komið var, að þá yrði gefið heildaryfirlit yfir það, sem þarna hefði gerzt, að hvaða málum hefði verið unnið og hvað hefði verið lagt til hverrar einstakrar framkvæmdar. Og ég get lofað því, að það er sjálfsagt, að hv. þm. fái þetta yfirlit, og það ætti að vera auðið að gera það innan skamms, því að 1969 mun örugglega verða síðasta ár þessarar áætlunar.

Varðandi skýrslu norsku sérfræðinganna getur vitanlega komið mjög til álita, hvort rétt sé að birta hana og afhenda þm. hana. Það er sjálfsagt að taka það til athugunar. Hins vegar var þar um það almennar hugleiðingar að ræða um ýmis atriði, að ekki þótti sérstök ástæða á því stigi til að birta þessa grg., því að hún var meira hugsuð sem nokkurs konar vinnuplan varðandi áframhald áætlunargerðarinnar og hefði þá með eðlilegum hætti fallið inn í framhaldsáætlun, eftir því sem efni hefðu staðið til.

Varðandi Norðurlandsáætlun er það að segja og get ég þá vikið bæði að því, sem hv. 4. þm. Austf. og hv. 1. þm. Norðurl. v., sögðu, að ég tel alveg sjálfsagt, að sú áætlun verði birt. Eins og hv. þm. er kunnugt, eru lagðar ákveðnar línur um það í samkomulaginu við stéttarfélögin á Norðurlandi, hvernig að þessu verði unnið og það hefur allt tekið nokkurn tíma og lengt tímann að hafa þau vinnubrögð. Það á að hafa þar samráð við sveitarstjórnirnar, sem er auðvitað sjálfsagt og eðlilegt, eftir því sem áætluninni þokar áfram og jafnframt að hafa samráð við heildarsamtök verkalýðsins á þessu svæði.

Það hefur verið gengið endanlega frá fyrsta kafla þessarar áætlunar og í sumar eða síðla sumars hafa staðið yfir einmitt viðræður við þessa aðila um þennan þátt áætlunarinnar, sem er raunverulega forsenda fyrir allri frekari áætlunargerð, vegna þess að þessi kafli fjallar um sennilega byggðaþróun eða mannfjöldaþróun á þessu landssvæði á næstu tímum og vitanlega þarf að byggja ofan á það bæði hugleiðingar og áætlunargerð um atvinnumál og aðra þætti framkvæmda, sem máli skipta varðandi möguleika fyrir þann fólksfjölda til þess að taka sér búsetu eða eiga áfram búsetu á þessu svæði.

Næsti kafli þessarar áætlunar er langt kominn og fjallar hann um almenn atvinnuviðhorf á þessum stöðum, bæði almennt og á einstökum stöðum og sá kafli verður að sjálfsögðu einnig ræddur með sama hætti. Ég tel hins vegar ekki ástæðu til að birta áætlunina fyrr en hún liggur fyrir í heild.

Ég skýrði frá því á s.l. vetri, að ég vonaðist til, að þessari áætlunargerð yrði lokið á þessu ári. Ég skal að vísu játa, að þó að reynt hafi verið að vinna að því með öllum krafti, er hér um margvísleg vandamál að ræða, sem þarf að skoða nánar, þannig að ég tel ekki líkur til, að hún verði tilbúin um áramót, en henni mun verða mjög langt komið, þannig að herzlu munurinn einn mun verða eftir til þess að ganga frá áætluninni. Hvort hún svo að lokum verður í því formi, sem hv. þm. geðjast að, er önnur saga og kemur þá að því að ræða það, þegar að því kemur. En ég vil aðeins endurtaka, að ég tel sjálfsagt og eðlilegt, þegar frá þessari áætlun hefur verið gengið, að hún verði afhent hv. þm. til athugunar.