04.12.1968
Sameinað þing: 17. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í D-deild Alþingistíðinda. (3714)
266. mál, innlausn á íslenskum seðlum í erlendum bönkum
Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 100 að bera fram örstutta fsp. til hæstv. viðskrh., sem hljóðar þannig:
„Hve miklum fjárhæðum hefur Seðlabanki Íslands varið til innlausnar á íslenzkum seðlum, sem skipt hefur verið í gjaldeyri í erlendum bönkum frá 1. ágúst 1968 til þessa dags?“
Fsp. þessi gefur ekki tilefni til neinnar framsögu af minni hálfu og vænti ég þess, að hæstv. ráðh. geti gefið við henni skýr svör.