11.12.1968
Sameinað þing: 19. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í D-deild Alþingistíðinda. (3729)
267. mál, Fiskimálaráð
Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör, sem hann gaf hér við fsp. minni. Þau voru glögg.
Það er greinilegt, að allverulegur dráttur hefur orðið á því, að hæstv. ráðh. skipaði í Fiskimálaráð. Þann drátt vildi hæstv. ráðh. afsaka með því, að staðið hefði á því, að þeir aðilar, sem tilnefna eiga menn í ráðið, gengju frá sinni tilnefningu. Ég dreg það mjög í efa, að ráðh., sem skipunarvaldið er hjá, eigi að bíða mjög lengi eftir því, að aðilar ljúki jafn einföldu verki og því að tilnefna menn í þetta ráð, enda er beinlínis gert ráð fyrir því í 7. gr. laga, að ef einhver aðili, sem tilnefna á í ráðið, notar ekki heimild sína til tilnefningar, þá skuli ráðh. skipa í ráðið mann fyrir þann aðila. En hvað sem má segja um þann drátt, sem orðið hefur á skipan ráðsins, vil ég vænta, að þegar það loksins hefur endanlega verið gert, taki ráð þetta til starfa af miklum krafti, því að verkefnin eru næg.
Ég minnist þess, að í nóv. á fyrra ári, þegar mál þetta var til umr., var talsvert um það deilt, hvort stofnun sem þessi hefði nokkrum raunverulegum tilgangi að þjóna. Ég minnist þess, að a.m.k. ein rödd úr hópi hv. stjórnarliða, hv. 3. þm. Sunnl., dró sterklega í efa, að það væri rétt að samþykkja þetta frv. Hann taldi, að slíkt 19 manna ráð yrði að engu gagni, og ég minnist þess, að efnislega lét hann að því liggja, að starfsemi þess gæti jafnvel verið hagsmunum sjávarútvegsins hættuleg. Ég skal ekki leggja dóm á deilur þeirra flokksbræðranna, hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar, sem var aðaltalsmaður þessa frv. á þingi í fyrra, og hv. 3. þm. Sunnl. um þetta atriði. Væntanlega tekur ráðið til starfa og sú starfsreynsla, sem við fáum af því, verður væntanlega það glögg og skýr, að hún skeri úr um það, hvor þessara hv. þm. hafði á réttu að standa, sá þeirra, sem hélt því fram, að hér væri um vita gagnslausa stofnun að ræða, sem jafnvel gæti verið hættuleg hagsmunum sjávarútvegsins, eða hinn, sem taldi, að hér væri um merkt nýmæli og þarfa stofnun að ræða.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta. Ég vil endurtaka þakkir mínar til hæstv. ráðh. fyrir skýr og góð svör og vænti þess sem sagt, að Fiskimálaráð taki fljótlega til starfa.