11.12.1968
Sameinað þing: 19. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í D-deild Alþingistíðinda. (3745)

270. mál, gengistap áburðarverksmiðju og áburðarverð

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 100 hef ég ásamt hv. 5. þm. Austf. og hv. 6. þm. Norðurl. e. leyft mér að flytja fsp. til hæstv. landbrh., sem er svo hljóðandi:

„l. Hvað hefur gengistap Áburðarverksmiðju ríkisins numið háum fjárhæðum í íslenzkum kr. frá og með árinu 1960 til þessa dags?

2. Hvað kemur verð á áburði frá Áburðarverzlun ríkisins til með að hækka mikið í prósentum miðað við íslenzka krónu vegna gengisbreytinga 1967 og 1968?“