12.12.1968
Sameinað þing: 27. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í D-deild Alþingistíðinda. (3777)
82. mál, olíumál
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég skal með ánægju taka það til athugunar, á hvern hátt þm. yrði með einföldustu móti kynnt niðurstaða olíunefndar, sem um hefur verið að ræða. Að fjölrita eða prenta allt nál. hygg ég að yrði óþarflega dýrt, en það er enginn vandi að taka saman niðurstöðurnar og kynna þm. þær og það skal ég með ánægju gera.
Annars vildi ég fyrst og fremst leiðrétta það hjá hv. þm., að ég hafi sagt, að allur sparnaður, sem kynni að verða af endurskipulagningu olíuviðskiptanna, ætti samkv. áliti n. að renna til olíufélaganna. Í nál. er sagt, og um það urðu allir nm. sammála, að heppilegt væri að vekja áhuga olíufélaganna sjálfra á lækkuðum rekstrar– og dreifingarkostnaði, t.d. með því móti, — þetta mun ég hafa sagt orðrétt, — að nokkur hluti þess sparnaðar eða tekna af sparnaði rynni til olíufélaganna sjálfra. Og það tel ég vera tvímælalaust heppilega stefnu og heppilega skipan, að sá sparnaður, sem yrði af bættum flutningum til landsins og bættri dreifingu um landið og bættu birgðahaldi, skiptist milli notendanna annars vegar og dreifendanna hins vegar.
Það er ekki um það að ræða, að n. mæli með því, að einokunaraðstaða olíufélaganna sé vernduð, eins og hv. þm. tók til orða. Það er staðreynd, að hér eru þrjú olíu viðskipta fyrirtæki, sem eiga vægast sagt í mjög takmarkaðri samkeppni sín á milli, sem og er eðlilegt, þar sem olíuvörurnar hafa um áratugi verið háðar verðlagseftirliti. Og n. gerir engar till. um að vernda aðstöðu þeirra. Hún gerir, einungis ráð fyrir því, að þessi félög muni starfa áfram. Það, sem hv. þm. sagði um upplýsingar mínar um olíuverðið, byggist á því, að þegar hann nú eins og endranær gerir samanburð á gasolíuverði hér og í Vestur–Þýzkalandi, — það hefur hann gert og hans blað margoft áður, — þá er hann að bera saman viðskiptahætti, sem ekki verða bornir saman, þ.e.a.s. olíuviðskipti við gerólíkar aðstæður. Það verð, sem hann notar frá Vestur–Þýzkalandi, er svonefnt „bunkerverð,“ sem allir íslenzkir fiskimenn þekkja mjög vel og það er alveg rétt, að „bunkerverðið“ í Vestur-Þýzkalandi og annars staðar, þar sem verzlað er með líkum hætti, er mun lægra en verðið hérna. Verðið hér, samkv. upplýsingum, sem ég hef, var á s.l. ári um 70% hærra en „bunkerverð“ í Cuxhaven og gasolíuverðið hér var um 50% hærra heldur en „bunkerverðið“ á gasolíu í Cuxhaven, svo að ákveðið dæmi sé tekið.
Þarna fór hv. þm. algerlega með rétt mál. En viðskiptaaðstæðurnar eru allt aðrar. Þarna er um stórsölu að ræða og allt annan viðskiptahátt, en hægt er að viðhafa hér á Íslandi að óbreyttum öllum aðstæðum. Olían er flutt til meginlands Evrópu í mjög stórum skipum og siglingaleið þangað frá olíulindunum er mun styttri, en til Íslands og nemur þetta mjög verulegum upphæðum. Þá er þess og að geta, að hér er innifalið í verðinu verðjöfnunargjald, sem nemur hátt á þriðja hundrað kr. og er dreifingarkostnaðurinn um landið greiddur af þessu verðjöfnunargjaldi. En um slíkt er auðvitað ekki að ræða í „bunkerverðinu“ í Vestur-Þýzkalandi eða annars staðar. Þá ber einnig að geta þess, að um er að ræða skatt– og tollfrelsi við sölu úr „bunker“ til erlendra skipa. En hér er söluskattur, toll– og leyfisgjöld allt að því 200 kr. á hvert tonn olíunnar. Ennfremur er auðvitað miklu lægri álagning, þegar um slíka viðskiptahætti er að ræða við „bunkersölu“ og einnig getur verið, að lægra innkaupsverð fáist á olíunum, þegar keypt er inn í jafnstórum stíl og þeir viðskiptaaðilar, sem „bunkersölu“ annast, hafa aðstöðu til. Ég hygg, að meginhluti verðmismunarins sé auðveldlega skýranlegur með þessum atriðum, sem ég nefndi áðan.
Að síðustu vék hv. þm. að því, að hann þægi með mikilli ánægju, ef mér tækist að framkvæma stefnu míns flokks í olíumálunum, sem sannarlega er sú, að eðlilegasta skipanin væri, að ríkið hefði einkasölu á olíuinnflutningi og olíuviðskiptum í landinu. Það er rétt, þetta er stefna Alþfl. og Alþfl. hefur nú eins og áður lýst yfir þessari stefnu sinni og heldur fast við hana. Hann telur það vera langæskilegasta skipulagið, að olíuinnflutningur og olíuviðskipti í landi eins og Íslandi væru á einni hendi og þá er eðlilegast, að þar sé um ríkið að ræða. Hitt er annað mál, að Alþfl. hefur hvorki nú né áður aðstöðu til þess að koma þessari stefnu sinni í framkvæmd. Það á ekki bara við um Alþfl. Það á einnig við um flokk hv. þm. Hann hefur heldur ekki haft aðstöðu til þess að koma þeirri stefnu sinni í framkvæmd og þótt við tveir tækjum saman, hefðum við ekki aðstöðu til þess. Það er yfirlýst stefna tveggja stærstu þingflokkanna, að olíuviðskipti skuli í megindráttum vera í því horfi, sem þau eru nú, þó að ég geri fastlega ráð fyrir því eða voni það, að samkomulag verði um að gera á þeim þær endurbætur, sem hugsanlegar eru á grundvelli núverandi meginskipulags. En ég vildi minna hv. þm. á, að það er ekki aðeins ég, sem er í þeirri aðstöðu, sem ég er nú, að fara með viðskiptamál án þess að hafa aðstöðu til þess að koma stefnu míns flokks í framkvæmd. Hann hefur áður sjálfur setið í sama ráðherrastóli og ég sit. Hann var um nokkurra ára bil viðskrh. og varð ég ekki var við og hefur enginn orðið var við það, að honum hafi þá tekizt að koma stefnu síns flokks í framkvæmd. Ég get því ekki séð, að ég sé ámælisverður eða minn flokkur fyrir það, að við að þessu leyti getum ekki komið stefnu okkar flokks í framkvæmd, frekar en hann er ámælisverður fyrir að hafa setið í sama stóli og ég í 21/2 ár án þess að koma sinni stefnu í framkvæmd.