12.02.1969
Sameinað þing: 28. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í D-deild Alþingistíðinda. (3789)

124. mál, lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Ef gera ætti þessari fsp. viðhlítandi skil, yrði ég að fara langt út fyrir þann umræðuramma, sem ætlazt er til í fsp.–tíma Alþ. og sé á þessu stigi ekki ástæðu til að gera það, en vil um leið skýra frá því, að ég er reiðubúinn til þess að láta hv. fyrirspyrjanda í té skriflega allar þær upplýsingar, sem ég hef um málið og skal gera það, ef það er hans vilji og ósk. Að öðru leyti er svar mitt þetta:

Með bréfi rn., dags. 6. apríl 1966, var skipuð 5 manna n, til að semja frv. til l. um almennan lífeyrissjóð. Þingflokkarnir tilnefndu sinn manninn hver í n., en formaður var skipaður án tilnefningar og er Sverrir Þorbjörnsson forstjóri 'Tryggingastofnunar ríkisins formaður n. Aðrir nm. eru þessir: Erlendur Vilhjálmsson deildarstjóri, Guðjón Hansen tryggingafræðingur, Hannibal Valdimarsson alþm. og Ingvar Gíslason alþm. N. hefur ekki enn lokið störfum. Samin hafa verið drög að frv. með grg., sem ég ætla, að séu til athugunar hjá stjórnmálaflokkum þeim, sem fulltrúa eiga í n.

Drög þessi hafa verið rædd all ítarlega í n. Einstakir nm. hafa enn ekki tekið afstöðu til einstakra atriða í þessum frv.–drögum og um skeið í haust féllu fundahöld í n. niður vegna sjúkdómsforfalla formanns. Um þessar mundir eru fundahöld að hefjast að nýju í n. og er þess að vænta, að þá muni ljósara um afstöðu einstakra nm. til málsins.

Að öðru leyti ítreka ég svo boð mitt um að láta hv. fyrirspyrjanda í té allar upplýsingar, sem ég hef um málið, ásamt þeim frumvarpsdrögum, sem þegar hafa komið frá nefndinni.