13.12.1968
Sameinað þing: 21. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í B-deild Alþingistíðinda. (379)

1. mál, fjárlög 1969

Frsm. samvn. samgm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Samkv. till. samvn. samgm., sem samkv. venju hefur undirbúið till. um flóabátastyrki og flutningastyrki, er lagt til, að heildarfjárveiting til flóabáta og vöruflutninga verði á árinu 1969 13 millj. 620 þús. kr. Er það 3 millj. 155 þús. kr. hærra en á árinu 1968. N. hefur því orðið að gera verulegar till. um hækkanir hjá einstökum flóabátum og flutningafyrirtækjum. Fyrst og fremst kemur þetta fram í hækkun á styrk til fjögurra stærstu flóabátanna. Við till. um styrki til hinna minni báta er fyrst og fremst tekið tillit til hækkunar olíuverðs, sem verður vegna gengisbreytingarinnar um 10%.

Till. n. eru nú eins og jafnan áður við það miðaðar, að haldið verði uppi þeim nauðsynlega rekstri og þjónustu, sem flóabátarnir og flutningafyrirtækin inna af hendi. Það hefur oftlega verið um það rætt, bæði í hv. n. og hér í hv. Alþ., að æskilegt væri og raunar mjög nauðsynlegt, að færa saman þennan rekstur, að fækka flóabátum og draga úr útgjöldum til þessarar þjónustu. Þegar til stykkisins hefur komið, hefur þetta ekki reynzt mögulegt þrátt fyrir það, að n. hefur hvað eftir annað lagt til, að heildarendurskoðun færi fram á rekstri dýrustu flóabátanna.

Ég mun nú gera stuttlega grein fyrir till. n. í sambandi við einstaka flóabáta. Er þá fyrst að drepa á Norðurlandssamgöngur. Norðurlandsbáturinn Drangur hefur haldið uppi ferðum um farsvæði sitt eftir þörfum á þessu ári, en eins og kunnugt er skapaðist fyrir skömmu akvegasamband við kaupstaðina Ólafsfjörð og Siglufjörð. Við það gerbreyttist aðstaða flóabátsins, þar sem þessir staðir þurftu þá fyrst og fremst og raunar aðeins á ferðum hans að halda að vetrarlagi, þegar vegir eru tepptir vegna snjóalaga. Allmikil óvissa hefur verið um það, hvernig hagað yrði rekstri þessa báts á næsta ári. Útgerðarmaður Drangs hefur haft uppi ráðagerðir um það að hætta þessum rekstri og hefur raunar sett skip sitt á söluskrá. Ekki hefur þó enn úr því orðið að skipið yrði selt, og niðurstaðan hefur orðið sú, að útgerðarmaðurinn, Steindór Jónsson, hefur boðizt til þess að halda uppi svipuðum ferðum og áður í 7 mánuði ársins, þ.e. á næsta ári, gegn nokkurri hækkun ríkisstyrksins. N. taldi óhjákvæmilegt að taka þessu tilboði útgerðarmannsins og leggur til, að styrkurinn til Drangs verði hækkaður um 400 þús. kr., enda verði þá haldið opnum möguleikum til þess, að hann víkki farsvæði sitt í samráði við Skipaútgerð ríkisins. Er þá fyrst og fremst haft í huga, að báturinn taki upp ferðir til Austfjarðahafna. Einnig hefur verið nefnt, að hann víkkaði farsvæði sitt vestur um Húnaflóa og rækti t.d. nokkra þjónustu við Strandahafnir, sem við mikla samgönguerfiðleika eiga að etja að vetrarlagi. En það er skoðun n., að nauðsynlegt sé, að rekstur þessa báts verði tekinn á næstunni til ítarlegrar athugunar og þá í senn haft samráð við útgerðarmanninn, sem á skipið og hefur rekið það af myndarskap á undanförnum árum, og héruðin, sem eru á farsvæði hans.

Þá er lagt til, að styrkur til Strandabáts hækki um 10 þús. kr., styrkur til Haganesvíkurbáts um 5 þús. kr. og styrkur til Hríseyjarbáts um 10 þús. kr. Enn fremur er lagt til, að styrkur til Grímseyjar vegna flugferða hækki um 10 þús. kr.

Um Austfjarðasamgöngur er það eitt að segja, að þær eru í svipuðu horfi og áður, og er lagt til, að styrkur til Mjóafjarðarbáts hækki um 20 þús. kr. Þá er lagt til, að styrkur til snjóbifreiðar á Fjarðarheiði hækki um 50 þús. kr. og styrkur til snjóbifreiðar á Fagradal hækki um 15 þús. kr. Er rétt, að það komi fram, að samkv. þeim upplýsingum, sem n. hefur fengið, hefur orðið mjög mikið gagn af rekstri þessara snjóbifreiða, sérstaklega á s.l. vetri, sem var mjög snjóþungur.

Um Suðurlandssamgöngur er það að segja, að lagt er til, að þær haldist með sama hætti og áður. Smávægilegar hækkanir verða þar á styrk til vöruflutninga, þ.e.a.s. til Vestur-Skaftafellssýslu. Hins vegar haldist flutningastyrkurinn til Öræfa óbreyttur, styrkur til Vestmannaeyjabáts hækki um 40 þús. kr. og styrkur til vatnadreka við Skeiðará, sem reynzt hefur hið gagnlegasta tæki, verði hækkaður um 5 þús. kr.

Faxaflóasamgöngur eru með sama hætti og verið hefur. Það hefur orðið mjög verulegur rekstrarhalli á rekstri m.s. Akraborgar, sem annast ferðirnar milli Reykjavíkur og Akraness, og er fjárhagur fyrirtækisins mjög þröngur. Hefur þó verið reynt að gera rekstur þessa skips hagkvæmari með því að fækka í skipshöfn þess, en það hefur ekki náðst samkomulag um það enn við fagfélögin.

Nú hefur útgerðarstjórn skipsins þá breytingu í hyggju að láta heimahöfn þess á næsta ári verða Akranes, þannig að það hefji ferðir sínar frá Akranesi að morgni. Er talið af þessu verulegt hagræði fyrir Akurnesinga, sem aðallega nota skipið og ferðast með því til Reykjavikur, og eru nokkrar vonir byggðar á því, að um farþegafjölgun geti orðið að ræða, sem bæti afkomu fyrirtækisins eitthvað.

Það varð niðurstaða n. að leggja til, að styrkurinn til Akraborgar yrði hækkaður um 600 þús. kr. Það er rétt, að það komi fram, að n. hefur hvað eftir annað hvatt til þess, að rekstur þessa flóabáts yrði tekinn til sérstakrar athugunar. En það verður að viðurkenna, að ekki hefur mikill árangur af þeim hvatningarorðum orðið enn þá. Þó má geta þess, að sérstök n. er starfandi til þess að athuga samgöngur umhverfis Hvalfjörð.

Um Breiðafjarðarsamgöngur er það að segja, að lagt er til, að styrkur til vetrarflutninga yfir Kleifaheiði verði hækkaður úr 25 þús. kr., en sú upphæð var falin inni í fjárveitingu eða styrk til Flateyjarbáts, upp í 150 þús. kr. Ástæða þessa er fyrst og fremst sú, að stofnað hefur verið mjólkursamlag Vestur-Barðastrandarsýslu og reist mjólkurstöð á Patreksfirði, sem á að tryggja Patreksfirðingum og nálægum byggðarlögum betri mjólk. Það er mjög þýðingarmikið, að samgöngur séu sem öruggastar milli sveitanna og þorpanna í Vestur-Barðastrandarsýslu. Reynt hefur verið á undanförnum árum að halda uppi ferðum af Barðaströnd með beltisdráttarvél yfir Kleifaheiði til Patreksfjarðar, þegar snjóalög hafa hindrað ferðir bifreiða. Nú var talið nauðsynlegt að efla þessa starfsemi mjög, og þess vegna leggur n. til, að tekin verði upp sérstök fjárveiting til vetrarferða yfir Kleifaheiði og verði hún samtals 150 þús. kr.

Styrkur til Flateyjarbáts hækkar smávægilega.

Er þá komið að Stykkishólmsbátnum Baldri, sem á í stöðugum þrengingum. Erlend lán hvíla á þessum bát með miklum þunga og áhrif gengisbreytingarinnar að sjálfsögðu auðsæ á afkomu hans. Á s.l. ári varð nær 1 millj. kr. halli á rekstri skipsins umfram ríkisstyrk, og var þó ekkert til afskrifta. Forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, sem verið hefur nefndinni nú eins og jafnan áður til ráðuneytis um úthlutun flóabátastyrkja, lagði til, að styrkur til þessa skips yrði hækkaður úr 2 millj. kr. á yfirstandandi ári upp í 4 millj. kr. Svo hörmuleg var afkoma bátsins talin og rekstrarhorfur hans erfiðar. N. taldi sér ekki fært að taka upp í till. sínar svo gífurlega styrkhækkun til eins báts, en taldi þó óumflýjanlegt að koma verulega til móts við óskir um hækkaðan styrk og lagði til, að styrkurinn yrði hækkaður um 1100 þús. eða upp í 3.1 millj. kr. á næsta ári. N. ítrekar sínar fyrri till. um það, að rekstur þessa báts og fjárhagsvandamál hans í heild verði tekin til ýtarlegrar athugunar og úrlausnar.

Styrkur til Langeyjarnesbáts, sem einnig gengur um sunnanverðan Breiðafjörð, hækki um 15 þús. kr. Vestfjarðasamgöngur eru mjög í sama horfi og áður.

Djúpbáturinn h.f. á Ísafirði hefur haldið uppi sömu ferðum með Fagranesi. Farsvæði þess er fyrst og fremst Ísafjarðardjúp og kauptúnin í Vestur-Ísafjarðarsýslu.

N. leggur til, að styrkur til þessa báts hækki um 400 þús. kr. aðallega vegna áhrifa gengisbreytingarinnar á erlend lán fyrirtækisins. Styrkur til þriggja smábáta á Vestfjörðum, Dýrafjarðarbáts, Patreksfjarðarbáts og Skötufjarðarbáts hækkar smávægilega.

Þá er það till. n., að tekin verði upp 150 þús. kr. fjárveiting til Suðureyrarhrepps í Súgandafirði vegna kaupa á snjóbíl. Hreppurinn keypti á þessu ári snjóbíl til þess að halda uppi ferðum yfir Botnsheiði til Ísafjarðar að vetrarlagi. Er hér um að ræða hæsta fjallveg á Vestfjörðum, sem að jafnaði er lokaður vegna snjóalaga 6–7 mánuði á ári hverju. Í þessu sambandi má geta þess, að Súgfirðingar eru nú læknislausir og þurfa að sækja læknisþjónustu til Ísafjarðar. Þannig stendur einnig á um Flateyri, sem er fjölmennasta kauptúnið í Vestur-Ísafjarðarsýslu, og horfur eru á því, að jafnvel Þingeyri verði læknislaus. Það er því auðsætt, að fyrir þennan snjóbíl geti orðið ærið verkefni, þótt ekki væri til annars en að stuðla að skaplegri læknisþjónustu, ef þung snjóalög verða á yfirstandandi vetri.

Samkv. því, sem að framan segir og ég gat um í upphafi, leggur samvn. samgm. til, að heildarfjárveiting til flóabáta og vöruflutninga verði á árinu 1969 kr. 13 millj. 620 þús., og er það rúmlega 3.1 millj. kr. hærra en á yfirstandandi ári.