19.02.1969
Sameinað þing: 29. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í D-deild Alþingistíðinda. (3813)

133. mál, efnahagssamvinna Norðurlanda

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Eins og kom fram hjá hæstv. viðskrh., þá er sú viðleitni, sem er gerð til þess að koma á nánara efnahagssamstarfi Norðurlandanna fjögurra, hluti af samstarfi þeirra innan EFTA og það hefur þess vegna verið skoðun bæði ríkisstj. og þeirra manna, sem eru kunnugastir þessum málum og hafa mest að þeim unnið, að það væri þýðingarlaust fyrir Ísland á þessu stigi að taka þátt í þeim rannsóknum, sem nú eiga sér stað, fyrr en við höfum sjálfir ákveðið, hvort við viljum gerast aðilar að EFTA og getum fengið þau skilyrði, er við teljum okkur aðgengileg.

Þess vegna má segja, að leiðin til þessa samstarfs liggi um EFTA. Hitt er svo annað mál, að okkur hefur verið gefinn kostur á að fylgjast með því starfi, sem nú er unnið. Viðskrh. var á fyrsta fundinum í apríl í vor, eins og hann drap á og það var því síður en svo, að við sýndum nokkurt fálæti í þessum efnum. Þar var ráðgert, hvernig undirbúningi málsins yrði hagað, en skjótt kom í ljós, að hann er svo víðtækur, að við höfum ekki nægum sérfræðingafjölda á að skipa til þess að taka þátt í athugun málsins að nokkru gagni. Ég held líka, að við verðum að gera okkur ljóst, að hvort sem við að lokum höfum hug á því að ganga í þetta nánara samstarf eða ekki, sem í bili beinist að fullkomnu tollabandalagi, — og er þó hugsanlegt að lykti á einhvern annan veg, án þess að málið verði að teljast misheppnað, að menn finni aðra leið til þess að tryggja þau markmið, sem eftir er keppt, en tollabandalagið — að við þurfum að gera okkur þess grein, að í samningum um einstök atriði og raunar málið í heild getum við sáralítil áhrif haft. Ef við litum á þær tölur, sem hér er um að ræða, þá erum við einungis einn á móti hverjum 100 íbúum í Norðurlöndunum í heild. Hinar þjóðirnar eru sem sagt svo miklu mannfleiri en við, að þær samanlagt eru 99 á móti hverjum 1 okkar. Þess vegna getum við ekki vænzt þess að ráða miklu um heildarfyrirkomulag þessara mála eða um þau efni, er ekki varða okkur alveg sérstaklega. Við hljótum því að mestu að vera áhorfendur á meðan verið er að semja um málin í heild. Þegar við svo sjáum í hvaða farveg þau fara, þá verðum við að taka ákvarðanir um, hvort við teljum að hann sé slíkur, að okkur sé hægt að vera með í förinni og þá að reyna að koma að þeim fyrirvörum og þeim sérákvæðum, sem okkur mundu verða óhjákvæmileg, ef við eigum að gerast þarna aðilar og í sjálfu sér höfum við ekki ástæðu til annars en að gera ráð fyrir, að fullur velvilji verði sýndur á því að veita okkur slíka sérstöðu. Það eru þó viss takmörk fyrir því, hversu langt er hægt í þeim efnum að ganga, ef við á annað borð viljum vera með.

Ég held þess vegna, að það sé ekki miklu spillt, þó að við höfum ekki verið með í undirbúningnum fram að þessu. Við höfum fengið þær heildarskýrslur, sem samdar hafa verið. Okkur hafa verið veitt greið svör við þeim spurningum, sem við höfum borið fram. Mér var meira að segja gefinn kostur á því að mæta á fundi, sem einmitt í dag og í gær er haldinn austur í Helsingfors á meðal forsrh. fjögurra, án þess að aðrir trúnaðarmenn, en einn frá hverjum séu viðstaddir, til þess að eiga kost á því að fylgjast með, á hvaða stigi málin eru. Vegna þess að ekki þótti tímabært enn að taka upp sérstök atriði, sem okkur gátu skipt máli, þá taldi ég ástæðulaust að fara á þann fund. Alveg eins og það er víst, að við höfum engu glatað með því að vera ekki á þeim sérfundum, sem þannig hafa verið haldnir fram að þessu, samkvæmt því sem upplýst var á fundinum í Stokkhólmi í byrjun mánaðarins.

Þó að ég telji mjög óvíst ennþá, hvort við getum gerzt aðilar að þessu samstarfi og það sé komið undir því, hvort við fáum þau kjör um inngöngu í EFTA, sem við teljum okkur aðgengileg og síðan hvers eðlis samstarfið á milli hinna fjögurra verður, sem enginn veit ennþá né raunar heldur, hvort úr því verður, þá eru viss atriði, sem ég tel alveg tímabært fyrir okkur nú þegar að gera okkur grein fyrir og átta okkur á, og það var efni þess, að ég stóð hér upp nú, en ekki það, að ég teldi mig þurfa að betrumbæta skýrslu hæstv. viðskrh. Það eru viss atriði, sem eru forsenda þess, að við getum gerzt þarna aðilar, sem við höfum enn ekki treyst okkur til að fallast á. Þar mundi ég telja fyrstan af öllu sameiginlegan vinnumarkað. Það er algjör forsenda fyrir því samstarfi, sem þessar fjórar þjóðir nú eru að koma á hjá sér, að þær eru búnar að hafa sameiginlegan vinnumarkað í mörg ár. Við höfum hingað til ekki treyst okkur til þess að veita mönnum frá öðrum þjóðum slíkt jafnrétti á við okkur. Það eru til þess ríkar ástæður, m.a. sögulegar, smæð okkar og ýmislegt annað, sem okkur er ríkt í huga. En það er tómt mál fyrir okkur að tala um að gerast aðilar að því nána samstarfi, sem þessar þjóðir eru að koma á hjá sér, — miklu nánara samstarfi, en þær eiga innan EFTA, þar sem ekki reynir á þetta atriði út af fyrir sig, — nema við treystum okkur til þess að vera aðili að sameiginlegum vinnumarkaði. Ég spyr þá líka bæði sjálfan mig og aðra og ég játa, að ég hef ekki svör á reiðum höndum við því í dag: Eru þær hættur samfara sameiginlegum vinnumarkaði, sem við hingað til höfum talið vera? Er það okkar reynsla, að hingað sé slík ásókn af mönnum frá öðrum þjóðum og þá í þessu tilfelli frá hinum Norðurlöndunum, að það skapi okkur nokkra raunverulega hættu að breyta um afstöðu í þessu? Og er það ekki nú þegar tímabært og til athugunar fyrir ráðamenn hér, bæði stjórnmálaflokka, verkalýðshreyfingu og atvinnurekendur, að taka þetta til athugunar? Eigum við ekki að breyta hér til? Eigum við ekki að gera tilraun með það, hvort þær hættur eru fylgjandi sameiginlegum vinnumarkaði, sem við hingað til höfum talið vera? En ég legg áherzlu á, ef menn treysta sér ekki til stefnubreytingar í þessu atriði, þá er allt tal um það, að við nálgumst þá auknu samvinnu, sem nú er verið að reyna að koma á í hinum löndunum, þýðingarlaust hjal.