19.02.1969
Sameinað þing: 29. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í D-deild Alþingistíðinda. (3817)
133. mál, efnahagssamvinna Norðurlanda
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Fyrir fáeinum vikum gerðist það, sem er tiltölulega sjaldgæft á vettvangi stjórnmálanna, að eitt af vinstri blöðum hv. stjórnarandstöðu, sem nýlega er farið að koma út í sinni núverandi mynd, gerði mér þann sóma að birta af mér mynd og tilfæra orðrétt alllangan kafla úr ræðu, sem ég flutti við vantraustsumr., sem fóru fram á hv. Alþ. seint í nóvembermánuði. Þetta er tiltölulega óvenjulegt, að svo vinsamlega sé minnzt á ræður andstæðinganna, því að því miður er það oftast svo á vettvangi stjórnmálanna, ef andstæðingablöð yfirleitt geta um ræður andstæðinganna, þá er það ekki nema með útúrsnúningi og skætingi, en venjan er sú að þegja alveg. Í þessari grein kom samt fram allmikill misskilningur, sem ég vil leyfa mér að leiðrétta einmitt að sérstöku gefnu tilefni af hálfu hv. 1. þm. Norðurl. v., þegar hann var að tala um árásir, sem ég hefði gert á hinn mæta, látna stjórnmálaskörung, prófessor Magnús Jónsson. Þessi misskilningur virðist vera ákaflega ríkur og djúpstæður, því nú hef ég síður en svo ástæðu til þess að ætla, að umrætt málgagn hafi vísvitandi mistúlkað mín sjónarmið. En sá misskilningur virðist vera ákaflega ríkur, að ef gagnrýnd er framkvæmd haftakerfisins, þá sé það persónuleg árás á þá menn, sem tekið hafa þátt í framkvæmd þess. Ég tók það einmitt skýrt fram í minni ræðu, — en því var sleppt í þessu, sem birtist í umræddri grein, —að ég væri hvorki að gera árás á stjórnmálamenn almennt eða þá mætu menn, sem hefðu haft framkvæmd þessa með höndum, heldur sagði ég, að svona hlyti framkvæmdin alltaf að verða í landi kunningsskaparins, og tel ég þó sízt til bóta, þegar hv. framsóknarmenn t.d. eru með tillögu um það að skipa einhverja slíka n. fulltrúum stéttasamtaka eða þess háttar. Ég tel það sízt til bóta, því að hvað sem má um stjórnmálaflokkana segja, þá er þó hægt að gera þá ábyrga gerða sinna, sem miklu síður er tilvikið með stéttarsamtök, að maður nú ekki tali um banka og aðrar slíkar stofnanir.
Það virðist mjög útbreiddur misskilningur, að til sé einhver ákveðin niðurröðun verkefna, hvort heldur eru fjárfestingarframkvæmdir, innflutningur eða annað, sem allir séu sammála um og ef frá þessari niðurröðun sé vikið, þá beri það vott um spillingu. Aðalatriði málsins er, að það er engin slík niðurröðun til. Að vísu höfum við, sem staddir erum í þessum sal, kannske einhverjar óljósar hugmyndir um slíka niðurröðun, bæði innflutnings– og fjárfestingarverkefni o.s.frv., en ég held, að ef skoðanakönnun færi fram á meðal okkar, þá mundu engir tveir vera sammála um þessa niðurröðun. Það er þetta, sem er aðalatriði málsins og einmitt með tilliti til þess, hvað t.d. er nauðsynjavara og hvað ekki, eru skoðanir á því kannske jafnmargar og þjóðfélagsborgararnir. Þá er það ekki svo ákaflega hneykslanlegt, þó að við vitum allir, hver áhrif það hafði á mat þeirra, sem sátu í innflutningsn., hvað væri nauðsynlegt og hvað væri ekki nauðsynlegt, hvaða fyrirtæki það var, sem hafði umboð fyrir umrædda nauðsynjavöru. Framsóknarmennirnir í n. töldu það hafa þýðingu við mat á því, hvort einhver vara væri nauðsynjavara eða ekki, hvort það var Samhandið, sem flutti hana inn. Ef svo var; þá lyfti það vörunni upp í stiganum og sama máli held ég að hafi gegnt um fulltrúa Sósfl. þegar um var að ræða fyrirtæki, sem studdu þann flokk og verzluðu austan járntjalds. (Gripið fram í.) Ætli það hafi ekki verið eins með Sjálfstfl. og Alþfl., að það spillti engu, ef vitað var um viðkomandi fyrirtæki, að það legði fram fjármuni og annað til styrktar viðkomandi flokki? Í því efni held ég, að allir hafi verið í einum bát.