05.03.1969
Sameinað þing: 34. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í D-deild Alþingistíðinda. (3837)

276. mál, Vesturlandsvegur

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 283 hef ég leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. samgrh.:

„l. Var lagning Vesturlandsvegar, þ.e. sá hluti, sem nú er unnið að, boðin út, áður en framkvæmdir hófust?

2. Ef svo var ekki, hver er þá ástæðan til þess, að Íslenzkir aðalverktakar voru ráðnir til að sjá um framkvæmd verksins án útboðs og hver tók þá ákvörðun?

3. Hafði ekki Vegagerð ríkisins sjálf möguleika á að vinna verkið á jafnhagkvæman hátt? Hefur hún haft verkefni í haust og vetur fyrir vinnuvélar sínar og þá starfsmenn, sem þarf að sjá fyrir vinnu svo að segja allt árið, eins og um fasta starfsmenn væri að ræða?“