05.03.1969
Sameinað þing: 34. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í D-deild Alþingistíðinda. (3839)

276. mál, Vesturlandsvegur

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans við þessari fsp. minni og hef ekkert út á þau að setja, því að þau skýrðu það alveg, sem eftir var sótt.

Hins vegar vil ég leyfa mér að vekja athygli hv. þm. á því, að það, sem hér er að gerast er, að það er verið að framkvæma verk á vegum ríkisins með tilliti til þess, hvaða aðili í landinu er það fjársterkur, að hann geti lánað fé til að framkvæma verkið. Verkið er ekki boðið út, að því er hæstv. ráðh. segir af því að ekki er talið, að neinn annar gæti lánað til verksins. Það er ekki metið, hvort Vegagerðin sjálf geti framkvæmt verkið, af því að ekki er fjárveiting til þess. Einn aðili í landinu er orðinn það fjárhagslega sterkur að dómi hæstv. ráðh., að hann getur lánað til þessa verks í 3 ár og þá er hann skilyrðislaust látinn vinna verkið án þess að bera saman, hvort Vegagerðin sjálf hafði hagnað af því að vinna það eða hvort það væri hægt að ná hagkvæmari samningum með útboðum. Þetta sýnir okkur, að við erum hér sem í fleiru á hættulegri braut og verðum að gera okkur grein fyrir því, hvort við ætlum að fara að láta þá eina framkvæma verk í landinu, sem hafa aðgang að fjármagni og geta þannig lánað ríkissjóði.

Ég vara við þessari stefnu og vek athygli á henni, en hef ekkert út á svör ráðh. að setja í sambandi við fsp. mína. Það, sem ég einmitt óttaðist var, að það væri verið að fara inn á þessa braut, sem ráðh. hefur staðfest að er.