12.03.1969
Sameinað þing: 35. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í D-deild Alþingistíðinda. (3851)

163. mál, skuldir Íslendinga við aðrar þjóðir

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Ég er eins og hv. 1. þm. Norðurl. v. á því, að ekki eigi að vera almennar umr. í sambandi við fsp., en mér þótti hlýða áðan að spyrja hæstv. ráðh. um mat hans á þeim mjög svo alvarlegu tölum, sem hann birti okkur. Þessar tölur eru hrikalega háar. 2.260 millj. í eina saman vexti og afborganir eru yfir 10 þús. kr. á hvert mannsbarn í landinu, um 50 þús. kr. á hverja meðalfjölskyldu að jafnaði. Og þetta eru skuldir, sem á okkur hvíla eftir mesta velmegunartímabil í sögu þjóðarinnar.

Mér urðu það mikil vonbrigði, að hæstv. fjmrh. skyldi reyna að gera lítið úr þessum vanda. Það fannst mér hann gera í báðum ræðum sínum. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að það var rétt hermt hjá Jónasi Haralz 1959, að 11% voru há tala. Hann sagðist þá ekki vita um nema eitt land í víðri veröld, sem svo væri ástatt fyrir. En þessi tala er miklu hærri. Talan 11% var ein af aðalröksemdunum fyrir viðreisnarstefnunni. En núna í lok viðreisnartímabilsins er þessi tala orðin miklu hærri.

Hæstv. ráðh. sagði, að verulegur hluti af auknum skuldum síðan 1963 hefði farið til framleiðslutækja, sem skiluðu gjaldeyri. En á því tímabili, sem hæstv. ráðh. talar um, er svo ástatt á Íslandi, að gjaldeyristekjur okkar jukust ár frá ári. Um 5 ára skeið varð aukningin svo mikil, að hún nemur á núverandi gengi um 14 milljörðum króna fram yfir meðalár. Á árinu 1966 urðu gjaldeyristekjur okkar af útflutningi tvöfalt hærri, en þær eru í meðalári. Í stað þess, að þessar miklu gjaldeyristekjur væru notaðar til þess að lækka skuldir og kaupa ný framleiðslutæki, var þeim öllum eytt og í ofanálag tekin stórfelld erlend lán. Og þetta er mjög alvarleg staðreynd, vegna þess að nú, þegar að kreppir, er augljós nauðsyn fyrir okkur, ef við ætlum að efla atvinnuvegi okkar, að verða okkur úti um lánsfé. En þjóð, sem skuldar svo mikið, að hún verður að verja yfir 15% af árlegum gjaldeyristekjum sínum í vexti og afborganir, getur varla haft mikið eðlilegt lánstraust. Ég geri ráð fyrir, að hæstv. ráðh. geri sér vonir um, að við getum e.t.v. notið einhvers óeðlilegs lánstrausts, en það er ekki í samræmi við framtíðarhagsmuni okkar sem sjálfstæðrar þjóðar. Ég staðhæfi, að þjóð, sem skuldar svo mikið, að hún verður að nota um það bil sjötta hluta af árlegum gjaldeyristekjum sínum til að borga vexti og afborganir, nýtur ekki lánstrausts erlendis. Og þetta er einhver harðasti dómur, sem unnt er að kveða upp yfir fjármálastjórn viðreisnartímabilsins. Á þessu tímabili urðu gjaldeyristekjur okkar og þjóðartekjur hærri, en nokkru sinni fyrr í sögunni. Okkur áskotnuðust feiknalega miklar fúlgur umfram það, sem gerist í eðlilegu árferði, en engu að síður hefur þessi ríkisstj. lagt á okkur þyngri skuldabagga en dæmi eru um, ekki aðeins hér á landi, heldur nokkurs staðar í víðri veröld.