26.03.1969
Sameinað þing: 37. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í D-deild Alþingistíðinda. (3868)
174. mál, fæðingardeild Landsspítalans
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Um þetta mál, sem hér hefur borið á góma, hef ég á þskj. 336 ásamt tveimur hv. þm. flutt till. til þál. um, að Alþ. skori á ríkisstj. að hefja sem allra fyrst byggingarframkvæmdir við stækkun Fæðingardeildar Landsspítalans, þar sem verði komið upp sérstakri kvensjúkdómadeild með fyllstu aðstöðu til nútíma geislalækninga. Þessi till. er að vísu á dagskrá þessa fundar, en þar sem hæpið er, að hún komist að vegna annarra mála, sem á undan eru, tel ég rétt að segja hér örfá orð um málið, þó að mér sé ljóst, að í fsp.—tíma með 5 mínútna ræðutíma er ekki hægt að gera þessu máli nein viðhlítandi skil.
Það er mjög að vonum, að málefni fæðingardeildarinnar og kvensjúkdómadeildarinnar séu ofarlega á baugi um þessar mundir, svo aðkallandi, sem úrbæturnar eru orðnar. Og þá má líka segja, að hv. alþm. hafi hrokkið upp með andfælum, þegar hógværar, en ákveðnar kröfur lækna og annars starfsliðs þessara stofnana voru lagðar hér fram, bæði í bréfi frá Bandalagi kvenna, sem hér hefur verið rakið og eins með áskorun frá starfsliði þessara stofnana. Og nú liggja fyrir þrjú þingmál um málefnið.
Það hefur vissulega verið gert ýmislegt í heilbrigðismálum á undanförnum árum, eins og hæstv. heilbrmrh. var að lýsa, enda mætti nú fyrr vera, ef gróðaár landsins hefðu gengið sporlaust yfir á sviði heilbrigðismálanna. En mörgum virðist, og ég tek undir með hv. 6. þm. Reykv. þar, að meira hefði átt að gæta fyrirhyggju í þeim framkvæmdum og skipulags en gert hefur verið og má nefna bæði byggingarframkvæmdir á Landsspítalalóðinni og Borgarspítalann í þessu sambandi, þó að ekki sé tími til að fara út í það nú, en verður kannske hægt að gera því einhver skil síðar.
Þær tvær byggingar, sem einna lengst hafa staðið á Landsspítalalóðinni, sjálft gamla sjúkrahúsið og fæðingardeildina, hefði fyrir löngu átt að vera búið að sameina til ómetanlegs hagræðis fyrir alla starfsemina, í stað þess að byggja við gamla spítalann í allar áttir, eins og búið er að gera og fara svo eftir það, 1965 að athuga, hvernig eigi að skipuleggja framkvæmdir á lóðinni. Þar er alveg farið í öfugan enda á málinu, eins og allir hljóta að sjá. Teikningar af þessum framkvæmdum hafa legið fyrir frá árinu 1956, eins og hér hefur verið rakið.
Ég fer ekki út í það að lýsa núverandi aðstöðu á þessum deildum í þessum stutta ræðutíma. Til þess má vísa m.a. til þess, sem fram hefur komið hér og svo til þess bréfs frá Bandalagi kvenna, sem hv. alþm. allir hafa á sínum borðum. Ég skal ekki leiða neinum getum að því, hvað þessi framkvæmd kann að kosta, enda er erfitt að gera kostnaðaráætlanir á þessum tímum og vafalaust kostar hún nokkurt fé. Ég hef t.d. heyrt nefnda töluna 30 millj. kr. Kannske er það eitthvað of lágt. Og ég skal játa, að 30 millj. kr. er allmikið fé. En í hlutfalli við þá hagsmund, sem hér eru í húfi, kalla ég það smámuni, hreinustu smámuni. Svo má líka draga frá þessari tölu kostnaðinn við bráðabirgðabyggingu hæstv. heilbrmrh., sem hann var að lýsa áðan, að nú ætti að ráðast í, eftir að tækin eru búin að vera fyrir hendi í 3 ár.
Fyrir skömmu átti ég þess kost að skoða aðstæður á þessum deildum og tala við lækna og annað starfslið. Og af samtölum við Pétur Jakobsson yfirlækni, Guðmund Jóhannesson lækni, Jón Hannesson lækni og Gunnlaug Snædal lækni ásamt yfirhjúkrunarkonum á kvensjúkdómadeild, yfirljósmóður á skurðstofu, er mér alveg ljóst, að það er hvergi ofsagt í þeim bréfum og grg., sem þetta fólk befur látið frá sér fara. Þvert á móti vil ég segja, að þar sé í mörgum greinum furðulega hógværlega til orða tekið. Ég eftirlæt hæstv. heilbrmrh. að leiðrétta þær missagnir, sem kunna að vera í bréfi Bandalags kvenna. Það er mál, sem ég blanda mér ekki í, en ég hef séð þessar aðstæður og af þeirri skoðunarferð er mér alveg ljóst, að hér verður að taka myndarlega í strenginn. Þess vegna skora ég á heilbrigðisyfirvöldin, hæstv. heilbrmrh. og alla hv. alþm. að kynna sér allar aðstæður á umræddum sjúkrahúsadeildum og tala við fólkið sem þar starfar. Slík kynnisferð er áreiðanlega áhrifameiri en allar þær ræður, sem við getum haldið, því að sjón er sögu ríkari. Og ég er sannfærður um það, að öllum hlýtur að fara eins og fór fyrir mér, að eftir að ég hef fengið að sjá og reynt að skilja það, sem hér er á ferðinni, mun ég hvar sem er og hvenær sem er veita þessu máli það lið, sem ég frekast get. Og ég lýsi því hér með yfir, að sú úrlausn, sem hæstv. heilbrmrh. tilkynnti áðan, að beðið yrði eftir framkvæmdum í 6—7 ár, er algerlega fráleit og Alþ. verður að taka fram fyrir hendurnar á ríkisstj., ef þetta er hennar ákveðna leið.