26.03.1969
Sameinað þing: 37. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í D-deild Alþingistíðinda. (3871)
174. mál, fæðingardeild Landsspítalans
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég skal ekki halda langa ræðu, enda ekki tími til þess.
Hæstv. heilbrmrh. kallaði þessi ræðuhöld mín og hv. 6. þm. Reykv. skrípaleik. Ég felli mig ekki við þá nafngift. (Gripið fram í.) Eitthvað var það, sem mátti skilja þannig, held ég, hjá hæstv. ráðh., hvaða orð sem hann svo notaði. Ég sætti mig ekki við það, að þegar tekin eru fyrir alvarleg mál, eins og þetta vissulega er, sé það hártogað og sagt, — ég vil kannske ekki endurtaka, að það hafi verið kallaður skrípaleikur, af því að ég man ekki orðið fyrir víst, en eitthvað var það, sem mátti skilja á þá lund, — leikaraskapur líklega. Ég neita því náttúrlega ekki, að það getur vel verið, að ég hafi verið eitthvað pínulítið hressilegri í ræðustólnum, en ég á vanda til, þegar allir þessir áborfendur eru hérna viðstaddir. Það má vel viðurkenna það. En ég játa, að ég hafði ekki áttað mig á því, hvernig ástandið var í þessum málum, fyrr en bréfin frá þessum konum bárust hingað. Hafa aðrir hv. þm. gert það? Hefur hæstv. heilbrmrh. gert það? Þeir, sem hafa gert það og þagað, eru miklu sekari en við, sem höfum talað um þessi mál í dálítið hressilegum og hvössum tón.
Það er rétt, að ég hef ekki flutt um nokkurt skeið till. til aukinna fjárveitinga í heilbrigðismálum. En það er ekkert langt síðan ég gerði það. Og ástæðan til þess, að ég gafst upp við það er auðvitað sú, að þær hafa alltaf verið felldar. Nei, þetta bréf og þessi skrif um málin hafa vakið mig til alvarlegrar umhugsunar um það, að hér þurfi úrbóta við og kvensjúkdómalækningar séu ásamt geðlækningum, eins og hér hefur komið fram, þær sjúkdómsgreinar, sem mesta áherzlu þurfi að leggja á úrbætur í. Og þegar frá því er skýrt, að sjúklingar með krabbamein í móðurlífi séu sendir deildinni af öllu landinu og stór hluti þeirra fari á biðlista, eins og hv. síðasti ræðumaður kom að, þá er sannarlega þörf á því að athuga sinn gang. Með skipulagðri leit, sem krabbameinsfélögin hafa tekið upp á þessum sjúkdómi, hafa líkurnar stórkostlega aukizt á því að finna hann á viðráðanlegu stigi. Og hvílík hörmuleg ógæfa er það þá ekki, ef aðstöðu til framhaldsmeðferðar og lækninga vantar.
Ég skal ekki ræða núna, — það gefst kannske kostur á því síðar — um skipulag á þessum málum öllum, það skipulag á lóðinni, sem er efst í huga ráðamanna, að leggja niður núverandi Hringbraut, taka hana undir bílastæði, byggja nýja Hringbraut, byggja svo brú yfir nýju Hringbrautina til þess að sameina Landsspítalalóðina, sem þá ætti að ná suður undir Hafnarfjarðarveg. Þetta er sjálfsagt mjög glæsileg áætlun, en ég er hræddur um, að hún kosti talsvert fé og ég er hræddur um, að þá verði að opna budduna rækilegar en þó að fallizt yrði á að byggja þessa kvensjúkdómadeild, sem við erum að ræða um. Nei, það er góðra gjalda vert og viðurkenningarvert, að konur hafa tekið þetta mál þannig upp, að þær hafa vakið áhuga þm. og ég skammast mín ekki fyrir að viðurkenna, að vegna þeirra skrifa hefur áhugi minn á þessu máli vaknað. En það væri æskilegt, að áhugi hæstv. ráðh. hefði einnig vaknað af þessu tilefni.