26.03.1969
Sameinað þing: 37. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í D-deild Alþingistíðinda. (3873)

174. mál, fæðingardeild Landsspítalans

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Mér finnst það ekkert aðalatriði að koma höggi á hæstv. heilbrmrh. í þessu máli, því að það er staðreynd, að Alþ. hefur ekki veitt fé til þess að bæta úr húsakosti fæðingardeildarinnar, sem með hefði þurft. Hitt má kannske segja, að hann hafi ekki leitað nægilega fast eftir því. En ég tók eftir því, að hann ræddi mikið um byggingarsögu á Landsspítalalóðinni og sagði frá átökum um það, hvernig ætti að koma þar byggingum fyrir og taldi, að framkvæmdir yrðu að bíða, þangað til úr þessu væri skorið. Ég veit, að það hafa verið átök milli byggingarn. Landsspítalans, skipulagsyfirvalda Reykjavíkurborgar og læknadeildar háskólans um þessi mál og þetta hefur vafalaust valdið töfum á aðgerðum. En hér þarf ráðh. að taka af skarið. Og það er það, sem ég tel hans skyldu að gera, láta ekki þessi yfirvöld rífast um málið ár eftir ár. Það er búið að standa til boða að fá kóbalttæki í þjónustu íslenzkra heilbrigðismála í 3 ár. Þau 3 ár eru liðin og svo blasir kannske við, að það tefjist í önnur 3 ár. Það er óþolandi að horfa á slíkt ástand, sem hér ríkir í þessu máli. Það er nægilegt rými til þess að byggja við Fæðingardeild Landsspítalans og það er hægt að koma þeirri byggingu upp. Ég er alveg viss um, að það muni vera hægt að leysa fjárhagshliðina á því máli. Og allra helzt er þetta hægt, þegar búið er þá að gefa vilyrði fyrir og nokkurn veginn að ákveða, að lóðin verði síðar stækkuð og þá er hægt að sjá fyrir hégóma eins og bílastæðum. Bílastæði á Landsspítalalóðinni mega ekki standa í vegi fyrir aðgerðum í svo bráðaðkallandi heilbrigðismáli sem þessu.

Það að færa Hringbrautina og stækka Landsspítalalóðina og endurskipuleggja hana, velta vöngum yfir skipulagsteikningu á henni má ekki standa í vegi fyrir því, að svarað sé bráðri lífsnauðsyn í aðgerðum heilbrigðismálayfirvalda á þessu sviði.