13.12.1968
Sameinað þing: 21. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (389)
1. mál, fjárlög 1969
Björgvin Salómonsson:
Herra forseti. Ég hef flutt hér á þskj. 169 brtt. þess efnis, að Vatnsveita Vestmannaeyja hljóti sérstaka fyrirgreiðslu á fjárl. næsta árs með 25 millj. kr. framlagi úr ríkissjóði.
Ég ætla, að um þessa till. þurfi ekki að hafa langt mál, og það hefur nú reyndar aðeins verið vikið að henni hér á undan, en ég mun víkja að því á eftir, en allir hv. þm. vita, hve sérstæð framkvæmd Vatnsveita Vestmannaeyja er. Og ég vil í því sambandi vekja sérstaka athygli á því, að samkv. upphaflegum útreikningum Efnahags stofnunarinnar var gert ráð fyrir, að neðansjávarleiðslurnar tvær, sem ráðgert er að leggja til Vestmannaeyja, mundu kosta samtals 54 millj. króna, og er þar að langmestu leyti um kostnað að ræða, sem greiða verður í erlendum gjaldeyri, þar sem erlendir aðilar sjá einnig um lagningu neðansjávarleiðslunnar. Frá því þessi áætlun var gerð hefur hæstv. ríkisstj. hins vegar fellt gengi ísl. krónu tvívegis og þar með hækkað þessa kostnaðarliði um trúlega allt að 100%. Þessi kostnaður er, eftir því sem mér er tjáð, allur ógreiddur, og hér er því um gífurleg áföll að ræða fyrir Vestmannaeyjakaupstað, gengistap, sem nemur tugmilljónum króna. Slíkri greiðslubyrði tel ég, að hæstv. ríkisstj. geti ekki velt yfir á eitt bæjarfélag bótalaust, þegar það liggur líka fyrir Alþ., að hér er verið að útdeila gengishagnaði til ýmissa aðila, sem orðið hafa fyrir gengistapi. Ríkissjóður eykur tekjur sínar hins vegar stórlega með umræddum gengisfellingum, og það virðist því vægast sagt sanngirnismál, að hann létti af bæjarfélaginu a.m.k. hluta gengistapsins, eins og farið er fram á í þessari till.
Varðandi það, sem hv. þm. Guðlaugur Gíslason sagði um þetta mál, kom það einmitt fram í hans ræðu, hversu mikil aukning greiðslubyrðinnar verður af þeim gengisfellingum, sem hæstv. ríkisstj. hefur framkvæmt frá því, að Efnahagsstofnunin gerði sína áætlun. Hann skýrði frá því, að hækkunin, sem varð á lagningu neðansjávarleiðslunnar, aðeins vegna gengisfellingarinnar í fyrra, næmi 11.6 millj. kr., þ.e.a.s., að upphaflega áætlunin var 24 millj., en bókfærður kostnaður nú er talinn 35.6 millj., eða sem sagt hækkun um 11.6 millj. Síðan kemur þessi nýjasta gengisfelling ofan á þetta. Ég ætla nú ekki að gera þetta mál að frekara umræðuefni hér. En það kom m.a. fram í ræðu hv. þm., að síðara áfanga þessarar vatnsleiðslu verður alls ekki frestað, vegna þess hve það er nauðsynlegt fyrir framleiðslu, sem stendur undir svo að segja öllu atvinnulífi Vestmannaeyinga, þ.e.a.s. fiskframleiðslunni, að fá þetta vatn. Það er knúið á um það, og það þarf fremur að hraða þeim áfanga heldur en ekki. Ég skal ekki heldur dæma um það, hvað hv. þm. hefur fyrir sér í því, að Vestmannaeyingar álíti, að tilmælum þeirra hafi verið vel mætt í þeim till., sem hv. fjvn. eða hv. meiri hl. fjvn. gerir til úrbóta í því fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir til umræðu. Það er mín skoðun, að þar hefði verið um allverulega bót að ræða, ef ekki hefðu komið til þær tvær gengisfellingar, sem hér bætast ofan á þann kostnað, og ég vildi nú mega vænta þess, að þessi brtt. mín nái stuðningi einnig þessa hv. þm.