09.04.1969
Sameinað þing: 39. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í D-deild Alþingistíðinda. (3907)
279. mál, framkvæmd á lögum nr. 83/1967
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Með lögum um almannatryggingar er, eins og öllum hv. alþm. er kunnugt, sérstakri stjórn falin framkvæmd þessara laga, sem er skipuð fulltrúum allra flokka og ég veit ekki til að, að störfum þessa ráðs, sem svo er nefnt, tryggingaráðs, hafi verið fundið hingað til, enda virðist ekki hafa verið mikill áhugi á breytingum um þetta mál, ef í slíkri stjórn, sem er jafn víðfeðmt skipuð og tryggingaráð er, að ekki skuli hafa komið upp ein einasta till. um að breyta í þessa átt. Það er m.ö.o. niðurstaða starfsmanna Tryggingastofnunarinnar og að því er ætla verður tryggingaráðs, þar til annað reynist, að það fyrirkomulag, sem nú er á þessum hlutum, sé betra en sú athugun, sem bráðabirgðaákvæðið talar um, að fram skuli fara. Það kemur skýrt fram í því bréfi, sem ég las upp áðan. Ég verð að ítreka, að ég hef ekki heyrt um áhuga á því, að þetta ákvæði væri lagt út eða framkvæmt, eins og hv. fyrirspyrjandi talar um og endaði sín orð með því, að það væri skylda ríkisstj. að sjá svo um, að þetta ákvæði yrði uppfyllt. Ég efast ekkert um, að það er skylda ríkisstj. yfirleitt að sjá um framkvæmd laga, en eðlilegast væri, að till. um það efni kæmu þá frá þeim stjórnum, sem Alþ. kýs sjálft til þess að framkvæma ákveðna lagabálka. Engin slík till. hefur komið fram og ekkert um þetta mál heyrzt, fyrr en hv. fyrirspyrjandi kemur því á framfæri með þessari fsp. sinni. Yfirleitt er það traust borið til þessara þingkjörnu stjórna, að þær geri till. um það til sinna rn., hvaða atriði skuli lögð áherzla á í framkvæmd og hvað brýnast sé að framkvæma hverju sinni.