16.04.1969
Sameinað þing: 0. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í D-deild Alþingistíðinda. (3918)
280. mál, mál heyrnleysingja
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Það er mjög ánægjulegt, þegar áhugi vaknar fyrir nauðsynjamálum. Það hefur gerzt tvisvar sinnum, að þegar þm. hafa flutt mál til efnislegrar meðferðar í þinginu og ákvörðunar, hafa aðrir þm. rokið upp til handa og fóta og borið fram fsp. um sama mál, þannig að þeir gætu komið fsp. til umr. á sömu dagskrá, en á undan. Þessi forumr. um mál heyrnleysingja hefur farið af stað sökum þess, að fsp. var borin fram á Alþ. um sama mál og þáltill. hafði verið borin fram um og eru þessi mál á dagskrá samtímis, þ.e.a.s. fsp. á undan, þáltill. á eftir. Þetta mál er því á dagskrá á eftir til almennrar efnislegrar umr. og til ákvörðunar fyrir þingið. Mál eins og þetta verður ekki afgreitt með spurningu og svörum um það, hvernig málið standi.
Till. sú, sem ég stend að flutningi að ásamt öðrum þm., er þannig:
„Þar eð Heyrnleysingjaskólinn býr nú við allsendis ófullnægjandi húsnæði, ályktar Alþ. að skora á ríkisstj. að hefja þegar á næsta vori byggingu 1. áfanga fyrirhugaðrar byggingar Heyrnleysingjaskólans, svo að honum verði búin forsvaranleg ytri skilyrði og starfsaðstaða og gert unnt að gegna þýðingarmiklu hlutverki sinu.“
Ég leitaði samflutnings um málið og urðu þeir til þess hv. 11. þm. Reykv. og hv. 6. þm. Sunnl., þ.e.a.s. sá maður, sem sat í hans sæti hér sem varamaður, þegar hann sjálfur var á Norðurlandaráðsþingi. Ég fór þess einnig á leit við þm. úr liði Alþfl. að vera meðflm. að málinu, en þeir höfnuðu því. Sýnir þetta, að ég vildi fá sem almennastan stuðning við flutning málsins, — að ég ætlaði mér ekki að hafa það sem neina rós í hnappagat, heldur heimsótti ég þennan skóla og ég komst við af því ástandi, sem þar ríkir vegna vanbúnaðar af ríkisins hendi. Og það var því sannfæring mín, að það yrði að flytja málið til efnislegrar meðferðar og afgreiðslu á Alþ. og það mætti ekki undan dragast, að Alþ. hæfi framkvæmdir eigi síðar en á næsta vori til þess að bæta úr þessari aðstöðu.
Það er aðeins einn skóli rekinn í okkar landi fyrir þessi fötluðu börn, mállaus og heyrnarlaus í flestum tilfellum og á ýmsum stigum þó og hann er vanbúinn að öllu leyti. Það er til vansæmdar. Ég held, að ég láti mér nægja, að minna aðeins á örfá atriði í sambandi við þetta mál nú, því að ég geri ráð fyrir, að málið verði rætt síðar í dag.
Ég vil aðeins segja, að þegar menn deila um, hvort eigi að hafa heyrnarlaus börn í sérskóla eða í samskólum, þá er ekki hægt að segja annaðhvort eða alls ekki. Ég þekki dálítið til almennra skóla og ég veit, að þar yrði alger misþyrming á heyrnardaufum og heyrnarlausum börnum að hafa þau í 40 nemenda bekkjum, án þess að það verði við skólann nokkur sérfróður kennari um kennslu slíkra barna. Það væri hið mesta glapræði. Það væri afbrot gegn þessum börnum. Og ég hef borið mig saman við fleiri skólamenn og þeir komast allir að þeirri niðurstöðu, að það væri afbrot gagnvart börnunum að setja þau í almenna skóla með fullskipaða bekki. Heyrnarlausum börnum verður ekki kennt, — það ber öllum saman um, — í fjölmennari bekk en 5—8. 8 er algert hámark samkvæmt öllum þeim plöggum, sem ég hef, frá Noregi, Danmörku og Svíþjóð og þar er talað af sérfræðingum. Auk þess er alls staðar á því hamrað, að það verði að sjá börnunum fyrir sérfræðilegri kennslu. Það verður eins og kostur er að nota öll tæki, alla magnara og heyrnartæki, sem hægt er að nota í þjónustu slíkrar kennslu og það verður umfram allt að hafa sérfróða kennara. Á öllum þessum sviðum erum við vanbúin. Það hefur verið vitnað í danskan lækni, sem heldur því fram, að börn, sem þjást af heyrnarleysi, eigi að vera í almennum sérskólum og það er rétt, að þessi læknir hefur verið hér á ferð og hann hefur verið spurður í íslenzkum blöðum og svarað á einum stað alveg hiklaust, að börnin eigi að vera í almennum skólum. Hann segir:
„Kennslan ætti ekki að fara fram í sérstökum skólum, heldur innan veggja barnaskólanna í sérbekkjum“, — segir hann þó, — „þar sem börnin nytu kennslu sérhæfra kennara. Það ætti ekki að einangra börnin, heldur kenna þeim að lifa í eðlilegu umhverfi.“
En væri nú hægt að tryggja þeim sérkennslu í barnaskólunum almennt? Það væri ekki hægt. Þess vegna verður að færa þau saman. Danir hafa komið á hjá sér mjög fullkomnu kerfi að því er þetta snertir, en ég hef plögg, sem ég get gert þm. kunnug, sem sýna, að þar þykjast þeir þurfa að koma á samstarfi sveitarfélaga og borga á svo stóru svæði, að það sé a.m.k. um 30 þús. börn á skólaskyldualdri að ræða, til þess að hægt sé að fá bekk af heyrnardaufum börnum, sem hægt sé að flokka niður á þau stig, sem verði að greina þau í sundur, til þess að þau njóti kennslunnar. Þar sé ekki hægt að hafa 14 og 16 ára börnin saman. Það verður að taka þau, sem eru á sérstöku stigi heyrnar og stokka þau í sundur og þá dugi ekki minna en samstarf borga og sveitarfélaga í Danmörku, sem hafi 30 þús. skólaskyld börn. Það þýðir, að við verðum auðvitað að hafa sérskóla hér, þó að við notum þann möguleika, sem sjálfsagður er, að hafa öll þau börn, sem eru með minni heyrnarskerðingu en helming, í almennum skólum, ef við getum tryggt þar sérfróða kennslu. En ef við getum það ekki, verðum við að hafa þau í sérskólum og umfram allt verður að nota alla tækni nútímans þessum börnum til hjálpar og aðstoðar.
Hér hefur verið vitnað í nál. þeirra lækna og sérfræðinga, sem ríkisstj. skipaði til athugunar á þessum málum, sem kemst að þeirri niðurstöðu, að það væri glapræði hið mesta að hætta við byggingu Heyrnleysingjaskólans og ég er þeirri niðurstöðu fyllilega samþykkur, af því að ég veit, að það er algerlega utan við möguleika almenningsskólanna að taka þetta hlutverk að sér. Og það væri auðvitað andleg misþyrming á börnunum, því að þau fyllast minnimáttarkennd, þegar þau umgangast hin börnin, sem ekkert er að og geta þannig ekki á neinn hátt staðizt samkeppni í náminu við þau. Það væri að brjóta þau andlega niður líka.
En heyrnarskemmdir eru tvenns konar eftir því, sem sérfræðingurinn Stefán Skaftason læknir segir og hann hefur látið þetta frá sér fara, með leyfi hæstv. forseta. (Forseti: Forseti minnir á, að ræðutími er búinn.) Já, ég skal aðeins stela einni mínútu og ég vona, að mér verði ekki dæmt það til afbrota, því að ég er að skýra frá niðurstöðu sérfræðings um þetta. Hann segir, að heyrnleysi sé tvenns konar: Í fyrsta lagi, að ef heyrnleysi stafar af bólgu eða ígerð, muni láta nærri, að um 400 Íslendingar þjáist af slíkum heyrnarskemmdum og flestum þessum er hægt að bæta heyrnardeyfuna, sem af slíkum skemmdum stafar, með tækjum og uppskurði og öðrum lækningaaðferðum. En í öðru lagi er um að ræða skemmdir í heyrnartaug eða í heila, sem geta m.a. stafað af því, að móðir hefur fengið rauða hunda um meðgöngutímann, og er ekki langt síðan um 20 börn fæddust hér með slíkum heyrnarskemmdum. Hvað segir læknirinn um þessi börn? Hann segir: Þessar skemmdir getur engin skurðaðgerð læknað. Og það er einmitt vegna rauðra hunda, sem gengu 1963 og 1964, að hin mikla aukning nemenda í Heyrnleysingjaskólanum er og það eru þess vegna börn að öllum líkindum af þessari gerð, sem við verðum að sjá fyrir húsnæði og kennsluaðstöðu og sérfróðum kennurum. Þetta er okkar vandamál, og þarna virðist vera um að ræða, að þarna verði ekki, að því er þennan hóp snertir, komið lækningaaðgerðum við.