16.04.1969
Sameinað þing: 0. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 866 í D-deild Alþingistíðinda. (3919)
280. mál, mál heyrnleysingja
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Þar sem ég er meðflm. að þeirri þáltill. um byggingu Heyrnleysingaskóla, sem hv. 9. þm. Reykv. gat um áðan og þar sem sá siður er tekinn upp að ræða þingmál í fsp.–tímum, af hverjum ástæðum sem það er, skal ég láta liggja á milli hluta og með því, að hér hafa komið fram raddir um, að þessi bygging væri óþörf, vegna þess að nýjar aðferðir væru hentari, þá þykir mér rétt að láta þessar umr. um fsp. ekki fara svo fram hjá mér, að ég segi ekki nokkur orð. Þessi málefni Heyrnleysingjaskólans hafa lengi verið í deiglunni og það eru nokkur ár síðan yfirstjórn fræðslumála var ljóst , að hér var í mikið óefni komið. Vöknuðu þá vonir um, að rösklegt átak yrði gert í málefnum skólans. Þá voru sett lög um þennan skóla, þá var úthlutað lóð undir þennan skóla, þá var gerður uppdráttur að góðum húsakosti fyrir þennan skóla og þá var tekin upp fjárveiting fyrir þennan skóla, að vísu ekki há, 300 þús. kr., til þess að hefja undirbúning. En síðan hefur ekkert gerzt.
Ég hef í allan vetur verið í talsverðu sambandi við nokkra af foreldrum og aðstandendum þessara fötluðu barna ásamt mörgum öðrum og þm. alveg áreiðanlega, því að þetta fólk er duglegt að vinna fyrir sín mál. Það hefur líka ríka ástæðu til þess að vera það. Framan af þinginu gerðum við okkur vonir um, að nokkur leiðrétting fengist á þessum málum í sambandi við afgreiðslu fjárl. Það voru gefnar vissar vonir um það af fjvn.—mönnum, að fjárveiting til skólans yrði tekin upp á fjárl. yfirstandandi árs, en þessi von brást. Fjárlög 1969 voru afgreidd í desembermánuði s.l., án þess að nokkur fjárveiting til þessa heyrnleysingjaskóla væri þar á meðal útgjaldaliða. Þess vegna var það, að nokkrir þm., eins og hér hefur verið gerð grein fyrir, undir forustu hv. 9. þm. Reykv., sem hér talaði áðan, fluttu þáltill., þar sem það var beinlínis lagt undir meðferð Alþ. hvort þm. vildu, að í þessa byggingu yrði ráðizt, og lagt var til, að í hana yrði ráðizt. Þessi till. hefur legið fyrir þingi síðan í upphafi framhaldsþings án þess að komast til meðferðar og er það náttúrlega eitt af mörgum dæmum um það, hversu þýðingarlítið það er að flytja þáltill. í Sþ. um aðkallandi vandamál. Ég fer ekki nánar út í það að sinni. En vegna þeirra radda, sem komið hafa fram um það, að e.t.v. væri hér á ferðinni mál, sem ekki hefði mikla þýðingu, þar sem nýjar kennsluaðferðir væru komnar til, þá vil ég náttúrlega í fyrsta lagi segja, að ég hef ekki aðstöðu eða þekkingu til þess að dæma þar um. En það er alveg eindregin skoðun mín, að þrátt fyrir þær nýju aðferðir, sem boðaðar eru og hér hafa verið örlítið kynntar, verður það aldrei fullnægjandi lausn þessara mála. Það hlýtur alltaf að þurfa sérskóla fyrir hluta af þessum börnum, eins og hér hefur raunar verið lögð áherzla á. Mér er fyllilega kunnugt og okkur flm. um þann góða skerf, sem Zontaklúbbur Reykjavíkur hefur lagt til úrlausnar málefnum heyrnarlausra og ýmislegt, sem sá félagsskapur hefur til leiðar komið. Og jafnframt er okkur kunnugt um það sjónarmið þessa fólks, að ekki eigi að leggja áherzlu á kennslu í sérskólum. Ég hef lesið grein eftir Stefán Skaftason lækni, sem hér hefur mikið verið vitnað til. Ég hygg, að öllum þm. hafi verið send hún. Hún var birt í málgagni Rauðakrossins, Heilbrigt líf, í 1. tölublaði 1968. Og ég segi það enn og aftur, að ég hef ekki skilyrði til að gera upp á milli þeirra aðferða, sem þarna koma til greina og báðar eiga sér ákveðna og snjalla formælendur. En ég vænti þess, að hv. þm. hafi líka kynnt sér álitsgerð sérfræðinganefndar, sem menntmrn. skipaði og skilaði áliti 11. febr. s.l. og ég vænti þess, a.m.k. vonast til þess, að hafi menn ekki gert það, þá kynni þeir sér þau fskj., sem þessu áliti fylgja, því að þau eru mörg og þau eru ekki sammála því, sem þessi danski sérfræðingur, sem hér hefur verið vitnað til og ég man ekki í svipinn hvað heitir, heldur fram. Það er ekki eins og það hafi verið fundin algild formúla fyrir lausn þessara mála, þó að þessi sérfræðingur hafi sett sína tilgátu fram og hann eigi nokkra formælendur. Það eru mjög margir sérfræðingar á annarri skoðun, mjög margir. Og ég er alveg sannfærður um það, að jafnvel þó að þessi nýja aðferð eigi vaxandi fylgi að fagna, þá er svo langur vegur frá því, að hún ein geti leyst þessi mál hér á landi. Það er kannske hugsanlegt, — við skulum segja, að það sé hugsanlegt að leysa málefni heyrnardaufra og heyrnarlausra barna í Reykjavík á þennan hátt. En hversu langt hlýtur ekki að verða þangað til málefni þeirra barna, sem svipað er ástatt með og eiga heima annars staðar, geta leystzt með því, að það séu sérstakar kennsludeildir í skólunum víðs vegar um landið. Ég sé ekki fram á það. Ég vonast fastlega til þess, að þegar þessi þáltill. kemur til umr. og atkvgr., þá sýni þm. á jákvæðan hátt, að þeir séu þessarar skoðunar með því að samþykkja till. og ég skal svo geyma mér að öðru leyti frekari umr. um þetta mál.