23.04.1969
Sameinað þing: 43. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í D-deild Alþingistíðinda. (3950)
194. mál, tollstöðvarbygging við Reykjavíkurhöfn
Fyrirspyrjandi (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Ég skal aðeins hafa þetta örfá orð. Ég fagna því út af fyrir sig, að það kom fram í viðbótarsvörum hæstv. ráðh. að það hafði ekki gleymzt að gera ráð fyrir farþegaskoðun í þessu mikla húsi. Hvernig á því stendur, að hún er höfð uppi á annarri hæð skal ég láta liggja á milli hluta. Ég hélt að það hefði verið hentugra að hafa hana á neðstu hæð. (Gripið fram í.) Já, en það er gengt frá neðri hæð hússins fram á hafnarbakkann undir brúnni. Það hygg ég, að þeir, sem hafa skoðað húsið, hefðu getað komizt að raun um, enda væri það erfitt, ef ekki væri hægt að koma vörunum inn undir brúna. (Gripið fram í: Já, en fólkið á ekki að ganga þar.) Nei, fólkið á ekki að ganga þar. Það er ákvörðun stjórnarvalda, að fólkið skuli ekki ganga þar.
Þetta var fyrri aths. Sú síðari er um það, að þetta hús væri það stórt, að ekki væri vit í því að hafa það allt ónotað. Ég er því algerlega sammála. Það eina, sem mig furðar á í þessu sambandi, er það, að ekki skyldi vera haldið eftir fyrir tollgæzluna hæfilegum hluta af þessu húsnæði, sem hefði hentað þessari skoðun hjá öðrum skipafélögum, sem ég minntist á, en tíminn er búinn, og ég skal ekki ræða um þetta f rekar.