30.04.1969
Sameinað þing: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í D-deild Alþingistíðinda. (3976)

283. mál, Kísilvegur

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. fyrir svörin, sem ég tel fullnægjandi og hef raunar engu við þetta að bæta. Það má segja, að það sé ánægjulegt, að þarna hefur verið byggður vegur þó að, að sumra dómi hefði hann mátt vera meira í byggð, en um það mál ætla ég ekki að ræða hér og vonandi verður ekki síðar litið á þetta sem síðasta árið, sem vegir voru byggðir úti um landið.