30.04.1969
Sameinað þing: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í D-deild Alþingistíðinda. (3980)

284. mál, smíði skuttogara

Fyrirspyrjandi (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Full ástæða væri til að ræða svo ýtarlega sem tími leyfir í fsp.–tíma um þróun togaraútgerðar á Íslandi undir viðreisnarstjórn og þann seinagang, sem er á efndum á fyrirheitum, sem gefin hafa verið í sambandi við kosningar um viðbrögð til endurreisnar þeirri útgerð, en hvort tveggja kemur til, að bæði þessi atriði, niðurlæging togaraútgerðarinnar og seinagangur á úrbótum, eru svo alkunnar staðreyndir, að um þær þarf naumast að ræða og svo hitt, að nú líður að þinglokum og fjöldi mála bíður á dagskrá. Veldur þetta hvort tveggja því, að ég flyt fsp. mínar á þskj. 455 án frekari formála. Þær eru svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

l. Hvað líður störfum skuttogaraefndar?

2. Hefur n. gert till. um ákveðna stærð skuttogara?

3. Hafa verið gerðar ráðstafanir til að tryggja lánsfé til að smíða skuttogara innanlands?

4. Hvaða áform hefur ríkisstj. um fjárhagslega fyrirgreiðslu handa væntanlegum kaupendum?