07.05.1969
Sameinað þing: 47. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í D-deild Alþingistíðinda. (3993)

224. mál, fréttastofa sjónvarps

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Hv. formaður Framsfl. jók ekki á hróður sinn né flokks sins með þeirri ræðu, sem hann flutti hér áðan. Satt að segja var ræða hans fyrir neðan allt velsæmi. Ætti hann, ef hann kynni mannasiði, að biðjast afsökunar á henni hér á eftir. Formaður Framsfl. sagði, að það væri rangt, að ég hafi aldrei haft afskipti af því, þegar viðtal hefði verið haft við mig í sjónvarpinu. Á skrá fréttastofustjórans eru efni þeirra viðtala, sem við mig voru höfð á því tímabili, sem ég gat um áðan. Þau voru um EFTA–umsóknina, um breytingar á Tækniskólanum, um viðræður við viðskrh. Breta og um norræna eldfjallarannsóknarstöð. Ég man eftir því í öll þessi skipti, hvernig það bar að, að ég var beðinn um þessi viðtöl. Þessi staðhæfing er rétt og getur hv. formaður Framsfl. talað við menn, sem hann á greiðan aðgang að í fréttastofu sjónvarpsins, til þess að fá staðfestingu á þessu. (Gripið fram í.) Þá er öll tungan í þér svört. Ég hef einnig komið fram í viðtalsþáttum í sjónvarpinu og þá alltaf á móti stjórnarandstæðingi, þar á meðal þessum hv. þm. Ef hann kannast ekki við það, þegar við vorum beðnir um þætti, sem við vorum saman í, þeir hafa verið tveir, held ég, þá svertist tungan í honum enn.

Formaður Framsfl. leyfði sér einnig að segja, að það væri rangt, sem ég hefði sagt, að ég hafi aldrei haft nokkur afskipti af fréttaflutningi Ríkisútvarpsins. Eitthvað hikaði hann nú, þegar hann heyrði sjálfan sig segja þetta, því að hann endurtók setninguna og sagði: „Eitthvað er þá orðið öðruvísi en áður var, ef ráðh. hefur aldrei afskipti af neinu, sem gerist innan útvarpsins.“ Ég býst við, að það sé alveg rétt, að hér sé mikið breytt frá því, sem áður var, t.d. frá því að fyrrverandi formaður hans flokks var menntmrh. Ég man eftir ákveðnu dæmi frá hans valdatíma sem menntmrh., þegar hann setti af einn af fréttamönnum útvarpsins fyrir kommúnistískan fréttaflutning, þegar hann tók hann úr fréttastofunni og flutti hann í annað verk í stofnuninni, af því að hann taldi sig hafa sannað á hann, hann taldi sig persónulega hafa sannað á hann, að hann beitti fréttastofunni í þágu kommúnistísks heimsáróðurs. Ef það er þetta, sem eftirmaður hans á við, þá get ég sagt honum, að slíkt hef ég aldrei gert og aldrei talið mig þurfa að gera, aldrei í þau 12 eða 13 ár, sem ég hef haft með þessa stofnun að gera. Þetta kann að hafa tíðkazt áður fyrr, meðan hans flokkur réð meiru um mál þessarar stofnunar, en hann gerir nú. S.l. áratug hefur aldrei neitt þvílíkt átt sér stað og mun ekki gerast, meðan ég fer með völd í þessum efnum. En ég segi, að það sé neðan við allt velsæmi að bera á borð rangar staðhæfingar, nema þá að geta staðið við þær, staðhæfingar, sem síðan reynast rangar.

En ég ætla að benda hv. þm. á einfalt ráð til að standa við sínar staðhæfingar, mjög einfalt ráð. Það er starfandi stór hópur fréttamanna við útvarpið, við hljóðvarpið og sjónvarpið, sem hann á greiðan aðgang að. Ef hann getur fengið vitnisburð einhvers af þessum stóra hópi manna um, að ég hafi nokkurn tíma rætt við þá og gagnrýnt fréttir, rætt við þá um að breyta frétt eða haft nokkur afskipti af nokkrum þeirra um nokkra frétt, sem í útvarpinu hefur birzt, þá óska ég þess, að hann geri það. Ef hann getur það ekki, þá lýsi ég hann ósannindamann og ætlast til þess, að hann sé sá maður, að hann biðji afsökunar á ósannindum sínum.