20.12.1968
Sameinað þing: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (404)
1. mál, fjárlög 1969
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég flyt nú enga brtt. við fjárlagafrv. við þessa umr., en mér finnst ástæða til þess að gera hér stutta aths. í tilefni af tveimur liðum á því:
Annar liðurinn er varðandi till. fjvn. um skiptingu á fjárveitingum til hafnarmannvirkja. Í þeim till. er gert ráð fyrir því, að varið verði til hafnarframkvæmda í Neskaupstað 1 millj. kr. Þessi fjárveiting er allmiklu lægri en svo, að hún samsvari því, sem ráðgert er að vinna við hafnarframkvæmdir á þessum stað. En samkv. till. vitamálastjóra er gert ráð fyrir framkvæmdum við höfnina í Neskaupstað, sem nemur 8 millj. kr., og hefði því framlag ríkissjóðs átt að vera samkv. hans mati um 4 millj. kr. Ég hefði nú flutt brtt. við þessa till. fjvn. til hækkunar frá því, sem þarna er um að ræða, ef ég hefði ekki verið búinn að sannfæra mig um með viðtölum bæði við hæstv. fjmrh. og sjútvmrh., sem hafnarmálin heyra undir, og eins við form. fjvn. og fullvissa mig um það, að það eru gerðar ráðstafanir til þess, að í samræmi við fyrri samþykktir Alþ. um fjárveitingar til hafnar í Neskaupstað verði fyrir hendi nægilegt fjármagn til þess að vinna að hafnarframkvæmdum þar í samræmi við ráðgerða áætlun vitamálaskrifstofunnar, svo að ég tel, að óþarft sé að flytja hér brtt. við þennan lið til hækkunar, þar sem ég treysti á það, að séð verði fyrir því fjármagni, sem í þessu tilfelli þarf, þó að eftir öðrum leiðum sé.
Hinn fjárlagaliðurinn, sem ég vildi gera hér stutta aths. við, er undir heitinu „ýmis framlög“, og er þar um ýmiss konar styrki frá hálfu ríkisins að ræða og varðar 15. lið í fjárlagafrv. undir þessu heiti, sem nefndur er „rekstrarstyrkur sjómannaheimila, 50 þús. kr.“
Ég flutti brtt. við 2. umr. við þennan lið og vildi þá gera ráð fyrir talsverðri hækkun fjárveitingarinnar í þessu skyni. Því miður féllst nú Alþ. ekki á það að samþykkja þessa till. mína, sem ég hefði þó talið mjög eðlilegt að samþykkja og sanngjarnt að samþykkja, en mér er kunnugt um það, að aðeins eitt sjómannaheimili hefur fengið að undanförnu beinan rekstrarstyrk, sem samþykktur hefur verið af fjvn. og Alþ., þ.e. sjómannaheimilið í Neskaupstað hefur fengið beinan rekstrarstyrk á undanförnum árum 50 þús. kr. Og þar sem mér er kunnugt um það, að það hafa ekki verið gerðar neinar aðrar samþykktir í fjvn. um fjárveitingar til annarra og það hefur ekki fengizt hér heldur samþykki fyrir því að hækka framlagið, þá geng ég að sjálfsögðu út frá því, að þetta framlag eigi áfram að fara til sjómannaheimilisins í Neskaupstað, og verður þá það að arka að auðnu, að önnur sjómannaheimili í landinu, sem kunni að verða rekin, fái þá engan styrk samkv. því. Miðað við þær upplýsingar, sem ég hef fengið, skilst mér, að þetta sé þannig, að það sé gert ráð fyrir óbreyttu framlagi frá því, sem áður hefur verið í þessum efnum til sjómannaheimilisins í Neskaupstað, rekstrarstyrk, og þar sem ég hafði flutt áður brtt. um þennan lið og hún fékkst ekki samþ., þá sé ég ekki ástæðu til þess að flytja hér frekari till. um liðinn. En ég tel, að það hafi farið illa, að ekki skyldi fást samkomulag um það að hækka þennan lið eitthvað nokkuð. Það var í fyrsta skipti á yfirstandandi ári tekin upp fjárveiting til stofnkostnaðar sjómannaheimila, sem nam 800 þús. kr. og var úthlutað til nokkurra staða. Það er enn gert ráð fyrir á þessu frv. að halda jafnhárri upphæð, og þetta tel ég vera í rétta átt. En hitt er mér alveg ljóst, að það hefði ekki síður verið ástæða til þess að ætla hér nokkuð meira en gert hefur verið til þess að styrkja rekstur þessara stofa. En með tilliti til þessara aths., sem ég hef gert, mun ég nú ekki að svo stöddu flytja brtt. út af þessum liðum. En að öðru leyti hef ég sem sagt ekki neinar frekari aths. að gera umfram þær, sem fram hafa komið hér hjá mér áður í sambandi við afgreiðslu fjárlagafrv. í heild.