20.12.1968
Sameinað þing: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (405)

1. mál, fjárlög 1969

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég skal nú ekki fara að lengja mikið þessar umr. Það er engin ástæða til þess. Allir hv. þm., sem hér hafa talað, hafa talað mjög hófsamlega og málefnalega um það, sem hér er til umr. Brtt. eru fáar, a.m.k. þær, sem enn hafa sézt, þannig að það gefst ekki tilefni til að taka margar þeirra til meðferðar.

Hv. frsm. meiri hl. fjvn. gerði grein fyrir þeim viðbótartill., sem nú eru frá n., og veigamestu atriðin, sem þar er um að ræða, eru eins og hann skýrði frá annars vegar veruleg hækkun á framlögum til skólabygginga og hafnargerða, sem látið var bíða lokameðferðar og sem mér þykir vænt um, að hefur orðið tiltölulega mikill friður um, enda þótt ég geri ráð fyrir því, að hv. þm. vildu gjarnan, að meiru fé væri hægt að verja í þessu skyni. Það er auðvitað alveg rétt, sem hv. frsm. minni hl. sagði, að því fer víðs fjarri, að það sé fullnægt eftirspurn eftir skólahúsnæði. Það verður víst seint, sem hægt verður að ná því æskilega marki. Það hefur aldrei verið, og sannast sagna hygg ég, að það séu ákaflega fá þjóðfélög, ef það eru nokkur, sem hafa haft möguleika til þess að fullnægja eftirspurn eftir skólahúsnæði. Ég vék að því bæði hér í fjárlagaræðunni í haust og eins við 2. umr. fjárl., að þetta væri eitt mesta vandamál, sem við ættum við að glíma, og það væri mikil nauðsyn, að leitað væri allra úrræða til þess að leysa þennan vanda með sem hagkvæmustum og ódýrustum hætti. Og a.m.k. áður en annað reynist, geri ég mér von um það, að þær reglur, sem ákveðið er í nýju skólakostnaðarl. að setja, þar sem byggt verður á því, að skólahúsnæði sé að verulegu leyti staðlað og greiðslur byggðar á slíkum normum, geti leitt til þess, að menn leggi meiri rækt við að leysa þessi mál með hagkvæmum og ódýrum hætti, þannig að það geti þá orðið beinlínis til hagsbóta þeim sveitarfélögum, sem leggja sig fram um að byggja hagkvæmlega. Það hefur verið nokkuð um það deilt hér, að það skuli hafa þurft að hverfa að því ráði að breyta aftur skólakostnaðarlöggjöfinni á þann veg að lengja um eitt ár greiðslutímabilið. Ég er sammála því, að æskilegt hefði verið að þurfa ekki að grípa til þeirra úrræða, en það kom á daginn, að eftirspurn eftir byggingu nýrra skóla var svo mikil, að það var enginn kostur á að framfylgja þriggja ára ákvæðinu nema þá með svo stórfelldum nýjum framlögum, að ekki var hægt undir því að rísa. Og vitanlega er hér stórum og miklum áfanga náð að stytta greiðslutíma skólabygginga úr 8 árum, eins og það er nú í reynd, og niður í 4 ár, og ég hygg, að það eigi ekki að vera vandamál næsta haust að færa það niður í 3 ár. En það, sem gerði sérstaklega erfitt um vik að gera þetta núna, var sú staðreynd, að því miður hefur ekki verið gerð enn þá sú áætlun um skólabyggingar, sem nýju l. gera ráð fyrir. Og þetta veldur auðvitað þeim erfiðleikum fyrir hv. þm., að þeir eiga erfitt með að fallast á að láta sína skóla bíða, meðan þeir ekki geta bent á það, hvaða ár er þá ætlunin, að þeir komi til framkvæmda. Þetta eru skiljanlegir erfiðleikar, og það auðvitað lá alltaf í augum uppi, þegar l. voru sett, að það yrði að fækka þeim skólum, sem væru í gangi hverju sinni. Það merkti ekki minnkandi framkvæmdir, síður en svo, heldur að það væri unnið með meiri hraða að skólunum og þeir kæmust fyrr í gagnið, sem er auðvitað bæði þjóðfélagslega æskilegt með hliðsjón af sparnaði fyrir alla aðila, sem að þessum byggingum standa, eða báða aðila þeirra, og einnig til stóraukinnar hagkvæmni fyrir sveitarfélögin, sem áður hafa orðið að leggja fram að sínum hluta einnig verulegan hluta af hluta ríkissjóðs.

Varðandi þá till., sem hv. minni hl. n. flytur hér aftur, að vísu í nokkuð breyttu formi, um að sjá fyrir fé til ýmissa verklegra framkvæmda til þess að forðast atvinnuleysi er í rauninni ekki annað um að segja en ég sagði við 2. umr., að það er ekki kostur á að taka þá till. inn í fjárlög nú nema sjá fyrir nýjum tekjustofnum. Það merkir á engan hátt, að ekki sé nauðsynlegt að líta á þessi atvinnumál, og vitanlega verða þau ekki leyst nema að sáralitlu leyti með því t.d. að fara að verja fé til þess að byggja nokkra nýja skóla hér og þar um landið. Það leysir ekki atvinnuvandamálin nema að ákaflega litlu leyti. Það, sem er auðvitað undirstaðan að þessu vandamáli og lausn þess, er, að atvinnuvegirnir geti almennt gengið með eðlilegum hætti. Og það er auðvitað það meginviðfangsefni, sem við er að fást. Það er engum efa bundið, að það þarf að útvega fé til ýmissa þarfa í því sambandi, eins og hér hefur áður verið rætt á Alþ. og á vafalaust eftir að ræða á næstu vikum og mánuðum og reyna að koma sér niður á. En það held ég, að við getum ekki gert með þessum hætti, auk þess sem við í dag höfum enga hugmynd um það, hvaða viðfangsefni helzt koma þar til álita. Og vitanlega erum við alltaf að reyna að bjarga þar við vissum vandamálum. Eins og hv. frsm. minni hl. er kunnugt, höfum við, ég og hann og fleiri, setið í allan morgun við það að reyna að leysa vandamál vissra byggðarlaga, sem hefur grundvallarþýðingu, að tiltekin atvinnufyrirtæki starfi í, til þess að þar verði ekki atvinnuleysi, þannig að vitanlega er alltaf á mörgum sviðum verið að reyna að leysa þessi erfiðu vandamál, sem við er að stríða, og eins og ég sagði áðan og legg höfuðáherzlu á, og ég býst ekki við, að sé ágreiningur um, þá getur auðvitað aldrei vandinn orðið leystur með því að leggja út í einhverjar einstakar byggingarframkvæmdir. Þetta er miklu víðtækara vandamál, og kjarni þess er sá, að atvinnuvegirnir almennt geti gengið með eðlilegum hætti. Að öðru leyti sé ég ekki, að sé neinn ágreiningur í þessu efnislega, sem gefi ástæðu til þess að þurfa að hafa frekari orðræður um það.

Hv. 6. þm. Reykv. lýsti hér ánægju sinni yfir því, að það hafi verið töluvert á hann hlustað, og það gleður mig, að hann er ánægður með það eftir atvikum, að það hefur verið tekið tillit til, að því er hann telur, ýmissa hugmynda, sem hann hafi komið fram með. Ég hef ekkert á móti því, að hann telji svo vera, og ég sé enga ástæðu til þess að reyna að fullyrða það, að það komi ekki til, að maður hlusti aldrei á annarra orð, svo að ég hef ekkert á móti því, að hann hafi þá skoðun. En hins vegar er það nú svo, að það er dálítið erfitt að seðja menn þannig, hann var nú ekki alls kostar ánægður samt og taldi, að eitt og annað væri eftir.

Ég sé ástæðu til þess að víkja að Kennaraskólanum aðeins örfáum orðum í því sambandi. Það er alveg hárrétt hjá honum, að þar er um stórfellt vandamál að ræða, sem stafar fyrst og fremst af því, að aðsókn að Kennaraskólanum hefur farið langt fram úr því, sem nokkur maður hefði látið sér detta í hug fyrir fáum árum síðan. Það er að vísu rétt, að Kennaraskólinn er ekki fullbyggður, og það er aðeins áfangi af honum, sem byggður var, óhugnanlega dýr áfangi að vísu, því að það tókst víst að slá þar met varðandi háan byggingarkostnað og kalla menn þó ekki allt ömmu sína. En það náttúrlega haggar ekki því, að það er nauðsynlegt að halda áfram þeirri byggingu, þó að þessi bygging hafi orðið dýr. Nú er það að vísu svo, að hvort áframhald verður á þessari geysilegu aðsókn, getur maður ekki fullyrt um, og það er kannske vafasamt að miða framkvæmdirnar þarna algerlega við það. Hins vegar vildi ég segja það, sem ég býst við, að honum og hv. þm. sé kunnugt um, að það er auðvitað á vissan hátt verið að leysa að nokkru leyti vandamál Kennaraskólans með því að byggja æfingaskóla, sem leysir Kennaraskólann undan því að hafa þennan skóla innan sinna vébanda, og mun það losa nokkrar kennslustofur, sem Kennaraskólinn þá fær til afnota. Það er einnig vitað og hefur verið skýrt frá því hér oft á Alþ., að unnið hefur verið að ákveðnum áföngum við Kennaraskólann og menntaskólana. Það er verið að vinna að ákveðnum áföngum í menntaskólunum, sem sumum er nú langt komið og öðrum lokið að vísu, og Kennaraskólinn hlýtur auðvitað að koma þar mjög á dagskrá nú — ja, ég mundi segja strax á næsta ári, hvaða áfanga á að taka þar í framhaldi af æfingaskólanum. Það var talið nauðsynlegt af Kennaraskólaforystumönnunum sjálfum að taka æfingaskólann fyrst og losa út úr skólanum, og æfingaskólinn á að vera tilbúinn á næsta ári, og þá auðvitað kemur að því, hvort á þá að taka nýjan áfanga í Kennaraskólanum eða einhvern áfanga varðandi menntaskólana. Þetta eru allt skólar, sem er mikil þröng í, og þetta verður auðvitað að meta. Við komumst aldrei hjá því, og fjárhagur okkar er ekki slíkur, að í þessu sem á öðrum sviðum verðum við að meta, hvað er nauðsynlegast, og velja það til úrlausnar, sem brýnast er í það og það skiptið. Og það er áreiðanlega engin löngun til þess að láta Kennaraskólann vera þarna út undan. Það hefur verið lögð áherzla á, að Kennaraskólinn taki við þeim nemendum, sem þangað sækja, og vitanlega er ekki endalaust hægt að gera það án þess að auka við húsnæði hans. Hitt er annað mál, að spurningin um 5 millj. í því sambandi ræður engum úrslitum. Það verður að gera um það heildarplan, hvernig á að fjármagna þá framkvæmd, byggða á því, sem ég tel vera sjálfsagt, að verði að framfylgja, eins og gert hefur verið núna með þessar meiri háttar byggingar, bæði Kennaraskóla og menntaskóla, og gera þar áætlanir um ákveðna áfanga og útvega fé í þá, þannig að það sé hægt að vinna þar með eðlilegum hraða, svoleiðis að ég vil taka það fram, að þó að ég telji ekki auðið að fallast á þessa till, hv. þm. núna, merkir það ekki það og má ekki skoða sem neina yfirlýsingu um það, að það eigi að varpa þessu mikilvæga málefni fyrir borð og óvíst, að því seinki á nokkurn hátt, þó að sú yrði útkoma þessarar till.

Mig langar svo aðeins, af því að hv. þm. sagði, að það hefði hitt viðkvæman blett að lækka framlög til fyrningarsjóðs ríkisbifreiða um 2 millj. kr., þá er það mikill misskilningur. Ég held að vísu, að menn hafi ekki algerlega áttað sig á því, hvað var verið að gera, þegar þetta var samþ. Í sparnaðarl., sem ég flutti hér fyrr á þessu ári, var þetta framlag lækkað, og má kannske segja, að það hafi verið með dálítið hæpnum hætti, sem það var lækkað. Hér er auðvitað ekki verið að ná til neinna, ja, a.m.k. ekki ráðherrabifreiða eða reksturskostnaðar þeirra, heldur er hér um að ræða það atriði, að fyrir nokkrum árum, þegar var verið að endurskoða bílamál ríkisins, komust menn að þeirri niðurstöðu, sem út af fyrir sig er ekki neitt merkileg niðurstaða, að það væri réttast í stað þess, að hingað til hefur verið veitt fé ýmsum stofnunum til að kaupa bifreiðar, sem í mörgum tilfellum er óumflýjanlegt að gera, ekki vegna forstjóra, heldur vegna þess að þær þurfa á bílum að halda, þá væri æskilegra, að þetta væri ákveðið af svokallaðri n., sem hefur með að gera eftirlit með mannahaldi og bifreiðakaupum og var sett á laggirnar í tíð vinstri stjórnarinnar, og það væri rétt, að þetta væri undir einum lið, en ekki veitt til stofnananna, þannig að það hefur verið venja síðustu árin að strika það út af till. stofnananna og ætlunin, að þessar bifreiðar væru keyptar af þessu fé. Þarna er um að ræða allar þær stofnanir, sem ekki hafa sjálfstæðan fjárhag, svo sem Póst og síma, vegagerð og annað slíkt. En það var niðurstaða þeirra manna, sem þá skoðuðu þetta mál, að það væri ríkinu ákaflega óhagkvæmt, hvað oft væri haldið við gömlum bifreiðum, sem væru orðnar geysilega dýrar í viðhaldi, og það hefur verið stefnt að því undanfarin ár, að ríkisbifreiðar, sem á annað borð er nauðsynlegt að hafa, séu ekki gamlar, þannig að ég tel, að þessi sparnaður, þó að hann sé góðra gjalda verður á pappírnum, það sé ákaflega hæpið, hvort hann reynist sparnaður fyrir ríkið, og a.m.k. efast ég um, að það hafi með þessu náðst í þá, sem hv. þm. langar til að ná í, þannig að hér er ekki um neinn viðkvæman blett að ræða í þessu sambandi. Ég er hins vegar ekki alveg viss um, að þetta sé hagkvæmt.

Hitt er svo annað mál, að ef menn komast að þeirri niðurstöðu, að það eigi að selja allar ríkisbifreiðar, getur þetta allt saman verið gott og blessað.

Þetta taldi ég nú aðeins rétt að koma fram með, ekki af því að það sé stórmál, en af því að ég hef orðið var við, að menn halda, að með þessu hafi verið hittur viðkvæmur blettur, sem er mesti misskilningur. Það á ekkert skylt við það, heldur aðeins spurning um hagkvæm eða óhagkvæm vinnubrögð.

Hv. frsm. minni hl. sagði, að það hefðu lækkað áætlanir varðandi tvo skóla, og taldi það benda til þess, að áætlanagerðir varðandi skólabyggingar væru ekki ákaflega nákvæmar. En þetta er misskilningur. Kostnaðaráætlanir þessara skóla lækkuðu vegna þess, að það var gengið í það á s.l. sumri að endurskoða þær hugmyndir, sem voru uppi um þessar skólabyggingar, og gera þær viðráðanlegri á allan hátt. Það voru minnkaðar heimavistir við þessa skóla, sem var tvímælalaust rétt, og það er ástæðan til þess að kostnaður við þá lækkar mjög verulega. Þetta vildi ég aðeins taka fram, að þetta stafar af þessari ástæðu, en ekki vegna þess, að það sé kastað svo mjög höndum til áætlana um skólana.

Hv. 1. þm. Vestf. taldi, að þessi bók, fjárlagafrv. eins og það er núna, væri með óskiljanlegri bókum. Mér þykir það ákaflega slæmt, því ef hún a.m.k. er óskiljanlegust, þá er ekki gott í efni, því að margar bækur, sem út eru gefnar, a.m.k. miðað við mínar gáfur, þær eru kannske ekki miklar, eru gersamlega óskiljanlegar, þær sem maður sér útgefnar nú. En til allrar hamingju held ég, að þetta sé nú ekki svona. Ég vil álíta það, að þó að hér sé um miklar breytingar að ræða, sem rétt er og valda því, að menn eiga í fyrstu dálítið erfitt með að finna ýmsa hluti, og ég skal játa það með sjálfan mig, að það vafðist fyrir mér í byrjun, þá er það engum efa bundið, að fjárl. eins og þau eru nú og fjárlagafrv., gefa, þegar allt kemur til alls, miklu raunhæfari og auðveldari upplýsingar um ríkiskerfið heldur en hin eldri fjárlög gerðu, því að þar var sannast sagna ekki miklar upplýsingar að finna. Með þessu frv. nú eru birtar margvíslegar töflur og yfirlit og sundurliðanir, sem gera mönnum miklu auðveldara að finna, í hvaða þætti ríkisfjármálum er varið, og sem í rauninni margir þm. hafa látið í ljós ánægju sína yfir, að skuli vera gert. Og auk þess, sem nú er tekið inn í fjárlög það, sem enginn maður hafði hugmynd um áður, að þjóðin er skattlögð um allt að 11/2 milljarð kr. umfram það, sem nokkurn tíma sést í fjárl. Það er þó allt saman tekið nú inn í fjárlög. Þetta auðvitað gerir erfitt um samanburð við eldri fjárlög, en því hefur verið reynt að bæta úr með því að ég hef látið taka saman yfirlit, sem birt er með fjárlagafrv., til þess að auðvelda mönnum samanburð við eldri fjárlög. Og varðandi það, að það sé erfitt að finna í þessu frv. vil ég benda hv. þm. á, að það er mjög nákvæmt registur með fjárlagafrv. (SE: Ég var að tala um fjárlögin.) Já, það er rétt, en hv. þm. minntist nú á fjárlagafrv. líka, og ég tel vel geta komið til álita, að það sé hægt að birta það með fjárl. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu, ef menn vilja það og ef það getur eitthvað auðveldað mönnum að finna það, sem þeir vilja að leita. Ég held hins vegar, að þetta sé eins og annað, að þegar breytt er, þá auðvitað fyrst í stað er erfiðara um vik að finna það, sem menn vilja finna, en ég mundi halda, a.m.k. fyrir hv. þm. — það getur verið, að fyrir aðra sé það erfitt og taki lengri tíma — þá sé mjög auðvelt að átta sig á þessari nýskipan. En það er sjálfsagt að taka það til athugunar að birta þetta efnisyfirlit með í fjárl. líka. Ég sé ekki, að það sé neitt vandamál, en eins og ég sagði áðan, er það birt með frv., þannig að það á að vera mjög auðvelt að fletta upp í því.

Ég ætla nú ekki að fara að ræða við hv. 1. þm. Norðurl. v. og læt hann og hæstv. menntmrh. alveg um þær orðræður, hvort sem það á að teljast til skemmtiiðnaðar eða einhvers annars iðnaðar. Það læt ég alveg liggja á milli hluta. En það voru tvær tölur, sem hann vék að — já, í rauninni var það nú aðeins ein tala, sem hann nefndi, sem ég sé ástæðu til þess að vekja athygli á, ekki vegna þess að hann skipti miklu máli, þessi samanburður, sem menn eru oft að gamna sér með. En úr því að menn eru að reyna, sakar þó ekkert að hugsa það til enda. Hann sagði um fjárveitingar til skóla, að það sýndi sig, hvað þær hefðu saman dregizt á því sviði, vegna þess að framlög til skóla væru nú ekki eins há prósenta á fjárl. og áður hefði verið. (SkG: Það er misskilningur. Ég hafði hana örlítið meiri.) Örlítið meiri, jæja, örlítið meiri prósenta. Það er þá gott, að það er í þá áttina. En það skiptir ekki meginmáli. Það, sem ég ætlaði að segja í þessu sambandi, er, að í rauninni er það ákaflega haldlítið að vera að bera saman prósentur á fjárl. við þetta ár eða annað, vegna þess að menn verða að gera sér grein fyrir því, að það eru alltaf að bætast inn í fjárlög alls konar ný atriði. Og hvernig í ósköpunum ætti það að geta gerzt? Þetta á ekki við þetta atriði, heldur bara almennt, sem menn verða að skilja, að það er engin leið, að það sé hægt að miða við það, að allir liðir fjárl. haldi alltaf sömu prósentuhlutföllum. Hvernig á að bæta við þá nýjum liðum, sem koma inn í fjárlög? Ég skil ekki, hvernig í ósköpunum það mætti gerast, og ég held, ég er ekki mikill reikningsmaður, en ég sé ekki, að það væri framkvæmanlegt. En ég vildi aðeins segja út af því, sem hv. þm. sagði, að það hefði 16 millj. verið varið til skóla á árinu 1958: Mér skilst, að nú á árinu 1969, ef fer svo sem nú er lagt til, muni 216 millj. verða varið til skóla. En miðað við byggingarvísitölu hefði þetta átt að vera til þess að halda í við þá upphæð, sem var 1958, og þá hefðu þetta orðið 42.2 millj. (Gripið fram í.) Nei, það er ekki misskilningur. Og svo vildi ég aðeins bæta því við, eins og ég segi, ekki vegna þess að það skipti meginmáli, en af því að hv. þm. fór að tala um þetta, bara svona til gamans, að mér skilst, að fjárveiting til einnar hafnar í fjárl. núna jafngildi öllum fjárveitingum til hafna á fjárl. ársins 1958. Annars legg ég ekki svo mikið upp úr þessum tölusamanburði, þannig að ég segi þetta nú aðeins af því að hv. þm. fór að vera með þessa útreikninga.

Ég skal þá víkja að öðru, sem hv. þm. er með till. um, en það er lántaka til héraðsveitna til að ljúka sveitarafvæðingunni. Ég álít, að það sé ákaflega hæpið, að slík lán sé hægt að taka, vegna þess að sveitarafvæðingin er auðvitað gagnleg og nytsamleg og vafalaust vilja menn styðja að henni, og ekki situr á mér annað en taka undir það, en ég held, að fyrir alllöngu síðan hafi menn gert sér grein fyrir, að það er ekkert vit í að taka lán til sveitarafvæðingar. Það verður að gerast allt fyrir bein framlög. Afkoma Rafmagnsveitna ríkisins er í dag svo óskapleg, og það munu hv. þm. eiga eftir að sjá áður en langt um líður, að það að fara að taka nú lántökur til algerlega óarðbærra framkvæmda á sviði Rafmagnsveitna ríkisins, það held ég, að sé ekki ákaflega hyggilegt. Við verðum að halda áfram á hverju ári — það er svo spurning, hvað menn vilja verja miklu á fjárl. til þess, en það verður að byggjast á fjárframlögum, beinum fjárveitingum hverju sinni, hvað verði gert á þessu sviði.

Varðandi eina smátillögu sem hv. 6. þm. Reykv. flutti og virðist ósköp meinlaus út af fyrir sig, um félagið Heyrnarhjálp, þá tel ég ákaflega hæpið að samþykkja þá till. Ég vil ekki fara langt út í þá sálma, en þarna eru vægast sagt uppi allmiklar deilur milli margvíslegra aðila, sem að þessum málum vinna, hvernig eigi að þessum heyrnarmálum að starfa, og skal ég ekki út í þá sálma fara, en menn hafa vafalaust margt séð skrifað og heyrt talað um það efni. Og fyrir nokkru síðan varð það að samkomulagi — það komu nokkur þessara mála á mínar fjörur, þ. á m. beiðni frá öðrum aðila um fjárstyrk í þessu sambandi — að það yrðu fengnir sérfróðir menn á vegum félmrn. og heilbrmrn. til þess að komast að einhverri niðurstöðu um það, hvernig ætti að vinna að þessum málum og koma á meira samstarfi milli þeirra aðila, sem að þessu vinna, svo að þeir ynnu a.m.k. ekki sitt í hvora áttina, sem því miður vill verða á þessu sviði, þannig að þó að hér sé auðvitað um sáralitla upphæð að ræða, sem ekki skiptir máli, þá mundi ég telja varasamt að vera að ákveða þetta, vegna þess að það eru fleiri aðilar, sem hafa sótt um fé í þessu skyni, og ég er ósköp hræddur um, að þeir mundu ekki telja það benda til neinnar vináttu við sig, ef þetta mál yrði tekið út úr. Þetta er það eina, sem ég hef um það að segja, en ekki af því að ég óttist hag ríkissjóðs, þó að 80 þús. kr. yrðu samþykktar. Þetta vildi ég aðeins láta koma fram.

Varðandi lántökuna til Lánasjóðs íslenzkra námsmanna hefur verið valin sú leið, að sjóðurinn taki nú lán, en ekki að ríkið taki lán til sjóðsins, af ýmsum ástæðum, en fyrst og fremst vegna þess að það þarf að athuga þetta kerfi allt til hlítar. Ég held, að það sé engum efa bundið, að það er ákaflega hæpið, hvort allur sá fjöldi námsmanna, sem er erlendis nú, á að vera þar áfram og hvort er nokkur ástæða til þess. Og ég raunar fullyrði það, að það er engin ástæða til þess að margir þeir, sem eru að læra núna erlendis og hafa jafnvel fengið styrki og lán, haldi því áfram. Og þetta held ég, að sé jafnframt skilningur þeirra manna, sem um þessi mál hugsa á vegum samtaka stúdenta. Það þarf þess vegna að sjá, hver þróunin verður í þessum efnum. Vafalaust kemur eitthvað af þessu fólki hingað heim og tekur upp nám við Háskólann. Þá auðvitað getur skapazt vandamál, þar sem verður að kanna á næsta sumri, hvernig verður, en það auðvitað má ekki gerast, að menn þurfi núna á miðjum vetri að hætta við sitt nám, og af þeim sökum er alveg nauðsynlegt að sjá fyrir fé, eins og hér er gert ráð fyrir. En ég held, að það sé skilningur allra, sem um þetta hafa fjallað, og það sé enginn ágreiningur, ekki hjá námsmönnunum sjálfum eða forystumönnum þeirra, að þetta þurfi allt að skoðast á miklu breiðari grundvelli og kanna það, hvort sé ástæða til þess að örva til mikilla námsferða til útlanda. Það er ljóst, að í mörgum greinum verða menn að fara þangað, menn geta ekki numið hér, en í öðrum tilfellum er alls ekki því til að dreifa. Og í enn öðrum tilfellum er það alveg ljóst, að það eru óhæfilega margir, sem eru að læra í vissum námsgreinum. Það er vandasamt við að eiga, en allt þetta leiðir til þess, að þetta þarf að taka til heildarendurskoðunar, og ég get tekið undir það, sem hæstv. menntmrh. segir, að að svo miklu leyti sem það reynist þörf á því miðað við næsta ár beinlínis að auka framlögin til Lánasjóðsins, þá auðvitað verður það tekið til greina, að hér verði ekki lagður baggi á Lánasjóðinn, sem skerði hans möguleika varðandi framtíðarlánveitingar og styrki.

Ég held, að það séu ekki aðrar till., sem ég hef ástæðu til að gera hér að umtalsefni. Varðandi það, sem hv. 1. þm. Austf. sagði hér um hafnarmál, og reyndar hv. 4. þm. Austf. líka, þá kann það allt að mega til sanns vegar færa. Það á allt sínar skýringar, hvað þar hefur gerzt. En varðandi það, að ef þeir telja heldur, þessir hv. þm., að það eigi að vinna við aðrar framkvæmdir en þær, sem lagt er til í fjárl. að vinna að, þá hygg ég, að það sé ekki vandamál að fá féð flutt þar á milli innan sama kjördæmisins. En það er ekki kostur á að hækka þessar fjárveitingar meira í heild, en það hefur ekki verið settur neinn fótur fyrir það og reynt að ná samstöðu um það innan fjvn. að ég hygg, að ef þm. hafa haft löngun til að flytja þar eitthvað á milli, þá eiga þeir að geta gert það.

Herra forseti. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að orðlengja um þetta frekar og hef ekki minnstu ástæðu til þess að vera með neina gagnrýni varðandi það, sem hv. þm. yfirleitt hafa sagt um þessi mál. Það hefur ekki verið sýnd nein viðleitni í þá átt að vilja halda hér uppi neinni óheilbrigðri fjárlagaafgreiðslu, svo að ég sé fremur ástæðu til þess að þakka viðbrögð manna í þessum efnum heldur en að lasta þau.