17.02.1969
Efri deild: 44. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (422)

142. mál, lausn kjaradeilu útvegsmanna og yfirmanna á bátaflotanum

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Hér er til umr. frv. til l. um lausn kjaradeilu útvegsmanna og yfirmanna á bátaflotanum. Það er ekki að ófyrirsynju að af hálfu stjórnvalda, ríkisstj. og Alþ., sé gerð alvarleg tilraun til að leysa það vandræðaástand, sem skapazt hefur, þegar liðið er svo langt á vetur, sem nú er, 17. febr. er í dag og vertíð hvergi hafin nema á Vestfjörðum, annars staðar liggur fiskibátafloti landsmanna í höfn, bundinn í verkfalli, vegna vinnudeilu sem staðið hefur, að því er telja má, frá áramótum, þó beint verkfall hafi ekki staðið svo lengi. Ég er almennt þeirrar skoðunar, að það eigi að gera sem allra minnst að því að leysa kaupdeilur með lögum. Hitt viðurkenni ég, að þegar svo er komið sem nú er, að atvinnulausir menn í landinu eru um 6 þús. talsins, þar af má ætla, að a.m.k. helmingurinn mundi hafa vinnu, ef vertíð væri hafin með eðlilegum hætti, þá horfir málið öðruvísi við. Enn fremur eru sum byggðarlög, og hef ég þá í huga mína heimabyggð, Vestmannaeyjar, þannig á vegi stödd, að þeim bókstaflega blæðir út efnahagslega, ef ekki hefst vertíð á eðlilegum tíma, hún getur það að vísu ekki héðan af, en sem fljótast úr þessu, í ofanálag við þau vandræði, sem allir þekkja, að á undanförnum árum hefur aflaverðmæti farið lækkandi.

Ég mun þess vegna ekki deila á ríkisstj. sérstaklega fyrir það að gera tilraun til að leysa þessa deilu með lögum, eins og nú er komið, þó almennt sé ég þeirrar skoðunar, að það eigi að reyna alla hluti fyrr. Ég er þar með ekki að viðurkenna, að allir hlutir hafi verið reyndir fyrr. Úr því sem komið er verður með einhverjum hætti að fá atvinnuvegi landsins til þess að starfa, því ella er öllum háski vís, líka þeim aðilum, sem nú bítast á um það í hvers hlut eigi að falla einhverjar tiltölulega fáar krónur á mánuði hverjum eða ári. En ég hef nú samt sem áður allmikið við þetta lagafrv. að athuga.

Það er þá fyrst spurning, sem ég leyfi mér að bera fram til stjórnarvaldanna. Úr því að það þarf að höggva á þann hnút, sem er orðinn í atvinnulífinu, hvers vegna þá að gera það með því að leita lagasamþykkis á till., sem felld hefur verið í deilunni, þegar til er önnur till., sem að verulegu leyti hefur verið samþykkt? Á ég þar við það, sem mönnum mun vera kunnugt um, að bæjarráðið í Vestmannaeyjum hafði forgöngu um það að kanna til þrautar, hvort ekki væri hægt að ná samkomulagi milli hinna deilandi aðila þar í héraði og svo brá við, að það samkomulag náðist milli nefndra aðila á fundum með bæjarráði. Það samkomulag liggur alveg fyrir skjallega, og að hluta til er það þess eðlis, að það á sérstaklega við í því byggðarlagi. Ég tel þess vegna, að ekki sé eðlilegt, að samkomulagið í heild sé lagt fram sem lagafrv. til staðfestingar fyrir allt landið, en engu að síður þá vil ég leyfa mér að lesa hér upp þetta samkomulag, með leyfi hæstv. forseta, til þess að menn geti fylgzt með því. Þá er hér í frv., sem fram er lagt, vertíðarsamningur sá, sem sáttasemjari ríkisins lagði til að gerður yrði, en við hann eru gerðar breytingar í þessu samkomulagi, sem ég minntist hér á, að gert var í Vestmannaeyjum á milli deiluaðila. Það skal tekið fram, að ef þetta samkomulag væri unnið í meiri ró og næði en raun var á, þá mundi e.t.v. sumt í formi þess vera öðruvísi, t.d. eru ekki í réttri röð greinarnar í vertíðarsamningnum, en engu að síður les ég það, eins og það er. Það er þannig:

„Breytingar og viðaukar við málamiðlunartillögu sáttasemjara, dags. 10. febr. 1969, til samræmis við samninga Sjómannafélagsins Jötuns og Vélstjórafélags Vestmannaeyja.“

Þetta er yfirskrift. Síðan kemur samkomulagið:

„Þar sem í málamiðlunartill. stendur „Farmanna- og fiskimannasamband Íslands“ komi: Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi.

12. gr. Viðbót. Vinni skipstjóri og stýrimenn við löndun aflans í samningsbundnum frítíma, greiðist það með sem svarar tvöfaldri upphæð miðað við háseta.

10. gr. Breyting tryggingartímabila: a. Frá 1. jan. til 15. maí. b. Frá 16, maí til 30. sept. c. Frá 1. okt. til 31. des.

7. gr. Breyting. “— Ég vil skjóta því hér inn í, að þar hafa þeir skipstjórnarmenn í Vestmannaeyjum fallizt á nokkra lækkun, svo að samkomulagið er ekki allt á þá lundina, að þeir eingöngu strekki á hækkanir, en láti allt annað eiga sig. — „7. gr. Breyting. a. Á skipum allt að 100 brúttórúmlestum 32% miðað við fimm menn, 33% miðað við 6 menn, 34% miðað við 7 menn, 35% miðað við 8 menn, 36% miðað við 9 menn og 37% miðað við 10 menn. b. Á skipum yfir 100 brúttólestir 37% miðað við 12 menn.

Ný grein: Um róðrafrí og helgarfrí. a. Eigi skal róið til fiskjar aðfaranætur helgidaga þjóðkirkjunnar, þó skal viðkomandi félagi heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði, þegar bátar eru almennt byrjaðir veiðar í net og einnig, þegar beitt er með nýrri loðnu. b. Á tímabilinu frá 1. maí til vertíðarloka skal eigi vitjað um net á sunnudögum, þó skal heimilt að vitja um net á sunnudegi, ef næsti dagur á undan eða á eftir er samkvæmt samningi frídagur, sem ekki er róið á. c. Helgarfrí á togbátum, humar- og dragnótabátum skulu vera aðra hverja helgi og standa yfir í 48 klukkustundir.

Um tilhögun fríanna verður nánar tilkynnt með samkomulagi undirrituðu af þeim aðilum, sem að samningi þessum standa, og skulu sektarákvæði greinar þessarar gilda fyrir umrætt samkomulag. Ofanskráð tekur ekki til skips, sem veiðir fyrir erlendan markað, þó skal á skipum yfir 150 rúmlestir, sem stunda togveiðar og eru í útilegu og ísa eða salta aflann um borð, heimilt að velja á milli framanskráðra helgarfría eða að skipverjar fái 24 klukkustunda hafnarfrí eftir hverja veiðiferð á tímabilinu 16. maí til 20. sept. Eigi er þó skylt að hafa hafnarfrí, ef veiðiferðin tekur skemmri tíma en fimm sólarhringa, en tryggt skal, að skipverjar fái fjögurra daga frí í mánuði enda falli þá helgarfríið niður. d. Á föstudaginn langa, páskadag, 1. maí og sjómannadaginn skal ekki róið eða verið á sjó. e. Séu ákvæði eða samkomulag greininni fylgjandi, svo og ákvæði um hafnarfrí brotin, skal aflaverðmæti úr veiðiferðinni renna til viðkomandi félaga. Ofanskráðar breytingar eru háðar því, að Sjómannafélagið Jötunn og Vélstjórafélag Vestmannaeyja annars vegar og Útvegsbændafélag Vestmannaeyja hins vegar hafi þessi ákvæði áfram í samningum sínum.“

Og síðan kemur: „Miðlunartillaga frá bæjarráði. Fastakaup stýrimanna og skipstjóra skal vera kr. 1150 á mánuði í stað kr. 624. Fyrir hönd Útvegsbændafélags Vestmannaeyja með fyrirvara um miðlunartillögu bæjarráðs. Ingólfur Arnarson. Kristinn Pálsson. Ólafur Sigurðsson. Fyrir hönd Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi, Vestmannaeyjum, með fyrirvara um fundarsamþykkt. Guðjón Pálsson, form., Guðjón Pétursson, Hjörtur Hermannsson, Hafsteinn Stefánsson.“

Sem sagt, þarna náðist samkomulag, sem síðan var borið undir Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi og samþykkt þar með 61 atkv. gegn 13, en Útvegsbændafélagið samþykkti reyndar í trúnaðarráði að bera þetta ekki undir félagsmenn. Þannig var þetta samkomulag ekki undirritað og endanlegt og náði ekkú þeim tilgangi, að verkfallinu lyki og róðrar gætu hafizt. En eins og allir sanngjarnir menn hljóta að sjá, þá tel ég augljóst, að þessi till., sem svona nálægt samþykki var og ætla má að hefði hlotið endanlegt samþykki, ef hún hefði fengizt borin undir aðila, hefði verið lögfest heldur en tillagan sem felld hefur verið. Ég mun því freista þess að flytja brtt. við þetta frv. í þá átt að færa það til samræmis við þetta samkomulag, sem er svo miklu nær því að hafa átt samkomulagi að fagna hjá deiluaðilum en sú till. ríkisstj. Íslands, sem hér er gerð till. um að lögfest verði sem lausn á deilunni, sem yfir stendur.

Þess má geta, að á samningafundunum, sem haldnir voru hér í gær, mun fulltrúi Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum hafa gefið til kynna að hugsanlegt væri, að þetta samkomulag, sem felst í sjálfri miðlunartillögunni, þ.e. að hækka kaup yfirmannanna á fiskiskipum, hið fasta kaup, úr 624 kr. í 1150 kr., kæmi ekki til útborgunar, nema þar sem skipverji væri í sama skipsrúminu í hálft ár a.m.k. Hugsanlegt hefði þess vegna verið að fara með þeim hætti í þetta, og þá má ætla, að ekki væri um neina lögþvingun að ræða, heldur hreinlega að lögfesta samkomulag, sem hafði þó ekki náð neinu formlegu samþykki, þannig að það gæti sem samningur leyst deiluna.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að halda hér lengri tölu um þetta mál að sinni, en mun sem sagt bera fram brtt. við það, og ég get lýst því yfir, að eins og frv. er, þá er ég á móti því, ég tel að hér sé farið rangt að með því að gera till., sem felld hefur verið, að lögum, en gera enga tilraun til þess að koma með þá till. til lausnar á málinu, sem er miklu nær því að hafa náð samkomulagi.