17.02.1969
Efri deild: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í B-deild Alþingistíðinda. (428)
142. mál, lausn kjaradeilu útvegsmanna og yfirmanna á bátaflotanum
Frsm. minni hl. (Bjarni Guðbjörnsson):
Herra forseti. Eins og fram kom í framsöguræðu fyrir meiri hl. sjútvn. náði n. ekki samkomulagi um afgreiðslu þessa máls, sem hér liggur fyrir. Eins og nú er komið eru það aðeins smámunir, sem á milli bera, því hefði átt að leysa þessa kjaradeilu með samkomulagi, ef rétt hefði verið á haldið, en það hefur þó ekki tekizt, að því er varðar deilu yfirmanna á bátaflotanum og útvegsmanna. Það er augljós þjóðarnauðsyn að koma bátaflotanum af stað, og við viljum því eigi standa í vegi fyrir að verkfallið verði leyst, úr því sem komið er, með þeim hætti, sem frv. það, sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir. Á hinn bóginn er ekki nema eðlilegt, að stjórnarflokkarnir beri einir ábyrgð á þeirri lagasetningu, því að við teljum, að deila þessi sé að verulegu leyti sprottin af fyrri aðgerðum ríkisstj. í efnahagsmálum. Við höfum ekki átt þess kost að kynna okkur málamiðlunartill. sáttasemjara til neinnar hlítar í einstökum atriðum. Við munum því sitja hjá við afgreiðslu þessa máls hér í hv. d.