12.11.1968
Efri deild: 12. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (52)
52. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis
Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Hér hafa farið fram langar almennar umr. um efnahags- og stjórnmál, en þó að ég sé flestu mjög ósammála af því, sem hv. stjórnarandstæðingar hafa sagt við þá umr., þá mun ég með tilliti til þess, hvernig á stendur nú, leiða hjá mér að ræða efnahagsmálin almennt, og að því leyti er e.t.v. heldur ekki ástæða til þess, að flest þau atriði, sem máli skipta og fram hafa komið í ræðum hv. stjórnarandstæðinga sem gagnrýni á hæstv. ríkisstj. og efnahagsmálastefnu hennar, hafa verið marghrakin við fyrri umr. um þessi mál, enda mun síðar hér í hv. d. og hv. Alþ. gefast tilefni til þess að ræða þessi mál meira almennt.
Frv. það, sem hér liggur fyrir, ætti út af fyrir sig heldur ekki að gefa tilefni til langra umr., því að auðvitað er ekki um það að ræða að samþykkja gengisfellingu eða taka afstöðu til hennar. Því máli hefur þegar verið ráðið til lykta. Frv. fjallar aðeins um ákvæði tæknilegs eðlis, sem nauðsynlegt er að setja lög um við framkvæmd gengisfellingarinnar, þannig að gjaldeyrissala geti sem fyrst hafizt með eðlilegum hætti. Samt sem áður, eins og nál. þau, sem útbýtt hefur verið, sýna, hefur orðið ágreiningur í n. um afstöðu til frv., þannig að við 4, sem erum í meiri hl. n., leggjum til í nál. okkar á þskj. 70, að frv. verði samþ. óbreytt, en þrír hv. nm., sem eru í minni hl., taka afstöðu gegn frv. í nál. sínu á þskj. 71.