12.11.1968
Efri deild: 12. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (53)

52. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis

Frsm. minni hl. (Bjarni Guðbjörnsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, var tekið fyrir á sameiginlegum fundi í fjhn. Ed. og Nd. og athugað þar. Nefnt frv. var svo tekið fyrir á fundi hér í d., en samkomulag um afgreiðslu málsins varð ekki.

Með l. frá 29. marz 1961 var gengisskráningarvaldið tekið frá Alþ. og fengið í hendur Seðlabanka Íslands að fengnu samþykki ríkisstj.

Ríkisstj. hefur nú í fjórða sinn á 9 árum fellt gengi krónunnar. Nemur verðhækkun á erlendum gjaldeyri nú um 54.4%.

Afleiðingar af gengisfellingunni koma fram á flestum sviðum þjóðlífsins og margvísleg lagasetning verður því óhjákvæmileg afleiðing hennar.

Í hvert skipti sem gengi krónunnar hefur verið breytt, hefur ríkisstj. lýst því yfir, að gengisfellingin mundi hleypa nýju fjöri í útflutningsatvinnuvegina og leysa þar með vanda efnahagslífsins. Þegar gengið var fellt á síðasta ári, skyldi endurreisa allt athafnalíf. En hver varð svo raunin? Erfiðleikar útflutningsatvinnuveganna hafa aldrei verið meiri en einmitt eftir síðustu gengisfellingu. Þegar höfð er í huga reynsla af gengislækkunaraðgerðum ríkisstj. á undanförnum árum og þó alveg sérstaklega frá s.l. ári, verður að telja það mjög furðulegt, að enn á ný skuli gripið til sams konar ráða, án þess að nokkuð bendi til þess að grundvallarstefnubreyting í efnahagsmálum eigi sér stað. Augljóst er, að afleiðingar af gengislækkuninni verða þær, að kaupmáttur launa hlýtur að minnka, m.a. sérstaklega ef sú ætlun ríkisstj. að ógilda ákvæði gildandi kjarasamninga um vísitölubætur á laun og breyting á reglunum um hlutaskiptakjör sjómanna sjómönnum í óhag nær fram að ganga. Það verður að teljast mjög ótrúlegt, að ríkisstj. komi fram þessum kjaraskerðingarákvæðum gagnvart launafólki og sjómönnum. Enn fremur er það augljóst, að afleiðingar af þeirri gengislækkun, sem nú hefur verið ákveðin, hljóta óhjákvæmilega að verða miklar verðhækkanir á vörum og þjónustu. Till. ríkisstj. um enn eina gengislækkun eru óraunhæfar og eru ekki líklegar til að leysa vanda atvinnuveganna. Gengisfellingin nú að óbreyttri stefnu mun valda fleiri vandkvæðum og vekja upp fleiri vandamál en hún leysir. Reynslan hefur sýnt, að þrátt fyrir allar gengisbreytingar ríkisstj. hefur vandinn í efnahags- og atvinnumálum stöðugt farið vaxandi. Það, sem nú þarf að gera í efnahagsmálum, er fyrst og fremst að breyta í grundvallaratriðum þeirri stefnu, sem fylgt hefur verið í atvinnu- og efnahagsmálum undanfarið. Þjóðarbúið þolir ekki skipulagslausa fjárfestingu né þá gegndarlausu sóun á gjaldeyri, sem átt hefur sér stað undanfarið. Við undirritaðir teljum, að stefnan í efnahagsmálum hafi í grundvallaratriðum verið röng og sé það enn. Reynsla undanfarinna ára sannar, að hún fær ekki staðizt. Minni hl. fjhn. Ed. leggur því til, að frv. verði fellt. Þetta er nál. minni hl. fjhn. Ed.

Sparnaður hlýtur alltaf að verða meginuppistaða fjármunamyndunar í landinu, en þær ráðstafanir, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur framkvæmt, hafa allar hnigið í þá átt að torvelda sparifjármyndun. Gengisfelling hefur alltaf bitnað mjög harkalega á sparifjáreigendum, ungum og gömlum, og það er ekki beinlínis til að auka trúna á verðgildi peninganna, að búið er að framkvæma 4 gengisfellingar á valdatíma þessarar hæstv. ríkisstj. Þrjár þær fyrstu hafa runnið út í sandinn, svo sem raun ber vitni um, en samt er ekki hætt við og þykir mörgum ekki fullreynt fyrr en sú fjórða hefur einnig runnið út í sandinn, því að engar líkur eru nú, nema síður sé, að þetta lánist betur en áður. Hér er um mjög alvarlegt mál að ræða, ef það á að vera öruggt merki um, að gengi hinnar íslenzku krónu verði að breytast, ef hið minnsta dregur úr aflafeng. Jafnvel með afla, sem að magni til er hinn þriðji eða fjórði hæsti, verður að grípa til gengislækkunar, sem þó er alls ekki í reynd nein lækning, nema síður sé, fyrir þann atvinnuveginn, sem á að njóta hennar fyrst og fremst.

Á undanförnum árum hafa allir verið að tapa. Verkalýðurinn hefur borið skarðan hlut frá borði. Iðnaðurinn hefur verið rekinn með halla, sjávarútvegurinn með halla og ríkið sjálft hefur verið rekið með halla. Alls staðar hefur verið halli. En þrátt fyrir allt þetta skal haldið áfram sömu stefnu og virðist sem í algert óefni sé nú stefnt. Þegar síðasta gengisfellingin átti sér stað 1967 sögðu sérfræðingar ríkisstj., að þá væru öll gögn á borðinu. Það væri nú einhver munur nú eða áður, þegar ekkert hefði verið fyrir hendi og allt verið reiknað á hnjám sér. Samt þurfti nú margar vikur til að safna gögnum um sjávarútveginn til að halda út í sömu ófæruna með óbreytta stefnu að leiðarljósi.

Á undanförnum árum hafa æðimargir bátar verið keyptir hingað til landsins. Fyrir síðustu gengisfellingu í fyrrahaust námu skuldir vegna bátakaupanna 580 millj. kr. Þá hækkuðu þær skuldir um 188 millj. Nú munu þær vera tæplega 800 millj. Veiðarfæraskuldir útvegsmanna, síldarnætur, sem búið er að taka í notkun og önnur veiðarfæri, sem keypt hafa verið með greiðslufresti, skuldir vegna þeirra, nema eigi lægri upphæð en 200 millj. Þannig munu þessar skuldir aðila í sjávarútvegi vera nú um 1 milljarður. Þessar skuldir munu því hækka um a.m.k. 540 millj. kr. og verða um 11/2 milljarður. Það er alveg óhugsandi, að það sé unnt að standa undir slíkum skuldbindingum. Meðan bátar, sem keyptir hafa verið hingað til lands á síðustu þremur árum, hækka um 7–11 millj. eða jafnvel enn þá meira á einu ári, liggur það í augum uppi, hversu gersamlega vonlaus útgerðin hlýtur að vera. Og auk þess hefur svo gengisfellingin þau áhrif á erlendu skuldirnar vegna bátanna, að kostnaðurinn við lánin heldur sífellt áfram að vaxa, þar sem bátaeigendurnir verða að borga 1% af erlendu skuldinni eins og hún er á hverjum tíma í þóknun vegna ábyrgðar. Það er alveg gersamlega vonlaust, að útgerðin geti risið undir þessum sköðum.

Þessi gengisfelling, hin fjórða í röðinni, sem núverandi stjórnarflokkar standa að, er nokkuð sérstæð. Þrjár fyrstu, eins og ég gat um áðan, hafa allar mislánazt og þætti sumum nóg komið. En hæstv. ríkisstj. virðist eigi telja þetta fullreynt fyrr en í fjórða sinnið, enda þótt málum sé nú svo komið, að sízt sé von til þess, að gengisbreyting lánist frekar nú en áður. Undanfarnar vikur hafa stjórnmálaflokkarnir setið að viðræðum um hugsanleg úrræði í efnahagsvandamálum, sem talin eru geigvænleg. Ýmsir töldu, að til þeirra viðræðna væri stofnað af heilindum og vilja til að fá samstarf um lausn vandamálanna. Daginn, sem viðræðurnar hófust, var ástandið orðið þannig, að ríkisstj. taldi óumflýjanlegt að framkvæma bráðabirgðaúrræði meðan málin væru betur skoðuð. Það var komið svo fram á ellefu stundu, að ekki þoldi neina bið. Þetta fannst mörgum fyrirboði þess, að viðræðurnar væru aðeins yfirskin en engin alvara, og nú, þegar samningum er slitið, liggja fyrir sömu, gömlu úrræðin: Gengisfelling. Og virðist það benda til þess, að stjórnin hafi aldrei ætlað sér neitt með þessum viðræðum.

Það hefur verið minnzt á það hér, að vextir og afborganir af erlendum skuldum á árinu 1969 muni nema svipaðri upphæð og fæst fyrir allan útflutning á frystum fiskflökum. Það er dökk mynd, sem dregin er upp, og hæstv. viðskmrh. gat þess í útvarpinu í kvöld, að stjórnarandstæðingarnir máluðu myndina enn þá dekkri en ríkisstj. vildi gera. Þær tölur, sem nefndar hafa verið, eru þó beint frá sérfræðingum ríkisstj., en enginn tilbúningur stjórnarandstöðunnar. Og ástand atvinnuveganna er svo bágborið, að jafnvel þeir, sem bjartsýnastir eru um árangur gengisfellingarinnar, jafnvel þeim hrýs hugur við efnahagsstöðu útflutningsatvinnuveganna, eins og nú er komið. Viðskmrh. Noregs mun hafa verið spurður að því, hvað hann áliti um gengisfellingu íslenzku krónunnar nú. Hann mun hafa látið þá skoðun í ljós, að engin þjóð bætti efnahagsaðstöðu sína með sífelldum gengisfellingum. Reynslan hefur sýnt, að þrátt fyrir allar gengisbreytingar og aðrar ráðstafanir ríkisstj., hefur vandinn í efnahags- og atvinnumálum stöðugt farið vaxandi, og engar líkur benda til þess, að núv. ríkisstj. muni frekar nú en áður leysa vandann, sem við er að fást. Við í fjhn. d., sem skipum minni hl., leggjum því til að frv. það, sem hér er til umr., verði fellt.