21.10.1968
Neðri deild: 4. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í B-deild Alþingistíðinda. (531)

4. mál, hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Í stjórnaryfirlýsingu, sem forsrh. gerði grein fyrir í byrjun þings í fyrra, var m.a. gerð grein fyrir því, að ríkisstj. vildi beita sér fyrir því, að sett yrðu ný lög almennt og samræmt heilbrigðiseftirlit í öllu landinu, eins og það var orðað. En frv. það, sem hér liggur fyrir, var lagt fyrir þingið í framhaldi af þessu og er nú endurflutt á þessu þingi, þar sem það hlaut ekki afgreiðslu á s.l. Alþ. Eins og gerð var grein fyrir þá og segir í grg., hafði verið skipuð nefnd 10. marz 1967 af dómsmrh. til þess að endurskoða lög nr. 35/1940 um heilbrigðisnefndir og heilbrigðissamþykktir og gera till., eftir því sem þurfa þykir, til nýskipunar, sem stuðli að því að tryggja raunhæfa og samræmda framkvæmd heilbrigðiseftirlitsins á þessu sviði. Þessi nefnd, sem starfaði undir formennsku Benedikts Tómassonar læknis, vann ötullega að sínu verkefni, hélt marga fundi og kynnti sér málefnið mjög vandlega, eins og fram kemur í ýtarlegri grg. frv., og einnig gildandi reglur um hliðstæð málefni hjá nágrannaþjóðum okkar og skilaði svo tillögum sínum í formi frv. þess, sem hér liggur fyrir, 29. nóv. á s.l. ári. Frv. var lagt fyrir þingið 16. janúar 1968, þegar þing kom saman eftir jólafrí. Nú var mér það ljóst, að frv., jafnumfangsmikið eins og hér er um að ræða, þarf gaumgæfilega athugun og meðferð hjá þingnefnd og kannske ekki hægt að ætlast til, að þing ljúki afgreiðslu slíkra frv., sérstaklega þegar þau eru þá ekki lögð fram strax í byrjun þings, eins og hér var um að ræða. En þingnefndin hafði hins vegar rúman tíma til þess að átta sig á málinu, og vildi ég mega vonast til þess, að það greiði mjög fyrir meðferð málsins nú.

Ég skal aðeins lítillega víkja að aðalefni þessa frv.. en það er fyrst og fremst megintilgangurinn að setja samræmdar reglur um allt land um heilbrigðiseftirlit og hollustuhætti. Það er gert ráð fyrir því. að í hverju sveitarfélagi landsins verði heilbrigðisnefndir. og þær eru nú í mörgum, en mikil brotalöm hins vegar á því, að þær séu alls staðar, þar sem vera skyldi, og síðan er gert ráð fyrir því að þyngja nokkuð frá því. sem nú er. kröfur um heilbrigðiseftirlit. og þá sérstaklega á ég við, að þar sem kaupstaðir eru orðnir með 10 þús. íbúum eða fleirum segja I. að þar skuli ráða sérmenntaðan heilbrigðisfulltrúa í fullu starfi, einn eða fleiri eftir íbúafjölda, og í kauptúnum með 800 íbúum eða fleiri skal ráða heilbrigðisfulltrúa, en undirbúningsmenntun og starfstími er ótiltekinn. Sveitarfélögum er svo heimilað með vissum takmörkunum að sameinast um heilbrigðisfulltrúa. Það er svo meginreglan, að heilbrigðisnefndirnar annist undir umsjón héraðslæknis heilbrigðiseftirlit, þar sem ekki er heilbrigðisfulltrúi. Svo er það nýmæli í þessum l., að það er gert ráð fyrir að koma á fót nýrri stofnun, sem kölluð er Heilbrigðiseftirlit ríkisins, sem á að hafa undir stjórn landlæknis yfirumsjón með heilbrigðiseftirlitinu í landinu. Hún tekur einnig að sér yfireftirlit samkv. l. nr. 24/1936, um eftirlit með matvælum og öðrum neyzlu- og nauðsynjavörum, og í staðinn er svo felld niður heimild þeirra laga til þess að fela yfirumsjón sérstökum kunnáttumönnum, eins og þar stendur. Með þessu er í raun og veru vikið að meginatriðunum í frv., en eins og kunnugt er, hvílir núverandi skipan heilbrigðiseftirlitsins á 1. nr. 35 frá 1940, og í grg. er gerð grein fyrir þeim 1., meginefni þeirra, og svo einnig í 11. kafla í grg. er gerð grein fyrir annarri löggjöf, sem varðar heilbrigðiseftirlitið, og allt er þetta gert í þeim tilgangi að létta undir störfum þeirrar nefndar sem fær þetta mál til meðferðar, og að lokum fylgir svo einnig skrá um helztu löggjöf, sem snertir heilbrigðisnefndir og heilbrigðissamþykktir. Að öllu athuguðu held ég því, að segja megi, að málið sé vandlega undirbúið, og jafnframt er málið mjög veigamikið og þýðingarmikið, eins og ég geri ráð fyrir, að hv. þm. geri sér fulla grein fyrir.

Um 8. gr., sem kveður á um, að ríkið starfræki stofnun, sem nefnist Heilbrigðiseftirlit ríkisins, skal ég aðeins fara nokkrum orðum. Það er nýmæli, en þessu Heilbrigðiseftirliti ríkisins er ætlað að hafa yfirumsjón með öllum þeim þáttum, sem heilbrigðisnefndir eiga að fjalla um. Og fyrir þessari skipan mála eru færð þau rök, að með því að fela slíkt samræmt eftirlit yfir öllu landinu einni stofnun nýtast starfskraftar betur heldur en ella og eftirlitið að sjálfsögðu samræmdara og heilsteyptara en annars mundi vera. Og það er einnig ætlað, að það muni í slíkri framkvæmd geta orðið ódýrara heldur en ella. Og loks er einnig álitið, að slíkt heilbrigðiseftirlit hafi sterkari aðstöðu til áhrifa heldur en einstakir aðilar, einstakir eftirlitsmenn, sem starfa kannske hver á sínu sviði og óháðir hver öðrum. Það er auðvitað mikilvægt og meginatriði málsins, að þetta Heilbrigðiseftirlit ríkisins nái góðri samvinnu og efli góða samvinnu við heilbrigðisnefndirnar, gangi síður en svo fram hjá þeim og fái þeim í hendur framkvæmd ráðstafana, sem það telur nauðsynlegar, og þetta heilbrigðiseftirlit ætti m.a. að vekja ábyrgðartilfinningu nefndanna til sjálfstæðra athafna og í ríkari mæli kannske heldur en áður hefur verið, en varast, að fram komi sá skilningur og festist, að nefndirnar geti varpað áhyggjum sínum yfir á Heilbrigðiseftirlitið og setið auðum höndum. Ég hef nú ekki nokkra ástæðu til þess að ætla annað heldur en slík samvinna Heilbrigðiseftirlitsins og nefndanna, sem fyrir eru, og þeirra, sem kunna að verða stofnaðar, muni takast með góðu móti og er reyndar kunnugt um það, að vilji og óskir eru uppi um slíkt einmitt hjá þeim fyrirsvarsmönnum heilbrigðismála, sem að þessum málum hafa starfað í þessum einstöku heilbrigðisnefndum og víðar. Í grg. hefur nefndin reynt að sýna nokkuð eða draga upp mynd af því, hvernig eftirlitinu yrði skipað, þegar það yrði komið í það horf, sem að er stefnt í frv., og fylgir nokkur álitsgerð nefndarmanna um það, sem einnig er fyrst og fremst hugsuð til ábendingar fyrir nefndina og þingnefnd til betri glöggvunar á því, hvað í þessu kunni raunverulega að felast. Þegar minnzt er á nýjar stofnanir, sem svo eru nefndar, verður mönnum æðioft á að segja sem svo: Er nú ekki verið að efna hér til einhvers aukakostnaðar, nýs kostnaðar í stjórnarframkvæmdinni eða stjórnsýslunni, sem hægt væri að komast hjá?

Um kostnaðinn af þessu heilbrigðiseftirliti segir nefndin eftirfarandi sem ég vil mega vitna til, með leyfi hæstv. forseta:

„Stofnun Heilbrigðiseftirlitsins er eina nýmæli frv., sem veldur ríkissjóði auknum útgjöldum. Nefndin telur ekki unnt á þessu stigi að áætla kostnaðinn nákvæmlega, en með hliðsjón af því, að rekstrarkostnaður mjólkureftirlitsins og veitingahúsaeftirlitsins er áætlaður samtals tæplega 930 þús. kr. í frv. til fjárl. fyrir árið 1968, ætti heildarkostnaður Heilbrigðiseftirlitsins varla að fara fram úr 11/2 millj. kr., eða 500–600 þús. kr. viðbót,“ en hér vil ég skjóta því inn, að það er gert ráð fyrir því, að mjólkureftirlitið og þetta veitingahúsaeftirlit falli undir hið almenna Heilbrigðiseftirlit ríkisins. Síðan segir áfram: „Mjólkureftirlitsmaðurinn og veitingahúsaeftirlitsmaðurinn hafa alls um 11/2 ritara, en ef Heilbrigðiseftirlitið hefði bækistöð á skrifstofu landlæknis, sem væri langheppilegast, kemur ekki til mála, að þar þyrfti að bæta við nema einum ritara vegna eftirlitsins, og e.t.v. mundi ritari í hálfu starfi nægja að landlæknisembættinu óbreyttu að öðru leyti. Húsakostur vegna Heilbrigðiseftirlitsins ætti varla að þurfa að verða meiri en núv. húsakostur þessara tveggja eftirlitsmanna. Hins vegar má gera ráð fyrir, að ferðakostnaður á hvern starfsmann hækkaði eitthvað, að starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins yrðu að ferðast meir en núv. mjólkureftirlitsmaður og veitingahúsaeftirlitsmaður. Um þetta verður þó ekki vitað fyrr en stofnunin er komin í gang og nokkur reynsla fengin af starfstilhögun hennar. Áður hefur verið vikið að því, að nefndin telur óhjákvæmilegt. að forstöðumaðurinn verði í 26. launaflokki og aðstoðarmennirnir í 21. Þessar ábendingar eru m.a. fram settar til þess að gera sér grein fyrir þeim kostnaði, sem af þessu kynni að leiða“.

Það er þess vegna skoðun mín, að beinn aukinn kostnaður af því Heilbrigðiseftirliti, sem hér er um að ræða, verði sáralítill fyrir ríkissjóð, en auk þess vil ég vekja athygli á því, að aukinn kostnaður í krónutali við almennt heilbrigðiseftirlit með hollustuháttum í landinu, beinn kostnaður við það getur náttúrlega gefið þjóðinni í aðra hönd svo mörgum sinnum og margfalt meiri óbein verðmæti, eins og ég veit. að hv. þm. gera sér fyllilega grein fyrir.

Ég vil nú mega vænta þess, að þetta frv., sem nú er endurflutt og strax í byrjun þings að hv. heilbr.- og félmn.. sem ég legg til, að fái það til meðferðar og er þegar kunnug frv., taki rösklega til athugunar frv. og stuðli að því, að það geti. nú með þeim undirbúningi, sem það hefur fengið og þeirri meðferð áður á þinginu, fengið fullnaðar- og lokaafgreiðslu á þessu þingi. Ég tel, að hér sé mikilvægt og þýðingarmikið málefni, sem um er að ræða, og þinginu væri ekki sæmandi að fá það til meðferðar í annað sinn heldur ljúka afgreiðslu þess með einum eða öðrum hætti. Að sjálfsögðu gildir um þetta mál sem önnur, að till. manna til breytinga, sem fram kunna að koma og verða til bóta, þurfa að hafa sinn tíma til meðferðar og er eðlilegt, að þær séu athugaðar og nái fram að ganga og ekki verði þær breytingar á meðferð málsins, að megintilganginum verði ekki þess vegna náð.

Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og eins og ég sagði hv. heilbr.- og félmn.